blaðið - 03.06.2006, Side 2
2 I FRÉTTIR
LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2006 blaöið
blaðið—
Hádegismóum 2,110 Reykjavík
Sími: 510 3700 -www.vbl.is
FRÉTTASÍMI:
510 3799
netfang: frettir@ bladid.net
AUGLÝSINGADEILD:
510 3744
netfang: auglysingar@bladid.net
Venjulegir heimiliskettir geta ekki
eignast lén á Bretlandi.
Kisi tapar í
gerðardómi
Kötturinn Mjá tapaði á dögunum
máli fyrir breskum gerðardómi.
Fjárfestingabankinn, Morgan
Stanley, höfaði mál gegn kisa en
hann var skráður fyrir léninu My-
morganstanleyplatinum.com.
Lögfræðingar bankans rákust á
slóðina og þótti hún lík öðrum
lénum sem bankinn er skráður
fyrir. Þegar þeir uppgötvuðu að
köttur var skráður fyrir léninu
ákváðu þeir að reyna að fá skrán-
inguna ógilta.
Málið snérist um hvort köttur-
inn Mjá væri réttmætur eigandi
lénsins. Grunur lék á um að Mi-
chael Woods, eigandi kattarins,
hefði í raun skráð lénið á nafn
kattarins. Woods hélt því fram
að skráning lénsins væri ekki
fölsuð og rökstuddi mál sitt
með því að benda á að skráðir
eigendur fjölmargra léna eru
ekki menn heldur fyrrtæki.
Gerðardómurinn andmælti
þessum rökstuðningi og benti
á að venjulegar kisur geti hvorki
talað, skrifað né lesið. I úrskurð-
inum kemur fram að hugsanlegt
sé að kötturinn Mjá gæti verið
geimköttur. Væri það raunin
hefði hann átt að geta þess þegar
hann útfyllti umsóknareyðu-
blöðin þegar hann sótti um
lénið. f ljósi þess að hann gerði
það ekki úrskurðaði dómarinn
Morgan Stanley í hag sökum
þess að kötturinn hefði logið á
umsókninni.
BlaSiS/Frikki
Gengið frá leyndardómum Snæfellsjökuls
Háfleygur maður sagði eitt sinn að það væri aðeins eitt betra en að búa undir Snæfellsjökli en það væri að fá að njóta þess að horfa á
hann úr fjarlægð. Jökullin skartaði sínu fegursta í gær og áhrif hans kynngimögnuð sem endranær. A myndinni sjást þær Jónína og
Sigríður á göngu á Seltjarnarnesi.
Stöðvum lok-
að þegar leikir
standa yfir
Skjárinn og 365 miðlar munuloka
fyrir útsendingar á nokkrum er-
lendum stöðvum á meðan beinar
útsendingar frá leikjum á HM í
knattspyrnu standa yfir.
Magnús Ragnarsson, fram-
kvæmdastjóri Skjásins, segir
að þetta sé gert að kröfu 365
miðla sem er rétthafi fyrir HM
í Þýskalandi á íslandi. „Þeir eru
í fullum rétti að krefjast þess að
lokað verði fyrir stöðvarnar á
meðan beinar útsendingar frá
HM í Þýskalandi standa yfir.
Þetta veldur mér hins vegar von-
brigðum þar sem á hinum Norð-
urlöndunum er ekki amast við
sambærilegri dreifingu," segir
Magnús.
Áhrifa lokana mun gæta á DR,
NRK, SVT, ARD og ZDF, en lok-
anir ná einnig til endurvarps
Digital fsland.
Bæjarstjóri segir úrskurð félags-
málaráðuneytis óskiljanlegan
Gunnar Birgisson segir að reglum við úthlutanir lóða verði ekki breytt. Oddviti Samfylkingar
segir úrskurð um ólögmæti úthlutuna vera grafalvarlegt mál og að reglum verði að breyta.
Blaðií/Frlkki
Lóðaúthlutanirá Kópavogstúni hafa hrundið af stað málaferlum gegn bæjaryfirvöldum.
Ekki stendur til að breyta reglum
við lóðaúthlutanir í Kópavogi þrátt
fyrir að félagsmálaráðuneytið hafi
úrskurðað að úthlutun á Kópavogs-
túni hafi verið ólögmæt. Gunnar
I. Birgisson, bæjarstjóri, gagnrýnir
úrskurðinn og segir aðferð bæjarins
við úthlutun lóða vera þá bestu sem
í boði sé. Oddviti Samfylkingarinnar
í bænum segir að yfirvofandi skaða-
bótamál geti kostað bæinn drjúgan
skilding og að það sé forgangsmál að
breyta reglunum.
