blaðið - 03.06.2006, Side 46
46 I ÍPRÓTTIR
LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2006 biaöiö
Rætur knattspyrnunnar?
Þjóðverjar eru ekki einungis miklir
knattspyrnuáhugamenn heldur
upp til hópa hugsandi fólk sem
lætur sér annt um hinstu rök tilver-
unnar. Þeim nægir ekki að halda
heimsmeistaramótið í knattspyrnu;
þeir verða að fá að vita til hvers
þeir eru að því og þar af leiðandi
er þeim eðlislægt að kanna rætur
knattspyrnunnar.
í menningarsögusafninu í Ham-
borg stendur um þessar mundir
yfir sýning sem spyr einmitt þess-
arar spurningar: Hvar liggja rætur
þeirrar þarfar að sparka í bolta? Sýn-
ingarmunir benda til þess að ræt-
urnar liggi ekki eingöngu í hverfum
enska verkamanna. Þörf mannsins
til þess að sparka í tuðruna virðist
vera djúpstæð og ná langt aftur til
gleymdra tíma.
Eins og sagt var frá í Blaðinu á
dögunum halda kínverskir fornleifa-
fræðingar þvi fram að þeir, en ekki
Skotar hafi fundið upp golfið. Svo
virðist að þeim hafi manna fyrst
dottið í hug að sparka í bolta sér
til gamans. Meðal sýningamuna er
fornt kínverskt útskorið mark en
sérfræðingar telja að það hafi verið
notað til brúks í leiknum „cuju“, en
á íslensku myndi orðið þýða „spark-
bolti“. Sparkbolti er talinn vera
fyrsta útgáfa knattspyrnunnar en
leikurinn er hátt í fimm þúsund ára
gamall. Kínverskir hermenn skiptu
sér í tvö lið og var markmiðið að
skjóta bolta beint í gat á útskornum
viðarramma andstæðingsins.
Iþróttin átti að innræta hermönnum
gildi samstarfs og árkvekni.
Japanir komust síðar á bragðið.
Stígvél sem eru sögð vera fyrirrenn-
arar takkaskóa eru einnig til sýnis.
Slík stígvél voru notuð í leik sem
Japanir kölluðu „kemari“. Leikur-
inn var vinsæl iðja á sjöundu öld og
kepptu yfirleitt samuræjar gegn hirð-
mönnum. Ekki svipaði þó leiknum
til knattspyrnu nema að litlu leyti
heldur fólst keppnin í því að halda
bolta á lofti.
Fyrsti landsleikurinn
í„rostungafótbolta"
Þessir munir benda þó ekki til
að rætur knattspyrnunnar liggi
í Asíu. Þörfin til þess að sparka í
bolta virðist vera sammannleg og
hefur hún gagntekið einstaklinga
í öllum heimshornum gegnum
tíðina. Munir á sýningunni varpa
ljósi á knattspyrnuiðkun inúíta á
Grænlandi. Mannfræðingar telja að
þeir hafi farið í einhvers konar knatt-
spyrnu rneð höfuðkúpu á rostungi
til þess að hita sig upp fyrir veiðar.
Heimildir herma að fyrsti landsleik-
urinn í rostungafótbolta hafi farið
fram á Grænlandi árið 1586. Þá átti
landslið Grænlendinga við pressu-
lið Englands, sem var leitt áfram af
John nokkrum Davis og skipáhafnar
hans. Því miður er ekki vitað
hvernig leikar enduðu en ætla má að
Grænlendingar hafi sigrað, enda var
lið þeirra firnasterkt á þessum tíma
Hið ítalska upphaf
Þrátt fyrir mannfræði- og menninga-
sögulegar pælingar er ljóst að raun-
verulegt upphaf knattspyrnunnar
er að finna í hinni gagnmerku borg
Flórens á Ítalíu. Flestum ætti að vera
kunnugt um „calcio storico“, en sá
leikur er sameiginlegur forfaðir nú-
tíma knattspyrnu og ruðnings. Á
17. öld fór að bera á ýmsum reglum
í þeim leik sem koma nútíma knatt-
spyrnuáhugamönnum kunnuglega
fyrir sjónir. Liðin fóru að klæðast
sérstökum búningum, dómarar og
aðstoðardómarar dæmdu leikina
og liðsmenn léku sérstakar stöður á
vellinum.
Bjórinn og boltinn
Þrátt fyrir ofangreint kemur það
fram á sýningunni að Bretar eigi
óumdeilanlega heiðurinn af þeirri
útgáfu knattspyrnu sem leikin er í
dag. En Þjóðverjarnir leggja minni
áherslu á hið breska framlag til
þróunar leikreglna en mun meiri
áherslu á menningarlega framlagið.
Þýsku sýningastjórarnir leggja sig
nefnilega sérstaklega fram við að
sýna það sérstaka samband sem nú-
tíma knattspyrna á við bjórdrykkju
en það er einnig runnið undan
rifjum hins breska framlags.
5. UMFERÐ | LANDSBANKADEILD KARLA
mán. 5. júní kl. 19:15 Víkingur - Valur
mán. 5. júní kl. 19:15 ÍA - Fylkir
mán. 5. júní kl. 19:15 Grindavík - ÍBV
mán. 5. júní kl. 20:00 FH - Keflavík
þri. 6. júní kl. 19:15 KR - Breiðablik
4. UMFERÐ | LANDSBANKADEILD KVENNA
lau. 3. júni kl. 14:00 FH-KR
lau. 3. júní kl. 16:00 Valur - Breiðablik
mán. 5. júni kl. 14:00 Þór/KA - Fylkir
mið. 7. júní kl. 19:15 Stjarnan - Keflavík
Tryggðu þér miða á betra veröi á
landsbankadeildin.is eöa ksi.is
Rauters
Róbótinn
Peter Crouch, sóknarmaður Liverpool, er margt til lista lagt. Á dögunum heimsótti
Vilhjálmur prins æfingabúðir enska landsliðsins og að því tilefni ákvað Crouch að dansa
fyrir hann róbótadansinn. Uppátækið vakti mikla lukku eins og sjá má.