blaðið - 03.06.2006, Blaðsíða 41
blaðiö LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2006
TILVERANI 41
Ertu sumar- og
Flestir íslendingar fagna sumrinu
og margir skipuleggja sólarlanda-
ferðir og útilegur. Sólin fer þó
misvel í fólk og þá fáu daga sem
hitinn verður einhver á íslandi
kjósa sumir að halda sig inni á
meðan aðrir ertu úti frá morgni
til kvölds og tilkynna jafnvel
veikindi í vinnu. Meirihlutinn
tekur þessu þó líklega með ró og
nýtur þeirra daga sem sólin skín
en gefur þó ekki allt annað upp á
bátinn á meðan. En hvernig týpa
ert þú? Nýtur þú þess að spóka
þig um í stuttbuxum og sandölum
eða bíður þú eftir haustinu?
IÞú ert búin/nn að gera
upp hug þinn varðandi
sumarfríið:
a) Jáaðsjálfsögðuþaðgerðiégfyrir
mörgum mánuðum enda er sumarið
uppáhalds tími minn og ég reyni að
skipuleggja fríið mjög vel.
b) Nei ég er enn að velta því fyrir
mér hvað ég muni gera í sumar, enda
er ég ekkert að stressa mig á því.
c) Eg tek mér ekki sumarfrí, mér
finnst það algjör óþarfi.
2Á sólrikum sumardögum
þá:
a) Heldurðu þig inni og forð-
ast sólina.
b) Spennist þú upp og reynir að
komast í sund, gönguferðir, ísbíltúr
og slaerð upp heljarinnar grillveislu.
c) Þá reynir þú að njóta lífsins en
ert samt ekkert að stressa þig of
mikið á þessu.
3Á sumrin klæðistu:
a) Fötum eftir veðri
b) Léttum sumarfatnaði, san-
dölum og hlýrabolum.
c) Því sama og á veturna.
4Þú reynir að:
a) Komast í sólina erlendis
við hvert tækifæri, enda hef-
urðu farið til Benidorm sex sinnum.
b) Komast erlendis einu sinni á ári
en þú reynir að heimsækja nýja staði
hverju sinni.
c) Halda þig heima á sumrin þar
sem sóldýrkendur og ferðamenn
fara sérstaklega í taugarnar á þér.
5Veðrið á íslandi yfir sumar-
tímann er:
a) Ágætt. Það væri samt ljúft
ef það væri aðeins hlýrra.
b) Er algjörlega frábært. Ég upplifi
sól og blíðu í hjarta mínu á hverjum
degi.
c) Er ömurlegt. Það er kalt og það
rignir endalaust og þess vegna er
bara best að halda sig heima.
6Það er júlí og það er helli-
demba úti. Hvers konar skó-
fatnað ferðu f?
a) Flatbotna vatnshelda skó eða
stígvél
b) Opnasandala
c) Strigaskó
7
Þú ferð í útilegu og:
a) Nýtur þess að tjalda og
vera úti í náttúrunni, það er
nú einu sinni sumar.
b) Þú ferð ekki í útilegur þar sem
það er svo mikið vesen að tjalda og
aðhafast eitthvað inni í tjaldi yfir
höfuð.
c) Nýtur þess yfirleitt, það fer samt
aðallega eftir veðri og vindum.
Þegar sól hækkar á lofti og
sumra tekur eiga allir:
a) Að gera það sem þeir vilja.
Hvað er svona mikið öðruvísi við
sumar- og vetrartímann.
b) Aðgleðjastþarsemþettaerbesti
tími ársins og allt er frábært.
c) Að njóta lífsins á sinn hátt. Það
er óþarfi að vera að stressa sig of
mikið þó að sólin skíni. Það eyði-
leggur ánægjuna.
9Það er mitt sumar og það
hefur rignt frá byrjun júní.