Málshöfðun yfirvofandi
Þrjár kærur til viðbótar eru inni á
borði félagsmálaráðuneytisins vegna
lóðaúthlutunar á Kópavogstúni í des-
ember sl., og hefur Blaðið fyrir því
heimildir að fjórði aðilinn hyggist
höfða mál fyrir dómstólum.
„Þetta er mjög skrítinn úrskurður,“
segir Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri
í Kópavogi. „Þeir gagnrýna okkur
fyrir að rökstyðja ekki hverjir hafi
verið valdir til að taka þátt í útdrætti
um lóðina.“ Hann segir útilokað að
bæjarráð fari að geta þess í rökstuðn-
ingi sínum fyrir þvf að aðili fái ekki
lóð að fjármál hans séu ekki í lagi
svo dæmi sé tekið. Það væri að sögn
Gunnars brot á lögum um persónu-
vernd. „Þessi úrskurður er mér því
gersamlega óskiljanlegur." Hann segir
að verið sé að reyna að þvinga bæinn
til þess að breyta fyrirkomulagi lóða-
úthlutanaá þann veg að dregið verði
um lóðirnar eða þær seldar hæstbjóð-
anda. „Ég er mjög eindregið á móti
þeim aðferðum.“
Reglunum ekki breytt að sinni
Gunnar segir að sú leið sem farin sé í
bænum sé sú besta. „Ef menn ætla að
fara í útboð þá eru það bara þeir ríku
og sterku sem fá lóð. Ef hins vegar
menn ætla að draga úr hópi umsækj-
anda þá fara menn í kennitölusöfnun.
Er það betra?,“ spyr Gunnar, sem
segir enga aðferð fullkomna í þessum
efnum.
Að sögn Gunnars stendur ekki til
að breyta úthlutunarreglunum í Kópa-
vogi. „Við erum að fara að úthluta 250
sérbýlum á næstunni og við munum
halda okkur við þessar reglur í það
skiptið þar sem búið er að auglýsa út-
hlutina. Hvort við breytum reglunum
seinna veit ég ekki.“
Forgangsmál að breyta reglunum
Guðríður Arnardóttir, oddviti Sam-
fýlkingarinnar í Kópavogi segir það
grafalvarlegt mál að félagsmálaráðu-
neytið úrskurði á þann veg að þær
reglur sem verðmætum sé útdeilt
eftir standist ekki stjórnsýslulög.
.Auðvitað eru þetta skýr skilaboð um
að ekki eigi að úthluta fleiri lóðum að
svo stöddu nema að reglunum verði
breytt.“ Guðríður segir að Samfylk-
ingarmenn hafi lagt til að nýjar út-
hlutunarreglur verði teknar upp, þar
sem fjallað verði um allar umsóknir
nafnlaust.
„Það myndi draga úr állri tortryggni
í þessum málum.“
Guðríður segir þetta mál vera enn
eitt dæmið um þau vinnubrögð sem
stunduð séu af meirihlutanum. Hún
segir að næsta skref í málinu fýrir
kærendur sé að höfða mál á hendur
bænum. „Þetta gæti kostað Kópa-
vogsbæ drjúgan skilding þegar bæj-
arsjóður þarf að greiða skaðabætur
vegna þessara vitlausu úthlutunar-
reglna. Mér finnst þetta vera fáránleg
þvermóðska að ætla sér að standa við
þetta fastari fótunum þegar menn
vita hversu umdeilt þetta er. Regl-
urnar eru handónýtar og það er for-
gangsmál að breyta þeim.“
Opið virka dagæ 10-18, lau: 11-15 Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500
Gæða sængur
og heilsukoddar.
0 HeiSsklrt0 Léttskýjaífóa. Ský|að Alskýjað^* Rigning, litilsháttar'^^ Rigning^áj^Súld 4Í ^ SnJðkoma*£i, siydda’^L Snjóél
Skúr
Algarve
Amsterdam
Barcelona
Berlín
Chicago
Dublin
Frankfurt
Glasgow
Hamborg
Helsinki
Kaupmannahöfn
London
Madrid
Mallorka
Montreal
New York
Orlando
Osló
Paris
Stokkhólmur
Vin
Þórshöfn
Á morgun
Veðurhorfur í dag kl: 15.00
Veðursíminn 902 0600
Byggt á upplýsingum frá Veöurstofu íslands