blaðið - 03.06.2006, Side 12
12 I DEIGLAN
LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2006 bla6iö
Skólavörðustigur í blóma. Hinn árlegi Blómadagur Skólavörðustígsins verður haldinn hátíð-
legur í þriðja skipti í dag. Nú eru liðin þrjú ár síðan Skólavörðustígur var útnefndur„Blómagata
Reykjavíkur" og ætla íbúar við götuna svo sannarlega að standa við þá nafnbót í ár. Hús verða
skreytt á viðeigandi hátt og verslanir verða með blómaskreytingar f gluggum. BloM/SteirmHugi
ÁRBÆJARSAFN
)TT HEIM AÐ SÆKIA
OPIÐ ALLA DAGA í SUMAR FRÁ10-17
Nánari upplýsingar á vefslóðinni
www. minjasafnreykjavikur. is
IMk
Minjasafn Reykjavíkur
ÁRBÆJARSAFN
Eitt sinn skáti - ávallt skáti
Bladiö/SteinarHugi
Almenningi gefst kostur á að taka þátt í hluta dagskrár Vormóts H raunbúa í Krýsuvík
um helgina og segir Inga María Magnúsdóttir rekstrarstjóri Hraunbúa aö dagsráin sé í
senn fjölskylduvæn og skemmtileg. Með Ingu Maríu á myndinni er dóttir hennar Tanja
Dis Magnúsdóttir.
Skátafélagið Hraunbúar í Hafnar-
firði heldur sitt árlega vormót í
Krýsuvík um Hvítasunnuhelgina.
Þetta er í 66. skipti sem mótið er
haldið og er þema þess i ár Aftur
til fortíðar. Að þessu sinni verður
bryddað upp á þeirri nýbreytni að al-
menningi gefst kostur á að koma og
taka þátt í hluta dagskrárinnar með
skátunum. Dagskráin sem er opin
almenningi er framlag Hraunbúa
til lista- og menningarhátíðarinnar
Bjartra daga sem stendur sem hæst í
Hafnarfirði þessa dagana. Hér er því
upplagt tækifæri fyrir þá sem hafa
áhuga á skátastarfi að kynna sér það
auk þess sem gömlum skátum gefst
færi á að endurupplifa gamla tíma.
Inga María Magnúsdóttir rekstrar-
stjóri Hraunbúa, segir að á Björtum
dögum í fyrra hafi skátafélagið boðið
upp á dagskrá fyrir almenning á
Víðistaðatúni í Hafnarfirði. „Okkur
fannst hún hins vegar ekkert sérstak-
iega vel sótt. Nú eru Bjartir dagar á
nákvæmlega sama tíma og við erum
með vormót þannig að okkur fannst
þetta upplagt. Krýsuvík er steinsnar
frá Hafnarfirði. Þetta er aðeins um
20 mínútna keyrsla og margir sem
fara þangað í sunnudags- eða laugar-
dagsbíltúr,“ segir Inga María.
Kassaklifur og hverabrauð
Á vormóti Hraunbúa er alltaf boðið
upp á sérstakar fjölskyldubúðir og
segir Inga María að fólk geti ýmist
tekið þátt í þeirri dagskrá sem sé
þar í boði eða þeirri dagskrá sem
skátarnir taka þátt í. „Fólk getur
líka tekið með sér tjald og ákveðið
að vera allan tímann í fjölskyldubúð-
unum. Ég er til dæmis í fjölskyldu-
búðunum með þrjú börn sem eru
ekki komin á aldur fyrir skátana og
það eru margir sem gera það sem
finnst gaman að fara í svona úti-
legur,“ segir Inga María.
Opna dagskráin verður í boði
bæði í dag, laugardag, og á morgun
sunnudag og er afar fjölbreytt báða
dagana. Fólki gefst meðal annars
kostur á að taka þátt í vatnasafaríi,
útileikjum og kassaklifri og getur
sótt námskeið í gifsbrúðugerð, hvera-
brauðsbakstri og áttavitanotkun svo
fátt eitt sé nefnt. Inga María segir að
fólk geti valið sér dagskrárliði eftir
áhuga en afar mikilvægt sé að tíma-
setningar standist og hvetur hún því
alla sem hafa áhuga á að taka þátt
til að kynna sér þær. Hægt er að sjá
dagskrána í heild sinni og tímasetn-
ingar á vef Hraunbúa: hraunbuar.
is/vormot.
Gritl og kvöldvaka
„Við verðum síðan með heitt grill
þegar kemur að kvöldverðartíma
ef fólk vill koma með mat og með-
læti og það getur sest að snæðingi
við borð og bekki í tjaldi,“ segir
Inga María og bætir við að dagskrá
laugardags ljúki með kvöldvöku en
sunnudagsins með tónleikum.
„Dagskráin er mjög fjölskylduvæn
og skemmtileg og það er ekkert
þar sem ætti að vera fráhrindandi
fyrir neinn. Fullorðna fólkið getur
sest niður og fengið sér kaffibolla
á meðan krakkarnir hlaupa um og
gera eitthvað skemmtilegt. Ég vona
að sem flestir mæti og komi með
góða skapið og grillmatinn og op-
inn huga,“ segir Inga María Magnús-
dóttir að lokum.
Opna dagskráin hefst kl. 14 í dag
og kl. 13:30 á morgun. Frítt er fyrir
börn yngri en niu ára en aðrir greiða
500 kr. Gjaldið gildir hvort sem fólk
verður annan daginn eða báða.
BÍLAFJARMÖGNUN
SNIÐIN AÐ ÞÍNUM ÞÖRFUM
Glitnir Fjármögnun býður fjölbreytta
kosti við fjármögnun bíla og atvinnutækja.
Eigð’ann Leigð’ann
Eignastu bílinn
með hjálp Glitnis
• Bílalán
• Bílasamningur
Greiddu aðeins
fyrir afnot af bílnum
• Einkaleiga
• Rekstrarleiga
Hafðu samband í síma 440 4400 eða
kynntu þér málið á www.glitnirfjarmognun.is
GLITNIR
FJÁRMÖGNUN