blaðið - 03.06.2006, Page 4
4IFRÉTTIR
LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2006 blaöiö
Samkeppniseft-
irlitiðskoðarer-
indi vegna HM
Samkeppniseftirlitið er enn með
erindi neytenda til skoðunar um
hvort að sjónvarpsstöðin Sýn
misnoti markaðsráðandi stöðu
sína á meðan lokakeppni heims-
meistaramótsins i knattspyrnu
fer fram.
I erindinu kemur fram að
neytandi sem ætlar að kaupa
áskrift að sjónvarpsstöðinni Sýn
i júnímánuði einum og sér þarf
að greiða tæpar fjórtán þúsund
krónur fyrir áskriftina. „Slík
verðlagning felur í sér ofurverð-
lagningu, sem fer í bága við a) lið
xi. gr. samkeppnislaga, enda um
að ræða u.þ.b. þrefalda verðlagn-
ingu umfram áskriftargjald aðra
mánuði. Slík verðlagning felur í
sér sjálfstætt brot og misnotkun
á hinni markaðsráðandi stöðu,“
segir í erindinu.
Þrælkunar-
garðvinna
Dómari í Sambíu hefur dæmt
breskan athafnamann, Charles
Long, til fimmtán daga garð-
yrkjuvinnu í blómabeðunum
fyrir utan höfuðstöðvar útlend-
ingaeftirlits landsins, sem eru í
höfuðborginni Lusaka. Dóminn
fékk Long fyrir að dvelja lengur í
landinu en vegabréfsáskrift hans
gaf leyfi til. Mulako Mbangweta,
talsmaður útlendingaeftirlitsins,
sagði í sambískum fjölmiðlum
í gær að Long muni þurfa að slá
blettinn fyrir utan skrifstofurnar
og reita arfa daglega næstu vik-
urnar. Síðan verður hann fluttur
úr landi.
Charles Long, sem kom til Sam-
bíu fýrir nokkru til þess að afla
sér viðskiptatengsla, var hæst-
ánægður með dóminn og telur
það skárra hlutskipti að vera með
græna fingur út í góða veðrinu
í stað þess að dúsa í sambísku
fangelsi
Björn Ingi segir kæru Þjóðar-
hreyfingarinnar tilhæfulausa
Ólafur Hannibalsson lagði í gær fram kæru vegna gruns um misferli við framkvæmd
atkvæðagreiðslu utan kjörfundar í borgarstjórnarkosningunum í Reykjavík.
Ólafur Hannibalsson, félagi í Þjóð-
arhreyfingunni svonefndu, kærði
framkvæmd borgarstjórnarkosn-
inganna i Reykjavík síðdegis í gær.
Kæran er lögð fram að sögn Ólafs
vegna gruns um misferli vegna fram-
kvæmdar atkvæðagreiðslu utan
kjörfundar og að sá grunur beinist
að framsóknarmönnum. Björn Ingi
Hrafnsson, oddviti Framsóknar-
flokksins í Reykjavík segir ásakan-
irnar vera með öllu tilhæfulausar.
Ólafur Hannibalsson lagði síð-
degis í gær fram kæru, fyrir hönd
Þjóðarhreyfingarinnar til sýslu-
manns í Reykjavík um misferli í
sveitarstjórnarkosningunumumsíð-
ustu helgi. Kært er vegna mis-
ferlis vegna framkvæmdar at-
kvæðagreiðslu utan kjörfundar
í kosningunum í Reykjavík. „I
kærunni kemur fram að
grunur liggi á að kerf-
isbundið hafi verið
unnið meðal nýbúa
að þeir kysu utan
kjörfundar án
þess að athuga
hvort að þeir
yrðu í bænum
á venjulegum
kjördegi eins
og ætlast er
til,“ segir Ól-
afurHannibals-
son i samtali
við Blaðið.
Kærumálið er
byggt á ákvæðum í
sveitastjórnarlögum.
Að sögn Ólafs er ógild-
ingar kosninganna krafist.
Verði ekki fallist á þá kröfu
verður þess krafist að kærunefnd
verði skipuð af sýslumanni og að
hún kanni framkvæmd utankjör-
staðaratkvæðagreiðslu í Reykjavík.
Samkvæmt lögum mun þvi ferli
ljúka með úrskurði félagsmálaráð-
herra. Ólafur segir að sætti Þjóðar-
hreyfingin sig ekki við úrskurð fé-
lagsmálaráðherra muni hún krefjast
opinberrar rannsóknar á málinu.
Nýbúar í rútum
„I kærunni er vikið að því að fram-
bjóðandi á lista Framsóknarflokks-
ins hafi unnið að því að flytja í rútum
nýbúa á utankjörfundarstað í Laug-
ardalshöll. Einnig leikur grunur á
að á suma hafi verið borið fé fyrir að
kjósa. Þjóðarhreyfingin er einungis
að biðja um rannsókn í málinu. Við
e r u m
ekki
dómarar. Til þess erum við
að biðja um rannsókn að grunsemdir
Olafur Hannlbalsson
verði upplýstar,“ segir Ólafur.
