blaðið - 21.01.2006, Blaðsíða 48
48 I MEWNING
LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2006 blaöið
\: \ i i
i \\.U
UV»£vjf£*^
V;---
sunnudaginn 5. feb. 2006
Sesselja Kristjánsdóttir
Garðar Thór Cortes
Bergþór Pálsson
Davíð Ólafsson
Elnar Th. Guðmundsson
Hlín Pétursdóttir
Anna Margrét Óskarsdóttir
Kór og hljómsveit
íslensku óperunnar
Hljómsveitarstjóri:
Kurt Kopecky
Leikstjóri: Paul Suter
Leikmynd og búningar:
*i\ Season Chiu n',,
Lýsing: Jóhahn Bjarni Pálmason
Miöasala.-s. 511 4200
midasala@opera.is
www.opera.is
Aðeins sýnd í febrúar og Tnarsr^s"
ATH! 25 ára og yngri fá 50% afslátt af miðaverði í sal
1 Newcastle - Blackburn X
2 Tottenham - Aston Villa X 2
3 Bolton - Man. City X
4 Middlesbrough - Wigan
5 W.B.A. - Sunderland 2
6 Birmingham - Portsmouth -j 2
7 Norwich - Watford
8 Burnley - Preston
9 Millwall - Wolves
10 Luton - Q.P.R. 2
11 Leicester - Cardiff 1
12 Southampton - Ipswich
13 Coventry - Derby 1 X
1X2
Michaelangelo naut ríkulegrar aðstoðar auðugra velgjörðarmanna
Michaelangelo
Peningar og völd
Þann 12. janúar hófst sýning í Brit-
ish Museum á þeirri mynt sem
notuð var á endurreisnartímanum
á Italíu á tímum Michaelangelos.
Sýningin er undanfari stóru vorsýn-
ingar safnsins, sem að þessu sinni
verður á teikningum listamanns-
ins. Myntsýningin varpar ljósi á
þann tíma sem Michaelangelo lifði,
stjórnmálaátök tímabilsins og þann
,patronisma“ sem honum, líkt og
listamönnum almennt, hefur verið
mikilvægur í gegnum tíðina. Miche-
langelo lék þann leik enda listavel.
Hann var bæði frægasti og best
launaðasti listamaður síns tíma, tólf
sinnum betur borgaður en sá sem
næstur honum komst, og mátti vel
sjá áhrif velgjörðarmanna hans í
verkum hans. Sýningin stendur til 25.
júni og aðgangur er ókeypis, en sýn-
ing á teikningum eftir listamannin
hefst þann 23. mars. Þar verður hægt
að berja augum teikningar eftir
listamanninn frá sextíu ára ferli
sem ekki hefur verið hægt að skoða
saman í ríflega fjögur hundruð ár
og varpa nýju ljósi á þennan snilling
endurreisnartímans.
ernak@vbl.is
Minningarsjóður
um hjónin Helgu
og Bjama
Bjarni Snæbjörnsson, læknir og
heiðursborgari Hafnarfjarðar, hlut-
aðist til um stofnun Afmælisgjafa-
sjóðs Hafnfirðinga í tilefni af 75 ára
afmæli sínu árið 1965. í nóvember
2004 var heiti sjóðsins breytt í Minn-
ingarsjóður hjónanna Helgu Jónas-
dóttur og Bjarna Snæbjörnssonar,
læknis í Hafnarfirði. Tilgangur
sjóðsins er að veita styrki til að
hlúa að hagsmunamálum og velferð
barna í Hafnarfirði allt að 18 ára
aldri. „Einkum skulu veittir styrkir
til starfsemi á vegum einstaklinga,
samtaka, fyrirtækja og opinberra
aðila sem veita börnum, sem eiga
við erfiðleika að etja vegna fötlunar,
sjúkdóma eða félagslegra aðstæðna,
þjónustu og aðstoð," eins og segir í
skipulagsskrá sjóðsins.
Bjarni læknir starfaði í Hafnar-
firði frá árinu 1917, í 50 ár samfellt,
og var yfirlæknir St. Jósefsspítala
frá 1933-1956. Hann var einnig al-
þingismaður Hafnfirðinga 1931-1934
og 1937-1942. Helga var kennari og
síðar húsfreyja.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar sam-
þykkti einróma á fundi sínum 27.
febrúar 1968 að gera Bjarna Snæ-
björnsson að heiðursborgara Hafn-
arfjarðar í virðingar- og þakklætis-
skyni fyrir hálfrar aldar læknisstörf
í Hafnarfirði. Bjarni lést á heimili
sinu 24. ágúst 1970. Á næstu vikum
mun birtast auglýsing í fjölmiðlum
varðandi umsóknir um fjárstyrk
úr Minningarsjóði Helgu og Bjarna.
Styrkurinn verður afhentur form-
lega á afmælisdegi Bjarna Snæbjörns-
sonar 8. mars n.k. ■
Færðu bara gluggapóst?
Islandspóstur kynnir um þessar
mundir póstkortaskipti sem
ætlað er að gera ferðina í póstkass-
ann eftirsóknarverðari. Margir
hlakka lítið til þess verks enda
fátt annað þar að finna en glugga-
umslög. Persónuleg samskipti
manna á milli fara sífellt oftar
fram í gegnum síma eða tölvu-
póst, fremur en landspóst, en með
póstkortaskiptum má breyta því.
Póstkortaskipti eru tilvalin fyrir
þá sem eru að leita sér að nýju
áhugamáli en þau fara þannig
fram að þú sendir póstkort út
í heim og færð send kort á móti.
Á www.postur.is er að finna teng-
ingu á vef póstkortaskipta. Þar
er hægt að fylgjast með hvað þú
hefur fengið mörg póstkort send,
hvað þú hefur sent mörg póstkort
og hvað mörg póstkort eru á ferð-
inni um heiminn. Póstkortaskipti
byrjuðu síðla árs 2005 og skráðir
eru um 10.000 notendur í nærri
150 löndum heimsins. ■