blaðið - 03.06.2006, Síða 50
50 I AFPREYING
LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2006 blaðiö
ÁLFABAKKA
&MÉÉÍlj
P0SEID0N
P0SEID0N YiP
X-MEN3
AMERICAN D.
SHAGGYDOG
Ml:3
SCARYM0VIE4
BAMBI2 ital
KL1 ^0-3:40-5^0-8-10:10
KL 1^0-3:40-550-8-10:10
KL1 ^0-3^0-5:45-8-10:20
KL 1^0-3^0-5:45-8-10:20
KL 1:30-3:40-5:50-8:15
KL 3:40-6-8-1 Ch30
KL 10.20
KL2
KRINGLUNNI^—
sAMimmm
POSEIDON KL 2-4-6-8:15-10:30
AMERICAN DREAMZ KL 10
Ml:3 KL 8-10:30
SHAGGYDOG KL 2-4-6
SCARY MOVIE 4 KL2-4-6-8
KEFLAVÍK
sámmm
POSEIDON KL 6-8-10
X-MEN3 KL 3-5:45-8
THE DAVINCIC0DE KL 10:10
THE SHAGGY DOG KL2-4
AKUREYRI
sámmm
P0SEID0N KL 4-68-10
AMERICAN DREAMZ KL6-8
Ml:3 KL10
THE SHAGGY DOG KL4
KL 5-7-9-11
KL 4-6-8-10
KL6
KL 5-8-10
POSEIDON
THE DAVINCl CODE
SHAGGY DOG
Ml:3
X-MEN38H2AHA
kl. 1,3.20,5.40,8,8.30,10.20
og10Æ0
DA VINCICODE
kl.2,4,5,7,8,10og11B.l14Ai«
DA VINCICODE ILÚXUS
W.2,5,8 og 11 BJ.14ARA
RAUÐHETTA ENSKT TAL
W. 6
RAUÐHETTAISLENSKT TAL
W.2og4
ÍSÖLD 2
W.2(SLENSKTTAL
HEEnBOEinn
16-BLOCKS
W. 3,5.50,8 og 10.108.1.14 AaA
OA VINCICOOE
W.3,6og9 B.L14ARA
CRYWOLF
W.8BJ.16ARA
RAUÐHETTA ENSKT TAL
W.3,6og10
RAUÐHETTA ÍSLENSKT TAL
W. 3og6
PRIME
W.8og 10.15 RL18 Ara
16-BLOCKS
W.4,6,8 og 10.10 8L14ARA
X-MEN 3
W. 2,4,8og 10.108J. 12ARA
DAVINC1CODE
W. 6 og 9 Rl. 14 Ara
SALTKRÁKA 4ISLENSKT TAL
W. 4
INSIDE MAN
kl. 5.45 B.L 16ARA
RAUÐHETTA ÍSLENSKT TAL
W.2
fSÖLD 2
W. 2ISLENSKT TAL
Utntjttrhm
16-BLOCKS
W. 8 og 10 B l. 14 AfíA
X-MEN 3 B.1.12 ARA
W.6og8
DAVINCICODE
W. 5og 10B114ARA
SALTKRAKA 4ISLENSKT TAL
W.4
RAUÐHEHAlSLENSKTTAL
W. 330
Slikja skáldskaparins
Á þessu ári hefjast tökur á nýrri mynd eftir kvikmyndagerðarmanninn Dag Kára Péturs-
son. Myndin ber titilinn The Good Heart og skartar meðal annars Tom Waits í aðalhlut-
verki. Myndin mun bera sterk höfundareinkenni en þó skarta nýjum búningi.
Dagur Kári á að baki myndirnar
Nói Albínói og Voksne Mennesker
sem hafa hlotið lof gagnrýnenda víð-
ast hvar. The Good Heart fjallar um
ungan mann, Lucas, sem reynir að
stytta sér aldur og er lagður inn á spít-
ala í framhaldinu. Þar kynnist hann
bareiganda, Jacques, sem á skammt
ólifað og ákveður að fela Lucasi
rekstur barsins.
Safnað í sarpinn
I myndun Dags Kára má finna af-
markaðan söguheim og einkennast
þær oft af einlægni, húmor og brota-
kenndum söguþræði. „Það er dálítið
erfitt að henda reiður á þvi hvenær
nákvæmlega hugmynd kviknar, ég
fæ eiginlega aldrei hugmynd að sögu
heldur er ég að vinna með smærri hug-
myndir. Á ákveðnu stigi fara síðan
þessar hugmyndir að raða sér saman
og þá myndast vísir að sögu. Ég held
síðan áfram að safna í sarpinn og
smátt og smátt púslast þetta saman.
Þetta gerist yfirleitt á nokkrum árum
og því er ég með góðan sarp af hug-
myndum áður en ég sest niður og
vinn markvisst að því að koma þessu
í handrit."
