blaðið - 03.06.2006, Síða 24
24 I SAGA
LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2006 blaöið
Hin svarta Venus
Bandaríska söng- og leikkonan
Josephine Baker hefði orðið
hundrað ára í dag hefði henni
enst aldur til. Freda Josephine
McDonald (síðar Baker) fæddist í
St. Louis í Missouri-ríki í Banda-
ríkjunum og var aðeins átta ára
þegar hún kom fyrst fram opin-
berlega. Sextán ára gömul gekk
hún til liðs við farandleikflokka
og ferðaðist með þeim víða um
Bandaríkin. Eftir að hafa unnið
fyrir sér um tíma sem dansari á
Broadway hélt hún til Parísar árið
192; þar sem hennar beið frægð
og frami.
Fékk 1500 bónorð
I París tók Baker þátt í kabarett-
sýningunni La Revue négre sem
átti eftir að valda straumhvörfum
í ferli hennar. Sýningin þótti í senn
djörf og framandi og í henni kom
Baker fram klæðalítil og heillaði
áhorfendur upp úr skónum með
óheflaðri framkomu. Segja má að
Josephine Baker hafi slegið í gegn á
einni nóttu í París og allt í einu var
þessi dóttir skúringarkonu frá Suð-
urríkjum Bandaríkjanna komin í
hóp ríka og fræga fólksins í Frakk-
landi. Baker fékk fljótt viðurnefni
á borð við „hin svarta Venus“ og
.Svarta perlan" og sagan segir að
hún hafi fengið um það bil 1500
bónorð um ævina auk ótal gjafa
frá aðdáendum.
Dans í bananapilsi
Josephine Baker varð holdger-
vingur djassaldarinnar í hugum
Frægt veggspjald af Josephine Baker í
bananapilsinu góða sem hún skartaði I
kabarettsýningunni La Folie du jour.
Frakka og kynnti þá fyrir banda-
rískri menningu á tímabili sem
margir Frakkar litu á Bandaríkja-
menn sem heldur menningar-
snauða þjóð.
Eftir að sýningum á La Revue
négre lauk tók Baker að sér aðal-
hlutverkið í sýningunni La Folie
du jour í Follies-Bergére leikhús-
inu í París. Sviðsframkoma Baker
í þeirri sýningu þótti ekki síðri en
í La Revue négre en þar steig hún
meðal annars villtan dans í ban-
anapilsi einu klæða.
Josephine Baker var ásamt
Gloriu Swanson og Mariu Pickford
ein mest ljósmyndaða kona í heimi
og um tíma var hún hæstlaunað-
asti skemmtikraftur í Evrópu. Eins
og sannri stjörnu sæmir eyddi hún
peningum sínum í lífsins lysti-
semdir svo sem skartgripi, tísku-
föt og gæludýr. Baker var mikill
dýravinur og átti meðal annars
hlébarða, simpansa, svín, snák,
geit, páfagauk, fiska, þrjá ketti og
sjö hunda.
Stríðshetjan Josephine Baker
Snemma á fjórða áratugnum lék
hún í tveimur kvikmyndum Zou-
Zou og Princess Tam-Tam en þegar
hún sneri aftur til heimalands
síns árið 1936 til að taka þátt í sýn-
ingum þar var henni illa tekið af
gagnrýnendum og almenningi. I
seinni heimsstyrjöldinni tók hún
þátt í starfi frönsku andspyrnu-
hreyfingarinnar og franska hers-
ins og hlaut viðurkenningu fyrir
framlag sitt í stríðslok. Á sjötta og
sjöunda áratugnum ferðaðist hún
nokkrum sinnum til heimalands
síns og lét til sín taka í mannrétt-
indabaráttu blökkumanna. Hún
neitaði að koma fram í leikhúsum
þar sem kynþáttaaðskilnaður var
við lýði og tók þátt í fjöldafundum
og samkomum.
