blaðið - 03.06.2006, Blaðsíða 1
J&ru gtyiðlrnir tyseffer?
■ IPROTTIR
Rostungabolti
á Grænlandi
Hvar liggja rætur knatt-
spyrnunnar?
I S(ÐA 46
■ SAGA
Fékk 1.500 bón-
orð um ævina
ioo ár liðin frá fæðingu
Jospehine Baker
| SÍÐA 24
■ ERLENT
Fjöldamorð í írak?
Bandarískir hermenn vændir
um grimmdarverk í tveimur
íröskum bæjum
| SfÐA 10
r Mr-
A. j r \
123. tolublað 2. argangur
ohað &
ókeypis!
augardagur
3. iúní 2006
■ VÍSINDI
Lífsnautnin frjóva
Hvað er langlífi? Svo spurði
þjóðskáldið Jónas Hallgríms-
son og víst er að flesta dreymir
um að fá notið langra ævidaga.
Margir vísindamenn telja að
meðalævi manna muni lengj-
ast í framtíðinni og hald sumra
er að menn geti jafnvel náð
140 ára aldri. Meðalævi fólks
mun lengjast meðal annars
vegna heilbrigðari lífshátta,
betri aðstæðna og
heilbrigðisþjónustu
og framfara í lífvís-
indum. Fjallað er
um langiífi
í Blaðinu í
dag.
| S(ÐA 26
■ KVIKMYNDIR
Gott hjartalag
Brátt hefjast tökur á nýrri kvik-
mynd Dags Kára Péturssonar.
Myndin nefnistThe Good He-
art og fjallar um ungan mann,
Lucas, sem reynir að stytta sér
aldur og er lagður inn á spítala
í framhaldinu. Þar kynnist
hann bareiganda, Jacques,
sem á skammt ólifað og
ákveður að fela Luc-
asi rekstur barsins.
Dagur Kári segir
frá nýju myndinni
í samtali við Blað-
ið í dag.
| SfÐA 50
■ VIÐTAL
Róttækar sýn-
ingar vantar
Ung og efnileg leikkona, Vig-
dís Hrefna Pálsdóttir, hefur
vakið athygli fyrir snjallan leik
í hlutverki Auðar í uppfærslu
Leikfélags Akureyrar á Litlu
hryllingsbúðinni. Vigdís
Hrefna á ekki langt að sækja
áhugann á leikhúsinu og segir
að stuðningurforeldra hafi
reynst ómetanlegur. Vigdís
Hrefna telur að
íslensk leikhús
mættu setja upp
róttækari sýning-
ar en kveðst sjá
merki þess að
lognmollan séá
undanhaldi.
| SfÐA 28
Kandídat í kraftaverk
Edda Heiðrún Bachmann ræðir um leikhúsið, veikindin
og náðina í viðtali við Kolbrúnu Bergþórsdóttur.
| SÍÐUR 22 & 2 %
BlaÖiÖ/SteinarHugi
Halldór Asgrímsson sagður
vera á leið úr stjórnmálum
Fullyrt var í gær að Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokks-
ins, hyggist hverfa af stjórnmálasviðinu. Rætt er um að Finnur Ingólfsson taki við keflinu.
Halldór Ásgrímsson, forsætisráð-
herra, hefur, að því er fullyrt var
í gær, sagt sínum nánustu sam-
starfsmönnum frá því að hann
hafi ákveðið að segja af sér sem
formaður Framsóknarflokksins.
Nefnt var að Finnur Ingólfsson,
fyrrverandi ráðherra og stjórnar-
formaður VlS, væri líklegur arf-
taki Halldórs. I gærkvöldi fékkst
enginn þingmanna flokksins til
þess að staðfesta orðróminn en
heimildir Blaðsins hermdu að
fótur væri fyrir sögunni. Fundur
Landsstjórnar Framsóknarflokks-
ins var haldinn á fimmtudag og
segir Hjálmar Árnason, formaður
þingflokks Framsóknarflokksins,
að ekki hafi verið minnst einu orði
á þessi mál á þeim fundi.
Á fundinum á fimmtudag var
ákveðið að boða til miðstjórnar-
fundar á föstudag í næstu viku.
Heimildir Blaðsins herma að þar
muni Halldór greina frá ákvörðun
sinni. Fyrirhuguð afsögn Hall-
dórs er m.a. rakin til lélegrar út-
komu flokksins í nýafstöðnum
sveitarstjórnarkosningum.
„Aðdáunarverð skáldskapargáfa"
„Ég dáist að hugmyndaauðgi og
skáldskapargáfu fjölmiðlafólks,“
sagði HjálmarÁrnasonþingflokks-
formaður í samtali við Blaðið í
gærkvöldi. Hann sagði að sér vit-
anlega væri ekkert hæft í fréttum
þessum. „Á fundi landsstjórnar og
þingflokks í gær var ekki minnst
einu orði á þetta.“ Upplýsingafull-
trúi forsætisráðherra svaraði ekki
síma.
Guðni tæki við formennsku
Segi Halldór af sér sem formaður
flokksins mun Guðni Ágústsson
varaformaður taka við embætti
hans og stjórna flokknum þar til
landsþing hefur valið nýjan for-
mann. Mun nafn Finns Ingólfs-
sonar, fyrrum varaformanns Fram-
sóknarflokksins og ráðherra, hafa
verið nefnt í því viðfangi.
Breytingar á ríkisstjórninni?
Blaðið hefur heimildir fyrir því að
rætt hafi verið um að Framsóknar-
flokkurinn gefi eftir embætti for-
sætisráðherra og við því taki Geir
H. Haarde, formaður Sjálfstæðis-
flokksins, en framsóknarmenn fái
embætti fjármálaráðherra. Lögð
skal áhersla á að þetta fékkst ekki
staðfest.
VISALán er ný og hagstæð leið til greiðslu-
dreif ingar við kaup á vörum eða þjónustu.
■V’í
+ Staðgreiðsluverö
+ Lægri vextir
+ Lægri kostnaður
+ Til allt að 36 mánaða
+ Framlengdur ábyrgðartími
+ Flutningstrygging
+ Vildarpunktar
Nánari upplýsingar á www.visa.is/visalan eða í sima 525 2000
Spurðu
um
■ ■■■■■
%
HAGSTÆÐAR AFBORGANIR