Ólafur segist hafa haft samband
við formann yfirkjörstjórnar í
Reykjavík á sínum tíma og
spurst fyrir um hvort að
kærur hefðu borist vegna
framkvæmdar utankjör-
staðarkosningarinnar.
„Hann sagðist ekki
hafa fengið neina
kæru en að starfs-
maður sýslumanns í
Laugardalshöll hefði
þó haft samband
vegna við sig vegna
aðgangshörku eins
kosningasmalans,
sem í þessu tilviki var
frambjóðandi Fram-
sóknarflokksins, sem
hefði komið með þessa
hópa á kjörstaðinn og viljað
fylgja skjólstæðingum sínum
nánast alla leið í kjörklefann í því
skyni að leiðbeina þeim.“
Fram kemur í kærunni að strax
að loknum kosningunum hafi fjöl-
margir einstaklingar leitað til Þjóð-
arhreyfingarinnar, sem viðruðu þær
grunsemdir annars vegar að verið
væri að nota utankjörstaðaratkvæða-
greiðsluna í annarlegum tilgangi
og hins vegar að i ýmsum tilvikum
væri ástæða til að ætla að téðum
kjósendum hefði verið greitt fyrir
viðvikið.
Tilhæfulausar ásakanir
Björn Ingi Hrafnsson, oddviti Fram-
sóknarflokksins í Reykjavík, segir
ásakanir Þjóðarhreyfingarinnar til-
hæfulausar. „Málatilbúnaður Ólafs
Hannibalssonar og Þjóðarhreyfing-
arinnar gegn Framsóknarflokknum
er með hreinum ólíkindum. Þeir
skrifuðu margar greinar í kringum
prófkjörið okkar í janúar og héldu
því svo áfram i aðdraganda kosning-
anna,“ segir Björn Ingi.
Að sögn Björns Inga, verðandi
formanni borgarráðs, þá er Þjóðar-
hreyfingin með Ólaf Hannibalsson í
broddi fylkingar, að reyna að finna
nýjar og nýjar ástæður til að sverta
Framsóknarflokkinn og að þessi
kæra sé bara hluti af því.
Konungleg ormstunga heiðruð
1 tilefni af áttatíu og fimm ára afmæli
Hertogans af Edinborg, eiginmanns
Elísabetar Bretadrottningar, kom
út á miðvikudag bókin: Háskalegi
Hertoginn: Fyndni og fleyg orð Fi-
lipusar drottningarmanns. Bókin
er tekin saman af tveim breskum
blaðamönnum, þeim Phil Dampier
og Ashley Walton. Þeir áttu í litlum
erfiðleikum að taka saman efnið því
að í fimmtíu ár hefur drottningar-
maðurinn látið út úr sér óborganleg
ummæli og kreddur um framandi
þjóðir sem hafa bæði vakið al-
menna kátínu og reiði, en prinsinn
verður seint sakaður um að vera illa
haldinn af pólitískri rétthugsun.
Höfundarnir segja Filipus vera
mikilmenni með stórkostlegan
húmor. 1 viðtali við Reuters-frétta-
stofuna tekur Phil Dampier nokkur
dæmi. Árið 1967 var hertoginn
beðinn um að fara til Moskvu til
að hjálpa við að slaka á spennunni
í kalda stríðinu. Hann svaraði að
hann væri svo sannarlega reiðubú-
inn að fara til Moskvu þrátt fyrir
að „skrattakollarnir hafi myrt helm-
inginn af fjölskyldu minn.” Filipus
rekur ættir sínar til Alexöndru keis-
araynju sem var tekin af lífi af bolsé-
vikum í rússnesku byltingunni.
Eitt sinn ávarpaði drottningar-
maðurinn breska námsmenn sem
voru við nám í Kína og varaoi þá við
að þeir yrðu skáeygðir ef þeir dveldu
of lengi í landinu. Þegar hann, átti
hann fund með forseta Nígeríu og
kom forsetinn klæddur kufli að
hætti sanntrúaðra múslima. Þegar
Filipus hafði virt fyrir sér klæðnað-
inn spurði hann forsetann: „Ertu að
fara í háttinn?”
Filipus hefur ekki látið sér nægja
að móðga fólk í öðrum heims-
hlutum. Landsmenn hans eru ekki
óhultir fyrir athugasemdum hans.
Árið 1995 var hann á ferðalagi um
Hertoginn af Edinborg.
Skotland og þar ákvað hann að
blanda geði við almúgann. Hann
spurði meðal annars ökukennara
að því hvernig hann færi að því að
halda Skotum frá flöskunni nægi-
lega lengi til þess að kenna þeim að
keyra.