blaðið - 03.06.2006, Blaðsíða 30
30 I TILVERAN
LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2006 blaöið
Subbugangurinn talinn sjálísagður
Það er deginum ljósara að margt, sem áður taldist siðferðilega
rangt, þykir nú 1 hæsta máta eðlilegt og fátt virðist stinga í stúf
við hið svokallaða norm. Hér á ég sérstaklega við ástarsambönd
tveggja einstaklinga sem mörg eru farin að vera ansi dularfull,
svo ekki sé meira sagt. Þetta fékk ég staðfest á dögunum eftir
langar og innihaldsríkar samræður við gamlan kunningja eitt
kvöldið. Eins og gengur fórum við að tala um gamla vini og
spurðum hvort annað spjörunum úr varðandi hinn og þennan
sem við sameiginlega þekkjum frá árum áður. Talið barst að
manni sem hefur vanvirt konuna sína í langan tíma, haldið fram-
hjá henni og gert henni lífið leitt í mörg ár. Ég hneykslaðist alveg
upp úr öllu valdi við fréttir af þessum kunningja mínum þegar
hann sagði mér að parið væri í svipuðum sporum í dag og spurði
hvort það væri eitthvað mikið að fíflinu! Svarið var á þessa leið:
,Já, en common - hann er samt búinn að vera þvílíkt nice við
hana í alveg nokkra mánuði núna, búinn að minnka dópið og er
allt annar maður.“ Miðað við þessa athugasemd kunningja míns
er subbulega himpigimpið orðið hinn mesti sómamaður þar sem
að honum hefur „tekist að vera nice“ við kærustuna í „nokkra
mánuði“. Maður neyðist nú bara til þess að klappa fyrir honum
þessum. Spurning hvort hann verði ekki bara kallaður til fyrir
næstu fálkaorðu í tilefni dugnaðarins...
Ekkert lát á vitleysisgangnum
Síðar þetta sama kvöld hitti ég annan kunningja minn sem ætl-
aði að gera hosur sínar grænar fyrir mér. Sá hinn sami hefur
átt konu í nokkur ár svo að ég auðvitað stoppaði hann af til
þess að vekja athygli á meintum drusluskap. Hann svaraði
um hæl að þetta væri í himnasta lagi og tók stoltur fram að
honum hefði nú tekist að halda sig fjarri framhjáhaldinu í 5
ár. Hann sum sé prísaði sig sælan með þetta gífurlega afrek
sitt og fannst hann svo sannarlega geta barið sér á brjóst fyrir
mikilmennskuna. Nú var sko kominn tími til að bæta upp
fyrir prestalífið og þennan ótrúlega trúnað við konuna með
því að hasla sér völl hjá einni tilkippilegri! Ég veit ekki hvort
hann var að leita eftir hamingjuóskum frá mér fyrir þennan
merka áfanga - framhjáhaldsleysi í heil fimm ár, en ég náttúr-
lega sagði honum til syndanna og neitaði að taka þátt í þessu
bulli. Bætti hann þá við (sér til framdráttar, eða þannig) að
í öll skiptin sem hann hafði haldið framhjá hefði verið nóg
fyrir hann að setja upp kórdrengjasvipinn smeðjulega til þess
að fá fyrirgefningu syndanna hjá konunni. Honum fannst því
ekkert eðlilegra en að gera sig líklegan til snúnings í þetta
skiptið...
Ég veit ekki hvort ég sé svona ferlega gamaldags en ég bara
vissi ekki að framhjáhald og önnur illindi við makann væru
svona „inn“ í dag. Én kannski er þetta bara að breytast. Það
er aldrei að vita nema við verðum bráðum komin á þann
tímapunkt í tilverunni þar sem allir eru með öllum og báðir
makarnir sækja í sífellu út fyrir heimilið. Maður spyr sig.
Það er allavega gott að vita hvernig tíðarandinn er orðinn
- þá getur maður allavega komið fram við makann eftir hent-
ugleika í framtíðinni og afsakað framhjáhald með því að
gefa viðkomandi einn ís eða svo!
halldora@bladid.net
HEIMAVÖRN SECURITAS - ÖRYGGISKERFI FYRIR HEIMILIÐ
Slátniuélamarkaðurinn
Nv uerslun á llagiihöfóa 8
Bestu verðin í bænum
ffi Electrolux
ÉWIœoiíl wiu®
Shindaiwa
4,75 Hö an drifs
með safnara
Verð nú kr. 27.900.-
Verð áður kr. 34.900.-
4 Ho an drifs
með safnara
Verð nú kr. 24.900.-
Verð áður kr. 34.900.-
fyrir atvinnumenn
12” án blaða, verð 74.900.-
14” án blaða, verð 76.900.-
NÝTTT
Bríggs & Stratton orf
4 gengis (þarf ekki að blanda
olíu við bensín - minni hávaði)
Verð nú 26.900.-
Verð áður 37.900.-
Bensin velsog
Verð kr. 14.900
Flymo loftpúðavél
25% afsláttur
Verðfrá 19.990,-
Á TILBOÐI
Mbmf
Flymo hekkklippur
Verðkr 3.900.-
Rafmagns vélsog
Verð 9.900.-
Slattiivelamarkaourinn
Vaynhöfða 8 *">»■
www.slattuvel.is
Viðgerða- og varahlutaþjónusta fyrir sláttuvélar og reiðhjól
(sama gata og Bílabúð Benna) Opið 10 -14 laugardaga