blaðið - 03.06.2006, Qupperneq 18
18 I VERÖLDIW
LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2006 blaöiö
Á söguslóðum stríðsins
Tækifæri í rannsóknum á sviði matvæla- og næringarfræði hérlendis eru gríðarlega mikil, bæði vegna þess
að ísland er matvælaframleiðsluland og vegna alþjóðavæðingarinnar sem ekki síst snertir matvælaiðnað
og -löggjöf. Áhugi almennings eða neytandans á góðri næringu er einnig alþjóðlegur og kallar á matvæla-
og næringarfræðinga til margra starfa. Fiskiðnaður og annar matvælaiðnaður mun á næstu árum byggja
afkomu sína á rannsóknum og þróun til að auka verðmæti afurða sinna. í rannsóknum á sviði
næringarfræði er sérstaða íslands hvað varðar næringargildi ákveðinna fæðutegunda og fæðuvenjur mjög
ahugavert rannsóknarefni sem er enn sem komið er vannýtt auðlind.
UMSOKIMARFRESTUR ER TIL 6. JUIMI
Upplýsingar veitir
Ingibjörg Gunnarsdóttir
í síma 543 8416 eða 843 8410
http://www.raunvisindi.hi.is/page/matvskor
.<.«$ 17*4-
HÁSKÓLI ÍSLANDS
'í>/ >y-í'- R a u n v í s i n d a d e i I d
FERÐASAGA
BRYNDÍSAR
XIII. KAFLI
Yinir okkar í Króatíu kvöddu
okkur með velútilátnum hádegis-
verði á veitingastað, sem ein-
göngu bauð upp á þjóðlega rétti
að hætti ömmu. Enda hét staður-
inn “Heima hjá ömmu”. Ekki er
að furða, þótt Króötum sé vel í
skinn komið og að þeir þyki góðir
íþróttamenn, ef amma hefur alið
þá upp á svona kjarngóðu fæði.
En mikið hefur búskaparlag og
mataræði Króata verið ólíkt því,
sem tíðkaðist handan Adríahafs-
ins meðal ítala. Svona er Evrópa
sundurleit. Hvort er það meira
sem sameinar eða sundrar?
Leiðin lá frá Zagreb til Belgrad.
Vegalengdin er um fjögur hundruð
kílómetrar, eða svipuð og frá Reykja-
vík til Akureyrar. Hraðbrautir Balk-
anskagans, sem Evrópusambandið
fjármagnar af örlæti úr byggða-
sjóðum sínum, bera óneitanlega af
íslenska vegakerfinu. Ég reiknaði
með að fara þetta á þremur tímum.
En ég reiknaði ekki með því, að
þótt vegalengdin væri stutt, er fjar-
lægðin milli Króata og Serba löng.
Báðir telja sig eiga harma að hefna
eftir grimmileg átök borgarastyrj-
aldar, sem skildi eftir sig svöðusár
og ýfði upp ógrónar menjar liðinnar
sögu. Við fengum forsmekkinn
af þessu strax á hraðbrautinni. í
Zagreb höfðum við reynt án árang-
urs að skipta koonum í dinara. Svo
vissum við ekki, að Serbar höfðu
reist tollbúðir á hraðbrautinni á ca.
hundrað kílómetra fresti og heimt-
uðu veggjöld og engar refjar. Þegar
við réttum þeim koonarana okkar
frá Króatíu brugðust þeir ókvæða
við: dinara eða dollara - annars
komist þið hvergi. Visakortið dugði
ekki. Jón Baldvin brá á það ráð að
þykjast vera í sendinefnd Ahtisaa-
ris að semja við Belgrad um framtíð
Kosovo og hótaði þeim öllu illu, sem
tefðu för. Þetta gekk nema í seinasta
skiptið, þegar mín kvenlega mildi
dugði betur. Ég bara grét mig í gegn!
Alla vega brutumst við gegnum víg-
girðingar Serba - ókeypis!
En um nóttina náðu Serbar fram
grimmilegum hefndum. Við leit-
uðum náttstaðar undir myrkur í
útjaðri Belgrad. Hótelið hét hinu
háleita nafni National, en hlýtur
að hafa verið félagsheimili komm-
únistaflokksins fyrr á tíð, þar sem
neonljósin vörpuðu bleikri skímu
á smekkleysið og niðurníðsluna.
Það var að vísu bót í máli, að þetta
kommúníska farfuglaheimili var
hræbillegt.
