blaðið - 03.06.2006, Side 8
LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2006 blaöiö
8 i
rtíJUK
expressokanna
Tilvalin brúðargjöf
w/m j
.JS**.
%
Jk
I
V" •'*
Arna Schram, formaöur
Biaðamannafélags (slands.
Fagnar
sýknudómi
Hæstaréttar
Arna Schram, formaður Blaða-
mannafélags fslands, fagnar
sýknudómi Hæstaréttar í máli
Jónínu Benediktsdóttur gegn
365 prentmiðlum og ritstjóra
Fréttablaðsins. „Dómurinn
viðurkennir rétt almennings til
að fá upplýsingar um mál sem
kann að varða hann. Dómur-
inn viðurkennir jafnframt rétt
fjölmiðla til að miðla þeim og
það er mikið fagnaðarefni,“
segir Arna í samtali við Blaðið.
Að sögn Örnu eru sum
mál þess eðlis að þessi réttur
almennings til upplýsinga
er mikilvægari en friðhelgi
einkalífsins.„Það er hins vegar
matsatriði hverju sinni og eitt-
hvað sem fjölmiðlar eru alltaf
að vega og meta,“ segir Arna.
Hæstiréttur staðfesti á mið-
vikudaginn sýknudóm Héraðs-
dóms Reykjavíkur í máli Jónínu
Benediktsdóttur gegn 365 prent-
miðlum og ritstjóra Fréttablaðs-
ins vegna hluta úr tölvupóstum,
sem birtust í blaðinu á síðasta
ári. Dómurinn hafnaði því að
staðfesta lögbann á birtingu
efnis úr tölvupóstunum sem
sýslumaðurinn í Reykjavík setti
á síðasta ári. f úrskurði Hæsta-
réttar kemur fram að lögbanns-
krafan hefði verið of víðtæk og
óákveðin til að staðfesta hana.
Hæstiréttur segir að þó að
Fréttablaðið hafi fjallað um
einkamál Jónínu, svo sem
fjármál hennar, þá séu þau svo
samfléttuð fréttaefninu sjálfu
að ekki verði greint á miíli.
Féllst Hæstiréttur því á að ekki
hefði verið gengið nær einkalífi
Jónínu en óhjálcvæmilegt væri
í opinberri umræðu um mál-
efni sem varðaði almenning.
Meirihlutar myndaöir á
Akureyri og í Árborg
Eyþór Arnalds verður formaður bæjarráðs í Árborg síðustu þrjú ár kjörtímabilsins.
Samkomulag hefur náðst um
mvndun meirihluta á Akureyri og
í Arborg. Samfylkingin og Sjálfstæð-
isflokkurinn munu mynda nýjan
meirihluta á Akureyri, en í Árborg
náðu Sjálfstæðisflokkur og Fram-
sóknarílokkur saman síðdegis í gær.
Sjálfstæðisflokkurinn mun ráða
bæjarstjórastólnum
fyrstu þrjú árin
og er gert ráð
fyrir að
Kristján
Þ ó
Júlí-
us-
son verði áfram bæjarstjóri, í það
minnsta fyrst um sinn. Hermann
Jón Tómasson, oddviti Samfylking-
arinnar á Akureyri, verður formaður
bæjarráðs og mun væntanlega taka
við embætti bæjarstjóra eftir þrjú ár.
Annars er gert ráð fyrir jafnri skipt-
ingu fulltrúa Sjálfstæðisflokks og
Samfylkingarinnar
ráðum og
nefndum.
Krist-
j á n
Þór segir ekkert annað vera í spil-
unum en að hann verði áfram bæj-
arstjóri næstu þrjú árin. Hann tók
þó fram að hann hefði boðið sig
fram sem bæjarstjóraefni Sjálfstæð-
isflokksins fyrir allt kjörtímabilið.
Það gekk hins vegar ekki eftir og
ætti að taka endanlegar ákvarðanir
um hvernig málum yrði háttað.
Hermann segist vera ánægður
með að samkomulag hafi náðst.
„Það þurfti að hafa talsvert fyrir
þessu, en ég er ánægður með að
samkomulagi sé náð. Við munum
taka okkur frí fram yfir helgi og
ganga svo frá málefnasamningi sem
verður síðan lagður fyrir fulltrúaráð
flokkanna," segir Hermann.
Kristján Þór sagðist einnig vera
ánægður með niðurstöðuna og að
það hefðu verið fá mál sem grund-
vallarágreiningur væri um á milli
flokkanna. Gert er ráð fyrir að mál-
efnasamningur liggi fyrir í næstu
viku og að hann verði lagður fyrir
fulltrúaráð flokkanna í kjölfarið.
Sjálfstæðisflokkur náði fjórum
bæjarfulltrúum inn í bæjarstjórn,
en Samfylking þremur. Fljótlega
slitnaði upp úr meirihlutaviðræðum
Samfylkingar, Vinstri-grænna og L-
lista og hófust meirihlutaviðræður
sjálfstæðismanna og samfylkingar-
manna á þriðjudag.
