blaðið - 03.06.2006, Page 14
blaðið-----------------------------------------
Útgáfufélag: Ár og dagur ehf.
Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson.
Ritstjóri: Ásgeir Sverrisson.
Fréttastjórar: Aðalbjörn Sigurðsson og Erna Kaaber.
VALDMÖRK FJÖLMIÐLA
Fjölmiðlarnir gegna mikilvægu hlutverki við upplýsingu þjóðar-
innar, þeir geta verið mótvægi við ráðandi öfl eða viðtekin viðhorf
og jafnvel gegnt óbeinu eftirlitshlutverki gagnvart stjórnvöldum
jafnt sem viðskiptaveldum. Rétt eins og þeir geta orðið handbendi þeirra.
Af þessum ástæðum hafa sumir talað um fjölmiðla sem fjórða valdið, að
þeir hafi tilteknu hlutverki að gegna í lýðræðisþjóðfélagi, sem beri að verja
og hlúa að með svipuðum hætti og hinar þrjár greinar ríkisvaldsins. Þetta
kom sjálfsagt skýrast fram í máli forseta Islands, þegar hann synjaði fjöl-
miðlalögum staðfestingar fyrir tveimur árum og degi betur.
Öllum völdum verður að fylgja ábyrgð og því er von að menn spyrji hvar
ábyrgð fjölmiðla liggi. Eftir því sem fjölmiðlar hafa orðið ágengari hafa
skilin milli einkalífs og opinberrar umfjöllunar orðið óskýrari og í nafni
eftirlitshlutverks þeirra er rannsóknarblaðamennska vegsömuð og verð-
launuð. Slík eftirgrennslan fjölmiðla er snar og sjálfsagður þáttur í starfi
þeirra og að því leyti eru þeir eins konar greiningardeildir almennings.
En eiga engin bönd að vera þar á? Rannsóknarvaldi hins opinbera eru
skorður settar; það getur ekki farið fram af geðþótta, ruðst inn á heimili
borganna án dómsúrskurðar eða dæmt þá án málsvarnar og réttlátrar
málsmeðferðar.
Samkvæmt nýföllnum dómi Hæstaréttar bregður hins vegar svo við að
fjölmiðlar - fjórða valdið - virðist nánast hömlulausir í framgöngu sinni,
svo framarlega sem þeir geta sýnt fram á að fréttirnar varði almenning. Er
viðunandi að fjölmiðlar megi taka við því sem aðrir eiga, halda því án þess
að gera eigendunum viðvart og gera sér svo mat úr? Að því einu tilskildu
að úr komi fréttir, sem á einhvern hátt varða almenning? Hvað er því til
fyrirstöðu að þeir geri næst út innbrotsþjóf til þess að ná í nauðsynlegar
fjölskyldumyndir eða komi fyrir hlerunarbúnaði í hjónaherberginu ef ske
kynni að þar yrði eitthvað sagt yfir koddann, sem varðaði þjóðarhag?
Taka má annað dæmi og öfgalausara: Blaðaljósmyndarar þurfa oft að
hafa hraðann á til þess að ná myndum af atburðum, sem tvímælalaust eiga
erindi við almenning. En dettur einhverjum í hug að þeir eigi að vera und-
anþegnir hraðatakmörkunum eða sektum ef fréttin er nógu mikilvæg?
Vitaskuld er Hæstiréttur á villigötum í þessum dómi og raunar með
ólíkindum að dómstólar skuli með þessum hætti gefa fjölmiðlum víð-
tækt vald til þess að rjúfa friðhelgi einkalífsins eftir því, sem þeim þykir
henta forsíðu dagsins. Jafnbrýnt og erindi fjölmiðla getur verið, verða
þeir að virða lögin líkt og allir aðrir, en sæta viðurlögum ella.
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn & auglýsingar Hádegismóum 2,110 Reykjavík.
Aðalsími: 510 3700. Símbréf á fréttadeild: 510.3701. Símbréf á auglýsingadeild: 510.3711.
Netföng: vbl@vbl.is, frettir@vbl.is, auglysingar@vbl.!s.
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dreifing: íslandspóstur.
Árangur fer eftir gæðum
Hvaða Spirulina ert þú að taka?