Þrátt fyrir að hafa fengið um
1500 bónorð um ævina giftist Josep-
hine Baker aðeins fjórum sinnum.
Sjálf eignaðist hún ekki börn en
ættleiddi 12 börn af ýmsum þjóð-
ernum. Með því vildi hún sýna
fram á að börn af mismunandi kyn-
þáttum og þjóðernum gætu lifað og
búið saman. Josephine Baker lést í
París þann 12. apríl árið 1975 og var
borin til grafar í Mónakó.
Josephine Baker þótti óvenju glæsileg kona á sinni tíð og heillaði margan manninn með
óheftri og eggjandi sviðsframkomu sinni. Sagan segir að hún hafi fengið um 1500 bón-
orð um ævina en hún giftist þó aðeins fjórum sinnum.
Bandaríski rithöfundurinn Gertrude Stein ásamt ástkonu sinni Alice B.Toklas í augum
samlanda þeirra Ijósmyndarans Man Ray. Þau þrjú voru í hópi fjölmargra bandarískra
listamanna sem yfirgáfu Bandaríkin og settust að í París á millistríðsárunum.
Útlagar í París
Josephine Baker var ein af
mörgum bandarískum lista-
mönnum sem yfirgáfu heima-
land sitt og settust að í París á
millistríðsárunum. í raun laðaði
borgin til sín listamenn hvaðan-
æva að enda var hún á þessum
árum miðstöð menningar og
lista þar sem helstu straumar
og stefnur í ólíkum listgreinum
komu fram og þróuðust.
Týnda kynslóðin
Margir þeirra listamanna sem
fluttu til Parísar á þriðja ára-
tugnum tilheyrðu týndu kynslóð-
inni svo kölluðu en með henni var
einkum átt við unga menn sem
höfðu kynnst af eigin raun hörm-
ungum fyrri heimsstyrjaldarinnar
á vígvöllunum í Evrópu. í mörgum
tilfellum var um að ræða sjálfskip-
aða útlaga sem yfirgáfu föðurland
sitt af pólitískum ástæðum eða til
að víkka sjóndeildarhringinn. Eftir
hrunið í kauphöllinni í New York
árið 1929 og heimskreppuna sem
skall á í kjölfarið dró úr straumi
bandarískra listamanna til borg-
arinnar við Signu og sumir þeirra
sem fyrir voru snéru aftur heim.
Bandarískir myndlistarmenn og
ljósmyndarar á horð við Berenice
Ábbott og Man Ray dvöldu í París á
þessum tíma og nutu góðs af þeirri
gerjun sem þar átti sér stað um leið
og þeir auðguðu sjálfir listalífið í
borginni. Samlandar þeirra úr
hópi skálda og rithöfunda hreiðr-
uðu einnig um sig í borginni, þar á
meðal F. Scott Fitzgerald, Gertrude
Stein og Ernest Hemmingway sem
fjallaði um Parísarár sín í bókinni
A Moveable Feast sem Halldór Lax-
ness þýddi síðar á íslensku undir
heitinu Veisla í farangrinum.
Lifandi djasssena
Á þessum tíma naut jafnframt
bandarisk dægurmenning, ekki
síst djasstónlist, nokkurar liylli
meðal vissra hópa Parísarbúa.
Djassinn dunaði i hverfum lista-
manna og bóhema í Montmartre og
á kaffihúsum og klúbbum í Mont-
parnasse. Margir hörundsdökkir
djasstónlistarmenn frá Bandaríkj-
unum sóttu því til borgarinnar
og auðguðu djasssenu hennar enn
frekar. Sumir settust jafnvel þar
að til langframa enda voru þeir
lausir undan oki kynþáttahyggju
sem þeir höfðu fundið fyrir sums
staðar í heimalandinu. Auk Jos-
ephine Baker voru í þessum hópi
ekki ómerkari tónlistarmenn en
Bill Coleman, Sidney Bechet, Ada
Smith, Coleman Hawkins og Benny
Carter.