blaðið - 03.06.2006, Qupperneq 34
34 I I7NGA FÓLKID
LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2006 blaöiö
Svört kómedía
um fordóma
í dag verður frumsýnd stutt leikin
kvikmynd um fordóma og fjölmenn-
ingu í Gamla bókasafninu í Hafnar-
firði. Hópur krakka úr Hafnarfirði
hefur frá þvi í febrúar unnið að gerð
myndarinnar undir leiðsögn Eyr-
únar Óskar Jónsdóttur í Jaðarleik-
húsinu en myndin er hluti af loka-
verkefni hennar í leiklistarfræðum.
.,Ég er í mastersnámi þar sem lögð
er áhersla á hvernig nota megi leik-
listina til að stuðla að félagslegri upp-
byggingu,“ segir Eyrún og bendir á
að myndin sé ágætt dæmi um það.
Byggt á reynslu fólksins í hópnum
Krakkarnir sóttu meðal annars nám-
skeið í leiklist og kvikmyndagerð
auk þess sem þeir skiptust á skoð-
unumum málefnið og deildu reynslu-
sögum. Þó að þátttakendur séu allir
á svipuðum aldri (15-20 ára) eru þeir
af sjö þjóðernum og aðhyllast fern
trúarbrögð þannig að bakgrunnur
þeirra er afar ólíkur. „Þetta er í raun
og veru byggt á reynslu fólksins í
hópnum. Við tókum viðtöl hvert við
annað og fórum í spunaleiki og upp
úr því komu hugmyndir að þessum
sögum þar sem við ýktum í raun
og veru reynslu fólksins í hópnum,“
segir Erna Ómarsdóttir einn þátttak-
enda. Július Þórðarson og Ahd Abu
Libdh sem einnig tóku þátt í gerð
myndarinnar taka undir orð Ernu.
„Þetta er í raun svört kómedía," segir
Júlíus. „Við setjum þetta í grínbún-
ing svo að fólk geti hlegið að þessu
og fari að hugsa um það sem það sér,“
bætir Ahd við.
í myndinni eru sagðar þrjár sögur
sem allar fjalla um sama viðfangs-
efni. í einni sögunni leikur Erna
stúlku sem á múslímskan kærasta
sem leikinn er af Júlíusi. í upphafi
finnst henni ekkert tiltökumál að
hann sé múslími en foreldrar hennar
eru ekki sömu skoðunar og smám
saman fyllist hún sjálf fordómum.
„Það eru í raun allir með einhverja
fordóma þó að þeir haldi að þeir
séu það ekki. Þessi saga fjallar um
hvernig staðalímyndir hafa áhrif á
fólk og hvernig fjölmiðlar móta stað-
aKarameislarin.ru
Suðurveri • Glæsibæ • Húsgagnahöllinni • Mjódd • Smáratorgi
Frá vinstri Júlíus Þórðarson, Ahd Abu Libdh og Erna Ómarsdóttir. Þau voru í hópi hafnfirskra ungmenna sem gerðu stuttmynd um for-
dóma undir leiðsögn Eyrúnar Óskar Jónsdóttur í Jaðarleikhúsinu (mynd til hliðar). Myndir/SteirwrHugi
99..........................................
„Það eru í raun allir með einhverja fordóma þó
að þeir haldi að þeir séu það ekki. Þessi saga
fjallar um hvernig staðalímyndir hafa áhrifá fólk
og hvernig fjölmiðlar móta staðalímyndirnar,"
segir Erna Ómarsdóttir einn þátttakenda..
alímyndirnar,“ segir Erna.
Önnur sagan fjallar um stelpu
utan af landi sem á í erfiðleikum
með að falla í hópinn. Sú þriðja
fjallar um ungan mann frá Kosovo
sem flyst til Islands og lendir í veru-
legum samskiptavandamálum við
heimamenn.
Einsleit mynd í Qölmiðlum
Krakkarnir eru sammála um að
gerð myndarinnar hafi verið lær-
dómsrík og að hún hafi opnað þeim
nýja sýn á fólk af öðrum þjóðernum
og trúarbrögðum. Það sem þeir
vissu fyrir um suma hópana höfðu
þeir einkum fengið í gegnum fjöl-
miðla og sú mynd sem er dregin upp
í þeim sé oft á tíðum einsleit. „Auk
þess lærum við líka um hina mann-
eskjuna sem við leikum sjálf. Upp-
haflega hugmyndin var til dæmis sú
að ég myndi sjálfur leika útlending
en á endanum lék ég mjög fordóma-
fullan lslending,“ segir Ahd og bætir
við að það hafi verið mjög athyglis-
verð reynsla.