29 vítamín og steinefni • 18 aminósýrur • Blaðgræna • Omega
■ GLA fitusýrur • SOD eitt öflugasta andoxunarensím líkamans
Eingöngu lifræn næringarefni tryggja betri upptöku og nýtingu i líkamanum.
Greinilegur árangur eftir
nokkra daga inntöku
Aukið úthald,
þrek og betri líðan
Súrefnistæmdar umbúðir
vernda næringarefnin.
Lifestream þörungarnir eru ómengaðir,
ræktaðir i ferskvatni eftir ströngum
gæðastaöli. IS09001 • IS014001
Fæst í öllum apótekum. <^naðurlifandi
www.celsus.is
14 I ÁLIT
LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2006 blaöið
ÓLHTUk MiNiV. HMN WffiNG»i
þESSi PJÓRN ÍA/GÍ 09 Svvfoi
HWtr >ó fwM
j HÁT’E'GiSHLÉí
Forsætisráðherra í afneitun
Hinn ágæti jafnaðarmannaleiðtogi
Jón Baldvin Hannibalsson sagði eitt
sinn að pólitík væri ekki sunnudaga-
skóli. Forsætisráðherra landsins,
Halldór Ásgrímsson, er þaulreyndur
í pólitík en virðist þó hafa átt í erfið-
leikum með að gera sér grein fyrir
þessari köldu staðreynd. Þegar mót-
lætið dynur á honum er eins og öll
vopn hafi verið slegin úr höndum
hans. Hann stendur eftir berskjald-
aður og sér óvinina streyma að úr
öllum áttum.
Versti greiðinn
Helst er á Halldóri Ásgrímssyni að
skilja að víðtækt samsæri sé í gangi
gegn honum og flokki hans og hafi
verið í langan tíma. Höfuðóvinur-
inn mun vera Sjálfstæðisflokkur-
inn, stóri samstarfsflokkurinn sem
einmitt gerði Halldór Ásgrímsson
að forsætisráðherra. Sennilega er
þessi versti greiði sem Framsóknar-
flokknum hefur nokkru sinni verið
gerður. Illkvittnar sálir munu vafa-
laust halda því fram að Sjálfstæð-
isflokkurinn hafi vitað nákvæm-
lega hvað hann var að gera. Þarna
hafi menn verið að starfa eins og
framsýnir mafíósar en sú tegund
manna hefur vist fyrir sið að klappa
mönnum, sem þeir hyggjast svíkja,
á öxlina og bjóða þeim í bíltúr. Sá
sem stígur upp í þann vagn kemur
yfirleitt ekki til baka. Ekki ætla ég
kinka kolli við þessari kenningu.
Það getur vel verið að Sjálfstæðis-
flokknum hafi ekki gengið gott
eitt til þegar hann gerði Halldór að
forsætisráðherra en ef nægt stöff
hefði verið í Halldóri þá hefði hann
getað komið refunum í Sjálfstæðis-
flokknum á óvart og glansað sem for-
sætisráðherra. Nokkuð sem honum
tókst því miður ekki.
Of mikið af já-mönnum?
Forsætisráðherra virðist ekki ein-
ungis beina ofsóknaraugum að Sjálf-
stæðisflokki. Hann virðist telja sam-
særið svo víðtækt að innan hans
eigin flokks séu svikarar. Menn sem
hafi það helsta markmið að bregða
Kolbrún Bergþórsdóttir
fyrir hann fæti og setji sig því upp
á móti öllum gjörðum formannsins.
Þetta er gamla formúlan: Sá sem er
ekki með mér er á móti mér.
Ég held reyndar að það sé í eðli
formanna að vilja hafa já-menn í
kringum sig. Sennilega eru það þó
já-mennirnir sem vinna enn meiri
skaða en andstæðingarnir. Þeir ýta
undir óskhyggju formanna sinna og
eiga því sinn þátt í að ræna þá raun-
veruleikaskyni sem verður til þess
að þeir glata því sem er þeim hvað
mikilvægast, sem er stöðumat.
Ef víðtækt samsæri er í gangi gegn
Framsóknarflokknum þá eru kjós-
endur landsins greinilega flæktir í
það. Framsóknarflokkurinn beið af-
hroð í sveitarstjórnarkosningunum
og nú stefnir allt í grimma endur-
tekningu að ári.
Smitandi taugaveiklun
Halldór Ásgrímsson er í vanda.