Hvernig tekur þú þessu?
a) Þú ert virkilega miður þín og
kemst varla fram úr sökum von-
brigða. Þú sem varst búin að bíða
spennt/ur eftir sumrinu allt frá
jólum.
b) Þetta er frábært. Svona á lífið að
vera.
c) Svona er þetta bara og um að
gera að reyna að hafa það huggulegt
heima hjá sér og láta rigninguna
ekki stöðva sig í að framfylgja þeim
plönum sem búið var að gera.
Teldu stigin saman
1. a) 3 b)2 c)1
2. a) 1 b) 3 c)2
3. a)2 b)3 c)1
4. a)1 b) 2 03
5. a) 2 b) 3 01
6. a) 1 b)3 02
7. a)3 b) 1 02
8. a) 1 b) 3 02
9. a) 3 b)1 02
1-9 stig:
Þaö er alveg Ijóst aö sumarið er ekki þín
uppáhalds árstfö. Þú fyllist neikvæðni
og gremju og neitar aö láta geisla sól-
arinnar ylja þér. Þú hefur Ifklega engan
sérstakan áhuga á útiveru og skilur
ekkert f fólki sem fer f útilegur og hleyp-
ur upp um fjöll og firnindi við hvert
tækifæri. Þú fussar yfir léttklæddum
Islendingum og neitar líklega aö taka
þér sumarfrí vegna þess aö þá þarftu að
eyða meiri tfma meö sólþyrstum feröa-
mönnum. Reyndu nú aö njóta lífsins og
finndu hvaö það er huggulegt aö sitja
úti f góða veörinu í góðum félagsskap.
Grillaðu og faröu f göngur og reyndu aö
efla Ifkama og sál svo aö þú getir tekist
á viö veturinn endurnærö/ur og full/ur
orku. Byrjaðu bara f garðinum heima
og svo getur þú hægt á rólega fært þig
niður á Austurvöll og notið félagsskapar
fáklæddra fslendinga.
10-17 stig:
Þú nýtur sumarsins en ert samt sem
áður ekki óöur sóldýrkandi sem ert búin
aö afklæðast um leið og þaö sést til sólar.
Þú lætur birtuna og góöa veðrið ekki
hindra þig f því sem þú verður aö gera á
hverjum degi og verður ekki óþolandi
þó að hitinn fari yfir 15 stig. Þú nýtur
þó góða veðursins og reynir þá aö eyða
tfma meö fjölskyldu og vinum. Þú tekur
þér þitt sumarfrf slappar almennilega
af hvort sem er hér heima eöa erlendis.
Þú ferö liklega af og til í útilegur og
skemmtir þér konunglega ef veðrið
er gott. Haltu áfram að njóta Iffsins og
vertu dugleg/ur við aö vera úti þar sem
þaö gefur þér mjög mikið. Þú mættir
kannski skipuleggja sumarfríið þitt
aðeins fyrr svo að þú þurfir ekki að vera
f reddingum á siðustu stundu ef ferða-
fiðringurinn kemur yfir þig.
18-27 stig:
Áhugi þinn á sumrinu er allt að þvi óeðli-
legur. Ef það sést til sólar þá skrópar þú
í vinnuna og neitar að sinna þínum verk-
efnum þar sem þú ert svo upptekinn
af því að vera utandyra. Oftar en ekki
flatmagar þú í sólinni heilu og hálfu dag-
ana og þú nýtur þess sérstaklega að fara
til Spánar þar sem þú líggur á ströndinni
frá morgni til kvölds. Reyndu samt að
hafa það f huga að öllu má ofgera og að
þú verður aö sinna þfnum störfum bæði
f vinnu og á heimilinu þó að veðrið sé
sæmilegt. Reyndu að öðlast jafnvægi og
þá munt þú njóta sumarsins mun betur
vegna þess að þú átt það til að láta
streitu ná tökum á þér þegar þú keppist
við að ná sem flestum sólarstundum yfir
sumartímann.