Tónlistin er afar mikilvæg í
myndum Dags Kára en hann hefur
samið tónlistina í kvikmyndum
sínum með Orra Jónssyni en saman
skipa þeir hljómsveitina Slowblow.
Dagur Kári hefur áður lýst því yfir að
tónlist sé tærasta listformið því hún
höfðar beint til tilfinninganna. Það
er jafnvel svo að tónlistin getur haft
áhrif á handrit í vinnslu. „Það er ekki
óalgengt meðan ég er að skrifa að ég
heyri eitthvað lag í útvarpinu sem ég
veit að passar inn í myndina. Loka-
stefið í Nóa Albínóa kom þannig.
Þá var ég að keyra í bíl og lag kom í
útvarpinu. Ég var á leiðinni í bíó en
fannst lagið svo magnað að ég varð
að stoppa bílinn og bíða eftir því að
fá að vita hvaða lag þetta væri. Fyrir
vikið missti ég af bióinu. En það er oft
þannig að maður finnur eitthvað sem
smellpassar við hugsunina og þannig
getur tónlistin komið mjög snemma
inn.“ Ennfremur segir Dagur að það
standi ekki til að Tom Waits komi að
tónlistinni fyrir myndina.
Bítur í sig andlit
Tom Waits og Ryan Gosling voru þeir
sem Dagur Kári hafði mestan hug á
að ráða í hlutverk þó það hafi ekki
verið fyrirséð. „Ég skrifa venjulega
ekki með ákveðna leikara í huga. Eg
er svo lengi að vinna í efninu og hef
ekki fullmótaða hugmynd um hvert
handritið er að stefna, hvernig saga
þetta er. Þegar ég byrja svo að koma
hugmyndunum markvisst í handrits-
form þá fara andlit að birtast. Þetta
gerist frekar á seinni handritsstigum.
Þegar svo er komið þá bít ég venju-
lega í mig ákveðin andlit og finnst
mjög erfitt að skipta þeim út. Það er
líka hættan við að skrifa handrit frá
upphafi með einhvern í huga. Lík-
urnar á því að það púslist saman eru
elcki miklar.
Hlutverk Jaques var nánast slcrifað
fyrir Tom Waits á seinni stigum og
maður trúir því varla að af þessu
„Minar sögupersónar eru þannig að þær álpast úr einum kringumstæðum yfir í aðrar."
verði fyrr en hann verður kominn
hinu megin við myndavélina. Það
bendir þó allt til þess og það er
ótrúleg gæfa því það er sjaldan sem
maður fær það sem er númer eitt á
óslcahstanum þegar kemur að banda-
ríslcum leikurum. Þetta er sennilega
sú manneskja á jörðinni sem ég
myndi helst vilja vinna með og
Ryan Gosling var líka í fyrsta sæti í
hlutverk Lucasar. Ég hef reyndar bará
séð hann í einni mynd og mér fannst
hún afar slök, myndin Notebook.
Hann er þó mjög góður í henni og ef
að leikari er góður í lélegri mynd, þá
er það yfirleitt mjög góður leikari“.
Hliðarheimur við okkur
Það er áberandi í Nóa Albínóa og
Voksne Mennesker að það er ákveðin
sjónræn áferð sem liggur að baki.
„Éyrir mér er mjög mikilvægt að kom-
ast inn í skáldaðan heim, ég er ekki
beinlínis að fást við realisma og því
mikilvægt að komast inn í mótað
ástand. Eg vil búa til söguheim sem til-
heyrir einungis þessari bíómynd. Allt
kallast þó á við það sem við þekkjum
og að því leiti er þetta ekki surreal-
ismi eða fantasía, heldur frekar eins
og hliðarheimur við okkar. Til þess
að ná fram þessum áhrifum tel ég
vera nauðsynlegt að fá slikju skáld-
skaparins, eða hvað maður á að kalla
það. í Nóa unnum við til dæmis með
þylcka grænleita slikju, svona himnu
yfir myndinni. Vokne Mennesker var
náttúrlega svart/hvít sem er svolítið
róttækt skref frá raunveruleikanum.
Hvað nýju myndina varðar þá sé ég
fyrir mér einhvers konar grófa áferð
en er ekki alveg búinn að skilgreina
það nákvæmlega.
Titillinn The Good Heart kom
mjög snemma í ferlinu segir Dagur
Kári og bætir því við að maður heyri
strax bergmál af gömlu Feargal Shar-
key lagi: A Good Heart (these days is
hard to find). „Nú er ég búinn að vera
að vinna í þessari mynd í um fimm ár
og það er svolítið erfitt að negla niður
þróunina. Sagan í grófum dráttum
og nafnið kom býsna fljótt. Það er
alltaf þungu fargi af manni létt þegar
maður hefur fundið titil. Bæði með
þessa mynd og Nóa Albínóa þá komu
nöfnin rakleitt í kjölfar sögunnar.
