blaðið - 03.06.2006, Side 32
32 I TlSKA
LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2006 blaðiö
TÍSKA
Skjöldur Eyfjörð
Til hamingju ísland
með að vera svona töff
Skjöldur Eyfjörð fjallar um tískuna
" Heuters
DRAMATISKUR Hér má sjá fyrirsætu sýna flíkur kólumbíska hönnuðarins Lina Can-
tillo á tískuviku í Bogota, en hún stendur einmitt yfir um þessar mundir.
Ég fór til útlanda um daginn.
Nánar tiltekið til Aþenu í Grikk-
landi og ég átti varla orð yfir
hversu mikið allir litu nákvæm-
lega eins út. Það var svona eins og
allir hefðu keypt sama persónu-
leikann í einhverri búð sem var
að selja persónuleika á tilboði af
brettum eins og í einhverri lág-
vöruverslun með yfirskriftinni:
Allt á að seljast!!
Ég segi kannski ekki ALLIR, en í
það minnsta allflestir.
Ég held barasta að ég sé farinn að
skilja hvað útlendingar eru að tala
um þegar þeir koma hingað og sjá
allar þessar týpur sem við eigum
hér á lslandinu gamla.
Því eins og í Aþenu, svo ég haldi
áfram að miða við hana, virðist
vera að allir leitist við að passa inn
í einhvern ramma, eða kassa, sem
segir þér hvernig þú átt að líta út
og hvað er töff, inn eða móðins og
það skilur þig frá þeim sem eru ekki
mikið fyrir það að hugsa um útlitið.
Þannig aðgreina þau sig frá hvort
öðru. Þannig verða þau „spes“.
En hér heima eru bara svo fáar
búðir og lítið úrval af fötum. Og það
er líka verið að reyna að „skikka
okkur“ til að kaupa bara hitt eða
þetta. Svo nú hafa margir íslend-
ingar tekið þá ákvörðum að fara
alveg hina leiðina og reyna að gera
allt til þess að passa ekki inn og vera
öðruvísi og standa fyrir utan normið
ef norm skildi kalla. Þetta fólk gerir
í því að finna föt og fylgihluti sem
eiga sér einhverja magnaða sögu og
eru alls ekki til í miklu magni.
Það er sennilega ekki lengur til sá
íslendingur sem á ekki þannig flik
eða hlut í skápnum hjá sér. Þetta
hefur leitt til þess að ömmur og afar
hafa verið strippuð niður og fólk
er í öllum skúffum, skápum, koff-
ortum og háaloftum að leita eftir
fjársjóði með sögu og persónuleika
sem gaman er að segja frá þegar
maður fer í næstu veislu eða manna-
mót. Hver kannast ekki við svona
samtal:
-Flottur jakki!
-}á takk, ég fann hann inni í skáp
hjá afa mínum. Hann fór einmitt
á sitt fyrsta ball í þessum jakka og
kynntist svo henni ömmu minni og
það var ennþá gamli aðgöngumið-
inn á ballið hægri vasanum! Eða...
-Flottur jakki!
-Já takk, ég fann þennan þegar ég
var á bakpokaferðalagi um Taíland
og það vantaði annan fótinn á kon-
una sem seldi mér hann.
Já - nú til dags er það ekki lengur
nóg að flíkin sé klæðileg og heil,
heldur verður hún að hafa sál og
sögu. Þetta þýðir að „second hand“
búðir spretta upp um allar trissur,
svo er notuðum gömlum fötum
blandað við hágæða merkjavöru og
úr verður sérislenskt fata-hanastél.
Með þessari flottu blöndu af gömlu
og nýju og skemmtilegri götutísku
tekst Islendingum að vera framar-
lega á sviði tískunnar.
Við þorum að vera við sjálf og
um leið hlýtur persónuleikinn að
þroskast heilmikið þar sem hann er
alltaf á fullu við að reyna að finna
eitthvað sem skarar fram úr. Við
setjum punkt fyrir ofan (eða undir)
SPESI fyrradag fór fram tískusýning m m
í Kiev og þar mátti meðal annars sjá fram-
úrstefnulega hönnun Olgu Rygenko, en
hún á ættir sínar að rekja til Úkraínu.
FALLEG SLÁ Hrokkinhærð fyrirsæta Rtutm
sýnir hér fallega slá eftir hönnuðinn
Julieta Suarez á tískuvikunni í Bogota í
eigin persónuleika og þessi punktur
segir: Daddaraaa! Hér er ég og ég
neita að vera eins og allir hinir. Ég
ætla að reyna að vera allavega smá
öðruvísi. Og þess vegna segi ég að
lokum: Til hamingju ísland með að
vera svona TÖFF!!
Kveðja,
Skjöldur
Kona getur alltaf á sig blómum bætt
Nokkrar skemmtilegar nýjungar úr snyrtivöruheiminum.
IElisabeth Arden-Ceramide
Plump Perfect targeted line
concentrate
Hér er komið nýtt krem frá Elisa-
beth Arden en það inniheldur fylli-
efni fyrir dýpstu línur og hrukkur
andlitsins. Serum virkar umsvifa-
laust og áhrif þess eru sjáanleg um
leið. Þetta er einföld leið til þess að
draga úr þreytumerkjum og öldrun
í andlitinu og um leið gefur það
andlitinu ferskan svip.
Marbert-Active after sun
care
Marbert fyrirtækið hefur sett þetta
frábæra After Sun krem á markað-
inn. Það nærir húðina eftir sólböð
og gefur henni raka. Kremið ilmar
líka vel og í því eru örlitlar glimmer
agnir sem gefa húðinni mjög fal-
lega áferð.
3Elisabeth Arden-Flawless
Finish
Þessi andlitsfarði frá Elisabeth
Arden hentar vel fyrir þurra eða
venjulega húð. Askjan er mjög fal-
leg og farðinn hylur vel. Þessi farði
er mjög hentugur fyrir þroskaða
húð.
Elisabeth Arden-Flawless
Finish Mousse Makeup
Froðufarði frá Elisabeth Arden
sem hylur vel og dreifist alveg sér-
lega vel yfir andlitið. Þessi farði er
léttur og meðfærilegur og útkoman
er náttúruleg og falleg.
5
Guerlain-Success Eye Tech
Hér er komið einstakt augn-
krem frá Guerlain en því er sér-
staklega ætlað að lyfta þreyttum
augnlokum, sem oft vilja síga
eftir því sem aldurinn færist yfir.
Kremið hentar líka vel í kringum
þreytt augu og árangurinn er sýni-
legur um leið en eftir reglubundna
notkun verður hann varanlegri.
6Guerlain-Lotion Lissante
Smoothing Toner
Gott andlitsvatn frá Guerlain í
Success Model línunni sem var
fyrst markaðssett á síðasta ári. Það
sléttir úr línum, ilmar einkar vel
og hreinsar húðina um leið. Þetta
andlitsvatn á að nota eftir að farði
hefur verið hreinsaður af andlitinu
og áður en næsta krem er borið á.
Guerlain-Smoothing Mask
Quick Lift Action
Maski í sömu Success línunni frá
Guerlain. Lyftir húðinni, jafnar út
mislita tóna og mýkir einstaklega
vel. í þessum maska eru engin ilm-
efni sem gerir að verkum að það
má einnig nota hann í kringum við-
kvæmt augnsvæðið.