Tónlistin - 01.06.1946, Síða 26

Tónlistin - 01.06.1946, Síða 26
24 TÓNLISTIN Enda þótt grein þessi sverji sig full- mikiÖ í ætt við alfræðibókarstíl, þótti ekki rétt að ganga fram hjá henni. Hins- vegar er hún rituð með þeim hætti, þótt höfundurinn sé tónlistargagnrýnandi við eitt af dagblöðum Reykjavíkur, að full ástæða er til að draga nokkur atriði hennar til fljótlegrar athugunar. — Rýn- andinn tekur réttilega fram frumkvæði tónskáldanna Sigfúsar Einarssonar og Jóns Laxdals að stofnun Hljómsveitar Reykjavíkur, sem síðar fæddi af sér Tónlistarskólann og „Tónlistarfélagið", og sannar þar með þá þróunarsögulegu reglu, að tónlistarmennirnir sjálfir brjóta isinn og marka stefnuna, enda þótt stofn- un „Tónlistarfélagsins" yrði bani hljóm- sveitarinnar í þeirri félagslegu mynd, er tónskáldin höfðu rekið hana. Greinarhöf- undur telur hljómsveitinni nú hafa far- ið svo mikið fram, að menn hefðu ekki þorað að vænta slíkra umbóta. Ekki hefir nú kjarkurinn verið á háu stigi, þvi að enn í dag verður að notast við meira og minna umskrifaðar raddsetn- ingar fyrir þá ófullkomnu hljóðfæra- skipun sem fyrir hendi er. Annars er nú svo komið, að hljómsveitin er hætt að láta til sín heyra, svo að fullkomnun hennar cr sennilega aðeins fögur ósk- mynd gagnrýnandans, og nú er löngu lið- inn sá tími Sigfúsar Einarssonar, að safnað sé saman öllum þeim sem fleygir eru á hljóðfæri til samleiks; nú verður hver að hýrast í sínu horni og hlása eða strjúka fyrir sjálfan sig. En það getur lika verið einmanalegt að spila alltaf sóló! Aftur á móti virðist það alls ekki frá- leitt, að höfuðborg landsins ætti fullskip- aða hljómsveit, þegar þess er gætt að t. d. norskur smábær með þrjú þúsund í- búum hefir eigin hljómsveitarfélag, sem annast flutning ýmissa tónverka, svo sem nýrra verka eftir ung tónskáld þarlend, sem reyna að kryfja til mergjar norskt tónlistareðli — og þýzk verksmiðja með átta hundruð manns í þjónustu sinni hefir á að skipa strokhljómsveit með eigin verkáfólki aðeins, og spilar hún þannig í hæfilegri útsetningu symfóníur eftir Mozart! — Höfundurinn segist alltaf dást að áhugamönnum, og er það eðli- legt, því að sjálfur er hann manna áhuga- samastur um viss tónlistarmál eins og hinir „postullþgu“ tólfmenjninga^ tón- listarhringsins, sem kenna sig við hina göfugu músík. Vissulega hefir Tónlistar- skólinn unnið þarft verk með kennslu sinni; en enn hefir honum ekki tekizt að lyfta því sjálfsagða taki að sjá skólum og kirkjum fyrir söngkennurum og org- anistum svo neinu nemi; uppeldislega hef- ir hann þessvegna ekki verið sniðinn eft- ir þörfum þjóðarinnar. — Ekki er vel ljóst hvað upptalning höfundar á nem- endum skólans á að þýða, nema þá kannske helzt til þess að reyna að setja á þá vörumerki til aðgreiningar frá öðr- um lærisveinum, sem hann ekki virðist hafa haft á takteinum af einhverjum ó- skiljanlegum ástæðum. Hversvegna þenn- an dilkadrátt? Hversvegna ekki að láta öll kurl koma til grafar? Því mátti ekki telja Guðriði Guðmundsdóttur, Katrinu Dalhoff og Helgu Laxness meðal pían- istanna, þótt ekki væru þær í kennaralið- inu? Hversvegna var ekki hægt að nefna Þóri Jónsson og Óskar Cortez í sömu andrá og aðra félaga í fiðlarahóp? — Tónlistargagnrýnandinn telur „það leið- inlegt fyrir tónskáld að þurfa að fara i smiðju til annarra með raddsetningu á löguni sínum.“ Hver er hugmynd höf- undarins um tónskáld? Naumlega getur sá kallazt tónskáld, sem ekki er svo mikið sem fær um að radda lítið lag sitt upp á eigin spýtur. Væri víst alveg áreiðanlega ótækt að kalla þann skáld, sem ekki gæti rimað efni í ferskeytlu; hann næði ekki einu sinni hagyrðingstitlinum. Eftir um- sögn höfundar mætti ætla, að nóg væri að raula eða blístra nokkra haganlega tilviljunartóna til þess að verða dubbaður til riddara í flokki kompónista! Sem bet- ur fer gera höfundar tónlistarinnar ögn hærri kröfur til sín en svo, annars væri tónlistin ekki „æðst allra lista“ eins og höfundur heldur réttilega fram. — Enda þótt útlenzkir tónlistarmenn hafi lagt hönd á plóginn sem atvinnumenn og

x

Tónlistin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tónlistin
https://timarit.is/publication/922

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.