blaðið - 21.01.2006, Blaðsíða 37
blaöiö LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2006
TRÚMÁL I 37
Prestsfrú meinað að kenna vitsmuna-
hönnun í heimspekiáfanga
En hver vœri betur til þessfallinn?
Lítill héraðsskóli í Fresno, Kali-
forníu, iýsti því yfir á þriðjudag
að hætt hefði verið við kennslu á
valáfanga í heimspeki sem ætlað
var að höndla um svokallaða „vits-
munahönnunarkenningu". Líkt
annarri kennslu í hinni merku
kenningu var yfirlýst markmið
námskeiðsins að bera þau boð að
lífið væri það flókið að það hlyti
óhjákvæmilega að vera verk vits-
munaveru. Með kennslu í áfang-
anum - sem kallaðist „Heimspeki
hönnunarinnar“ - fór prestsfrú
úr héraðinu. Frá þessu greinir AP
fréttastofan.
Hópur foreldra stefndi skólakerf-
inu í E1 Tejon sýslu í síðustu viku
og sakaði það um að brjóta stjórnar-
skrárbundinn aðskilnað ríkis og
kirkju með valáfanganum. Höfðu
foreídrarnir fyrir satt að skóla-
yfirvöld hefðu ekki í huga að opna
„vitsmunalega“ umræðuumsköpunar-
söguna og þróunarkenninguna
með námskeiðinu, heldur einungis
kenna hvernig heimurinn varð í
raun til.
Metþátttaka í borgaralegri
fermingu:
Boðið upp á
undirbúnings-
námskeið á
Akureyri
Vegna metþátttöku í borgaralegri
fermingu á vegum samtakanna Sið-
menntar í ár hafa þau ákveðið að
halda sérstakt undirbúningsnám-
skeið á Akureyri. Undanfarin ár
hefur Siðmennt haldið helgarnám-
skeið í Reykjavík fyrir þátttakendur
af landsbyggðinni, en nú verður
helmingur þess haldinn á Akur-
eyri. Þetta þýðir líklega að þátttak-
endur utan af landi þurfa að ferðast
minna en ella. Samkvæmt fréttatil-
kynningu Siðmenntar hafa 130 börn
skráð sig til þátttöku í borgaralegri
fermingu í ár, en það mun vera um
40% aukning frá þvi á síðasta ári.
Þetta er í íyrsta sinn sem undir-
búningsnámskeið er haldið bæði
í Reykjavik og á Akureyri. Sam-
kvæmt Siðmennt er stefnt að því
að bjóða upp á slík námskeið hér
eítir á Akureyri og jafnvel víðar
um landið, eftir því sem þörf og
áhugi fyrir slíkum valkosti eykst.
Andstæðingar gleðjast
1 sáttagerð milli málsaðila sam-
þykktu skólayfirvöld að láta af
kennslu áfangans og um leið að bjóða
aldrei aftur „námskeið sem stuðlar
að eða styður sköpunarhyggju, sköp-
unarvísindi eða vitsmunahönnun.“
í herbúðum andstæðinga vits-
munahönnunarhyggju þykir þessi
úrskurður mikið gleðiefni enda hafi
hann skorið úr um að aldrei megi
kenna vitsmunahönnun sem fýsi-
legan valkost við þróunarkenning-
una og gildi þá einu hvort kennslan
fer fram undir formerkjum vísinda
eða hugvísinda.
Af hinu ágæta fljúgandi spagett-
ískrímsli, sem notað hefur verið af
andstæðingum vitsmunahönnun-
arkenningarinnar sem e.k. óbeina
sönnun um meintan fáránleika
hennar, erþað að frétta að Guðspjöll
hins fljúgandi spagettískrímslis er
væntanlegt í kiljuformi í vor. Einnig
hafa verið framleidd leikföng í þess
helgu mynd, en þau má skoða á op-
inberri heimasíðu skrímslsins, www.
venganza.org.
haukur@bladid. net
8 - liða úrslit í Lýsingarbikarnum fara fram da
Meistaraflokkur karla
Lau, 21. jan 2006 Iða
Sun. 22. jan 2006 Borgarnes
Sun.22.jan 2006 DHLHöllin
Sun. 22. jan 2006 Stykkishólmur
Meistaraflokkur kvenna
Lau. 21.jan 2006 Kennaraháskólinn kl. 18:00
Sun 22. jan 2006 Grindavík kl. 19:15
Mán. 23. jan 2006 Borgarnes kl. 20:00
Mið. 25. jan 2006 Keflavík kl. 19:30
Mætum öll og sjáum
kl. 14:00
kl. 19:15
kl. 19:15 KR -
kl. 19:15
LYSING
Fjdrmögrum í takt viö þínar þarfir
Saðurlahdsbraut 22
108 Regkjavík
Sími 540 1500 Fax 540 1505
www.tysing.is