Hann er rúinn trausti þjóðarinnar
og hans eigin flokksmenn hafa snú-
ist gegn honum. Ráð hans var að
skrifa bréf til flokksmanna þar sem
hann segir flokkinn verða fyrir stöð-
ugum árásum. Mér finnst einhvern
veginn að Halldór hefði átt að hafa
að kjörorði í erfiðleikum sínum hið
gamla og góða huggunarráð: „Það er
þó alltaf búningsbót að bera sig karl-
mannlega." Það gerði fyrrverandi
aðstoðarmaður hans, Björn Ingi, í
kosningabaráttunni og bjargaði
með því pólitísku lífi sínu.
Framsóknarmenn virðast því
miður ekki vera taugasterkir menn.
Samráðherrar formannsins og þing-
menn eru orðnir smitaðir af tauga-
veiklun og hafa hafið sama söng
og Halldór Ásgrímsson. Kannski
finnst þeim að þeir verði að fylgja
formanni sínum síðasta spölinn. Því
vitaskuld verður Halldór að stíga af
formannsstóli.
Höfundur er blaðamaður
Klippt & skoríð
klipptogskorid@vbl.is
Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra,
segir þögn Össurar Skarphéðins-
sonar um úrslit sveitarstjórnarkosn-
inganna sæta tíðindum. Björn
segir á vefsíðu sinni: „Glöggur
vefsíðulesandi vakti athygli
mína á því, að Össur Skarphéð-
insson hefði ekki sagt eitt auka-
tekið orð um sveitarstjórnar-
kosningarnar, eftir að úrslitin lágu fyrir. Þögn
hans á vefsíðu sinni er líklega virðingarvottur
við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur og for-
mannstíð hennar. Nema honum hafi brugðið
svona mikið við úrslitin, að hann treysti sér alls
ekki til að tjá sig um þau - kallar Össur þó ekki
allt ömmu sina í þeim efnum."
Hjálmar Árnason, þingmaður Fram-
sóknarflokksins, fjallar einnig um
úrslit kosninganna á vefsfðu sinni
og vandar vinstri-grænum ekki kveðjurnar.
Vinstri grænir hömuðust alla kosningabarátt-
una með Framsókn sem höfuðóvin. Og halda
áfram eftir kosningar. Hatur þeirra á okkur
Framsóknarmönnum er orðið slíkt að þeir hlífa
íhaldinu svo dyggilega að jaðrar við ást. Þannig
hlýtur Valhöll að hafa þegar sent VG blómvendi í
þakklætisskyni fyrir dyggan stuðning við fhaldið.
í Hveragerði völdu VG að kljúfa samstöðu fé-
lagshyggjuflokka með þeim afleiöingum að
Sjálfstæðisflokkurinn fékk þar hreinan meiri-
hluta. Með dyggum stuðningi VG. Sama gerðu
þeir í Reykjanesbæ með þeim afleiðingum
að íhaldið bætti við sig manni.
Vinstri grænir voru á einum
stað með áhrif og völd á síð-
asta kjörtímabili - nefnilega
( Skagafirði. Verðlaun þeirra
voru að tapa um helmingi atkvæða sinna!
Á þeim eina stað sem þeir voru við völd.
Og ekki skulum við gleyma stærsta afreki VG
- nefnilega þvf að sprengja R-listann og leggja
þar með grunn að stórsigri Sjálfstæðisflokksins."
Og enn um úrslit kosninganna. Óskar
Bergsson, sem var annar maður á li-
sta Framsóknarflokks-
ins i Reykjavík, skrifar grein (
Fréttablaðiðáfimmtudag.Óskar
kemst m.a. að þeirri niðurstöðu
að Framsóknarflokkurinn sé sig
urvegari borgarstjórnarkosning
anna! Rökin eru þau að Framsóknarflokkurinn
hafi einn flokka tryggt sér áframhaldandi völd í
höfuðborginni. Glöggir lesendur muna ef til vill
að enginn flokkur fékk færri atkvæði í Reykja-
vík en Framsóknarfiokkurinn. Skilningur Ósk-
ars Bergssonar á lýðræðinu er athyglisverður.
Einhverjir hefðu kannski haldið að fylgi væri
mælikvarði á sigur í lýðræðisþjóðfélagi.