Krakkarnir telja að mikið sé um
fordóma í samfélaginu en oft beri
lítið á þeim og fólk geri sér jafnvel
ekki alltaf grein fyrir því hversu
fordómafullt það sé í raun og veru.
„Ég vona að fólk fari að hugsa meira
um þessi mál eftir að hafa séð þessa
mynd. Það er að minnsta kosti til-
gangurinn með henni,“ segir Júlíus
sem hvetur að lokum alla til að
mæta í Gamla bókasafnið kl. 15 í dag
til að sjá myndina.
Eftir frumsýningu myndarinnar
verður sýnd stutt heimildarmynd
um breska sagnfræðinginn Arnold
J. Toynbee og baráttu hans gegn for-
dómum og síðan verða umræður og
fyrirspurnir. Aðgangur er ókeypis
og eru allir velkomnir.
Tilraunaglaðir tónlistarmenn
með áhuga á saumaskap
Biaðiö/Frikki
Hljómsveitin Alræði öreiganna hyggst flytja verkið Pétur og úlfurinn eftir rússneska
tónskáldið Sergei Prokofjeff í nýstárlegri útsetningu I Hafnarfjarðarleikhúsinu á mánu-
dagskvöld.
Hljómsveitin Alræði öreiganna ræðst
ekki á garðinn þar hann er lægstur
þessa dagana því að á mánudag mun
hún flytja verkið Pétur og úlfurinn
eftir rússneska tónskáldið Sergei Pro-
kofjeff í eigin útgáfu.
Alræði öreiganna er aðeins skipuð
fjórum ungum mönnum sem leika
á jafnmörg hljóðfæri. Engu að síður
takast þeir á við tónverk sem var sér-
staklega samið með hljóðfæri heillar
sinfóníuhljómsveitar í huga en í því
túlkar hvert hljóðfæri ákveðna dýra-
tegund eða persónu. Helgi Egilsson
bassaleikari hljómsveitarinnar segir
að þeim hafi gengið ljómandi vel
að útsetja verkið þrátt fyrir mann-
fæðina. „Við nýtum aðallega stefin
úr verkinu og höldum ekkert rosal-
ega fast við það að hvert hljóðfæri
sé ákveðin persóna. Þetta er miklu
frekar stef sem við setjum í ýmsan
búning og tvinnum alls konar ryþm-
apælingar við þau,“ segir Helgi og
bætir við að þó að hljómsveitin fari
nokkuð frjálslega með tónlistina sé
hún trú upphaflega verkinu hvað sög-
una varðar.
Mikið lagt í búninga og
sviðsframkomu
Sögumaður verður Einar Aðalsteins-
son og býst Helgi við að hann flytji
söguna með nokkrum tilþrifum
og jafnvel leikrænum tilburðum
en Einar er einkum þekktur fyrir
að hafa unnið upplestrarkeppni
grunnskólanna árið 2001. „Þá munu
búningar hljómsveitarinnar einnig
koma á óvart og vafalaust gera mikla
lukku,“ segir Helgi.
Verkið Pétur og úlfurinn verður
flutt í Hafnarfjarðarleikhúsinu á
mánudag kl. 20 og er aðgangur
ókeypis. Ekki hefur verið tekin
ákvörðun um fleiri tónleika þó að
það sé draumur hljómsveitarfélaga
að fara víðar með verkið. „Kannski
ferðumst við um landið með þetta.
Annars hlýtur líka að vera áhugi á
þessu um allan heim. Þetta er svo al-
þjóðlegt. Kannski fáum við danskan
sögumann til liðs við okkur og
skreppum til Kaupmannahafnar,"
segir Helgi og bætir við að það sé ein-
mitt draumur hljómsveitarinnar að
slá í gegn í Danmörku. Ennfremur
hefur Alræði öreiganna uppi áform
um að setja upp Hnotubrjótinn að
hætti hússins árið 2010.
Umslag úr gallabuxum trommarans
Hugmyndin að Pétri og úlfinum
kviknaði þegar þrír félagar Alræðis
öreiganna sömdu tónlist fyrir upp-
færslu Herranætur (leikfélags M.R.)
á Birtingi eftir Voltaire í vetur. Tón-
listin úr verkinu kemur senn út á
geisladisk en félagarnir hafa setið
sveiítir við að sauma umslög disks-
ins á undanfarna daga og vikur.
,Hvert umslag verður sérstakt. Eitt
gæti til dæmis verið saumað úr rass-
vasa af gallabuxum trommarans,“
segir Helgi og bætir við að stefnt sé á
að útbúa 150 eintök af diskinum eða
eins mörg og saumavélin þoli.