Grískur harmleikur
Örlög Serba eftir upplausn sam-
bandsríkisins Júgóslavíu eru í ætt
við grískan harmleik. Serbar eru
stolt þjóð og stærilát og miklast af
sögu sinni. En þetta er sagan um
örlagaríkan ósigur fyrir Tyrkjum (á
vígvöllum í Kosovo á 14. öld), ítrek-
uðum uppreisnartilraunum og end-
urteknum ósigrum fyrir ofureflinu.
Þetta er saga um píslarvætti, hetju-
lund, blóðfórnir og beiska ósigra. Óg
hefur sett mark sitt á hugarfar þjóð-
arinnar til dagsins í dag.
Eftir dauða Titos benti flest fljót-
lega til þess, að Júgóslavíu yrði ekki
haldið saman nema með ofbeldi.
Stjórn sambandsríkisins í Belgrad
Mikil uppbygging hefur farið fram í kjölfar stríðsins í Sarajevó.
ýtti ómeðvitað undir þá þróun með
vaxandi ofríki gagnvart öðrum lýð-
veldum sambandsríkisins. Slóvenar
riðu á vaðið og lýstu yfir sjálfstæði.
Króatar kváðu upp úr um hið sama
og síðan hvert sjálfstjórnarlýðveldið
á fætur öðru - Bosnía-Herzegóvína,
Makedónía og nú síðast Monte-
negro-Svartfjallaland. Þrátt fyrir
allt ofbeldið og ódæðisverkin er
ekkert eftir nema ofvaxin höfuð-
borg hinnar eiginlegu Serbíu. Meira
Nám við matvæla- og næringarfræðiskor
Fjölbreytt nám sem býður upp á mikla möguleika
að segja Kosovo, sem nú er að 9/10
hlutum byggð Albönum mun rífa
sig lausa og mynda sjálfstætt ríki
einn góðan veðurdag.
Þetta blóðuga ofbeldi gerðist í ná-
vígi fólks, sem hafði búið hlið við
hlið, í þorpum og sveitum þessa
stórbrotna lands. Ofbeldið nærði
hatrið, og trúin réttlætti það. Serbar
tilheyra grísku rétttrúnaðarkirkj-
unni; Króatar eru kaþólikkar og Bo-
sníumenn múslimar. Þetta reyndist
vera forskrift fyrir fjöldamorðum.
Þegar fokið var í flest skjól fyrir
Serbum í stríðinu, reyndi Milosevic
“the final solution” að hætti Hitlers,
það er brottrekstur allra Kosóvóal-
bana úr landi að viðlögðum dauða
og tortímingu ella. Milosevic hélt
hann kæmist upp með þetta, af því
að í borgarastyrjöld Serba, Króata
og Bosníumuslima á árum áður
höfðu Sameinuðu þjóðirnar orðið
berar að þvílíkum aumingjaskap,
að það verður þeim til ævarandi
• skammar. Hámark aumingjaskapar-
ins var, þegar hollenskar friðargæslu-
sveitir, sem höfðu lofað fólki í útrým-
ingarhættu öruggu athvarfi (safe
havens), og það streymdi þangað
tugþúsundum saman í von um grið,
en var skotið ofan í fjöldagrafirnar
að hollenskum hersveitum ásjáandi.
Hollensku herforingjarnir sögðust
því miður ekki hafa umboð til að
fyrirbyggja fjöldamorð. Sarajevo og
Srbrbrenika eru nýir smánarblettir í
sögu Evrópu. Evrópumenn verða að
horfast í augu við þá staðreynd að það
þurfti ameríska íhlutun undir hatti
NATO til að stöðva fjöldamorðin í
þeirra eigin bakgarði. Skyldi Evrópa
hafa lært lexíuna sína?
Kommúnistinn, Króatinn og skæruliðaforinginn Tito sem hélt lokinu i suðupottinum í
Júgóslavíu.
Grunnnám við matvæla- og næringarfræðiskor er þriggja ára háskólanám sem lýkur með B.S. gráðu og
löggiltu starfsheiti matvælafræðings. Til að öðlast starfsréttindi sem næringarfræðingur þarf viðkomandi
að Ijúka rannsóknatengdu framhaldsnámi i næringarfræði, til meistara- (M.S.) eða doktorsgráðu. Boðið er
upp á tveggja ára rannsóknatengt meistaranám í matvælavinnslu, matvælaverkfræði, matvælaefnafræði
og matvælalíftækní, auk næringarfræðinnar. Doktorsnám í sömu greinum stendur einnig til boða. Algengt
er að hluti meistara- og doktorsnámsins fari fram við erlendan háskóla.