Stefanía bæjarstjóri í Árborg
í Árborg náðu bæjarfulltrúar Fram-
sóknarflokks og Sjálfstæðisflokks
samkomulagi um meirihlutasam-
starf á kjörtímabilinu. Stefanía
Katrín Karlsdóttir, fyrrum rektor
Tækniháskóla íslands, hefur verður
nýr bæjarstjóri í Árborg.
Þorvaldur Guðmundsson, odd-
viti Framsóknarflokksins í Árborg,
mun gegna embætti forseta bæj-
arstjórnar. Sjálfstæðisflokkur fer
með embætti formanns bæjarráðs
og mun Þórunn Jóna Hauksdóttir
gegna embættinu fyrsta starfsárið
en Eyþór Arnalds síðustu þrjú ár
kjörtímabilsins. Flokkarnir nafa
náð samkomulagi um skiptingu
í embætti og nefndir, en málefna-
samningur nýs meirihluta verður
kynntur í næstu viku.
Stefanía skipaði átjánda sæti á
lista sjálfstæðismanna í Reykjavík í
borgarstjórnarkosningunum á laug-
ardaginn. Hún segist hlakka til að
takast á við bæjarstjóraembættið.
„Þetta nýja starf leggst feikilega vel í
mig. Það eru spennandi tímar fram-
undan í Árborg. Hér hefur verið
mikil uppbygging og fólki hefur
fjölgað mikið. Það er mikið fram-
kvæmdatímabil framundan í sveitar-
félaginu Árborg,“ segir Stefanía, en
hún er fjörtíu og tveggja ára og er
viðskiptafræðingur að mennt.
íranir kunna að eignast
kjarnavopn innan 10 ára
John Negroponte, yfirmaður leyniþjónustustofnana Bandaríkjanna telur engan vafa leika
á því að klerkastjórnin í Teheran stefni að því koma sér upp gereyðingavopnum.
Iranir gætu komið sér upp kjarnork- verða fyrir Irana í því skyni að fá þá
unvopnum innan tíu að sögn John
Negroponte, yfirmanns allra leyni-
þjónustustofnana Bandaríkjanna.
Negroponte lét þessi orð falla í við-
tali við breska ríkisútvarpið, BBC.
Negroponte sagði í viðtalinu að
mat hans væri það, að íranir stefndu
að því að eignast gereyðingarvopn.
Ummælin lét hann falla í þann mund
sem fréttir bárust af því að ríkin
sem eiga fastafulltrúa í Öryggisráði
Sameinuðu þjóðanna hefðu náð sam-
komulagi um tillögur sem lagðar
Einstök lÍSt • Gjafabréf
_Verið velkomin! ABBA
( ~>C\W(?n Kirkjustétt2-6
^ 1 ' ' 1 Opið virka daga kl. 13-18,
Graramolt Laugardaga kl. 13 -16
til að falla frá umdeildri kjarnorku-
áætlun sinni. Er þá gert ráð fyrir að
Iranir fái margvíslega aðstoð við að
nýta kjarnorku í borgaralegum til-
gangi gegn því að þeir hætti auðgun
úrans og kjarnorkuendurvinnslu.
Breska ríkisstjórnin lagði áherslu á
að Öryggisráðið myndi grípa til áð-
gerða féllu stjórnvöld í Teheran ekki
frá kjarnorkuáformum sínum.
í viðtalinu við BBC fullyrti Negro-
ponte að engin ríkisstjórn í heimi
hér styddi jafn duglega við bakið á
hryðjuverkamönnum og sú íranska.
Sagði hann að svo virtist sem stjórn-
völd þar í landi væru staðráðin í að
koma sér upp gereyðingarvopnum.
„Vitneskja okkar á þessu sviði er
takmörkuð en við áætlum að á tíma-
skeiði sem nær frá byrjun næsta ára-
tugar til miðs þess næsta kunni þeir
hafa skapað sér þá stöðu að geta
smíðað kjarnorkuvopn, sem vitan-
lega er mikið áhyggjuefni,” sagði
Negroponte.
Hann viðurkenndi að banda-
rískar leyniþjónustustofnanir hefu
gert mistök er þær lögðu mat á
vopnaeign og hernaðargetu íraka
fyrir innrásina í landið en tók fram
að menn hefðu dregið ályktanir af
mistökunum og gripið til aðgerða
til að koma í veg fyrir að þau end-
urtækju sig.
Á fundi sínum í Vínarborg á
fimmtudag náðu fulltrúar Þýska-
lands og ríkjanna fimm sem eiga
fastafulltrúa í Örygggissráðinu
samkomulagi um tillögur til
lausnar kjarnorkudeilunni sem
lagðar verða fyrir stjórnvöld í íran.
Talið er að þær kveði m.a. á um að
Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, á fundinum í Vínarborg.
Reuters
Iranir fái kjarnaofn og að tryggt
verði að þeir hafi jafnan aðgang að
nægu auðguðu úrani. Gegn þessu
á klerkastjórnin að lýsa yfir því
að kjarnorkuáætlunin hafi verið
lögð til hliðar. Tilboði þessu verður
komið á framfæri við írönsk stjórn-
völd á næstu dögum. Svara verður
krafist innan nokkurra vikna.