blaðið - 03.06.2006, Page 21

blaðið - 03.06.2006, Page 21
Nýi sjávarútvegurinn ÞÚ REKST Á FYRRUM NEMENDUR OKKAR Á ÓLÍKLEGUSTU STÖÐUM. Störf í sjávarútvegi eru mun fjöl- breyttari en fólk gerir sér almennt grein fyrir. Greinin hefur breyst mikió á undanförnum árum og mikil eftirspurn er eftir fólki með þekkingu á sjávarútvegi til starfa á alþjóðlegum vettvangi. Ársæll K. Ársælsson útskrifaðist úr sjávarútvegsfræði frá Háskólanum á Akureyri árið 1997: „Ég starfa sem verkefnisstjóri hjá Þróunarsamvinnustofnun íslands í Malawi. Verkefnið sem ég stýri felst í því að þróa þúnaó sem auðveldar smáþátasjómönnum að fara lengra út á Malawivatn, en þar er að finna van- nýtta fiskistofna. Verkefnið er viða- mikió og fjölþætt og þarf ég að setja mig inn í mál sem varóa alla þætti þess. Þar kemur menntun mín sem sjávarútvegsfræðingur svo sannarlega að góðum notum.” Nám í sjávarútvegsfræði við Háskólann á Akureyri er ekki einungis góður grunnur fyrir störf í sjávarútvegi því útskrifaðir nemendur eru eftirsóttir starfskraftar, m.a. hjá fjármálastofnunum, útflutningsfyrirtækjum og víðar. Ársæll K.Ársælsson i ik Malawi „Eg þarf að setja mig inn i alla þætti þessa viðamikla verkefnis. „Verkefnið sem ég stýri felst í því að þróa búnað sem auðveldar smábátasjómönnum að fara lengra út á Malawivatn, en þar er að finna vannýtta fiskistofna." Kynntu þer málið: » www.nyisjavarutvegurinn.is Q VÍSIR HBGRANDI Háskólinn á Akureyri: www.unak.is

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.