Það var mun þægilegra en með
Voksne Mennesker þar sem okkur
tókst aldrei að finna titil á hana.
Þeásu fylgdi ákveðin ónotatilfinning
þar sem maður var ekki alveg viss
um hvert myndin væri að stefna.
Það er ekíci hægt að segja að kven-
persónur hafi verið í forgrunni í
kvikmyndum Dags Kára. Það eru
þó eftirminnilegar kvenpersónur í
myndunum eins og amman í Nóa Al-
bínóa og Franc i Voksne Mennesker.
„Þriðja stóra hlutverkið í The Good
Heart er kvenhlutverk. Ég hef alltaf
reynt að einfalda söguheiminn mjög
mikið. í Nóa Albínóa gerist öll sagan í
litlu þorpi, ein lögga, einn leigubíll og
oft bara ein stelpa, stelpan í sögunni.
Þannig er þetta í The Good Heart. Ég
veit eMci alveg hvaðan þetta kemur og
hugsanlega eru þetta áhrif frá barna-
bókum eftir Astrid Lindgren. Maður
reynir að halda í einfaldaðan heim og
miðla honum áfram til fullorðinna“.
Stefnulausir menn
í öllum þremur myndunum má
greina nolckurs konar leiðarstef sem
hringast í kringum unga stefnulausa
menn. „Þetta er reyndar eklci með-
vitað og ég á erfitt með útskýra af
hverju þetta verður alltaf fyrir valinu.
Ég sest ekki niður með það í huga að
skrifa um áttavilltan ungan mann en
þannig virðist það alltaf enda. Þetta
kemur kannski út frá því að sög-
urnar byggjast ekki upp á sterkum
söguþræði, heldur fremur kringum-
stæðum ogpersónum. Efmaðurhefur
persónu sem hefur mjög skilgreint
markmið þá er maður óhjákvæmi-
Jega kominn inn í sögubyggingu sem
byggir á sögufléttu en ég hef leitað að
Á DAGSKRÁ í KVÖLD
► KL. 20:00 ÚT AÐ HLAUPA
Fyrsti þáttur í skemmtilegri framhaldsseríu. Ótal keppendur
á öllum aldri eru skráðir til íeiks og liggur ieið þeirra um
götur Reykjavíkur. Frábær fjölskyldudagskrá sem enginn
ætti að missa af. Lokaþáttur 19.ágúst.
annars konar byggingu. Mínar sögu-
persónar eru þannig að þær álpast úr
einum kringumstæðum yfir í aðrar
og þar með kemur kannski þetta
stefnuleysi.“
Annar bragur virðist þó vera á The
Good Heart en Dagur Kári lýsir því
þannig að sagan sé sú heilsteyptasta
hingað til. „Þetta byrjaði í brotum
en hefur orðið nokkuð þétt saga,
allavega á minn mælikvarða. Það er
þannig mjög ákveðin atburðarás og
þéttur söguþráður,“ segir Dagur Kári.
Enskan er það tungumál sem Dagur
Kári treystir sér til að leikstýra á og
hann vildi frekar gera mynd í Banda-
ríkjunum en í Bretlandi. „Það var
strax ljóst að The Good Heart er saga
sem verður að gerast í stórborg, Kaup-
mannahöfn er ekki nógu stór eða
nógu „hardcore" fyrir þessa sögu. Ég
lít annars á þetta sem afmarkað til-
vik en er ekki að leita að stiklu inn í
amerískan kvikmyndaiðnað. Það er
sagan sem kallar á þetta og þegar það
var búið að beita ákveðinni útilokun-
araðferð þá varð Ameríka fyrir val-
inu. Upphaflega var stefnt á að tökur
færu fram í New York þar sem það er
svona steríótýpa fyrir stórborg í heim-
inum. Síðan fluttum við staðsetning-
una til San Francisco til þess að vera
nær heimilum leikaranna. Tom Wa-
its vill til dæmis alls ekki ferðast neitt
og samþykkti aðkomu sína með því
skilyrði að hann kæmist heim til sín
á kvöldin. Hann er mjög heimakær
jon@bladid.net
Hvað er að gerast?
Blaðið vill endilega fjalla um atburðl
liðandi stundar. Sendu okkur línu á
gerast@bladid.net.
Laugardagur
15.00-Dans
Nemendasýning DWC
Borgarleikhúsið
Miðasala á midi.is
15.00-Sýning
Innileg fjarvera - Intimate Ab-
sence: Patrick Huse
Hafnarborg
16.00-Tónlist
Sumarjazz á Jómfrúnni: Kvar-
tett Jóns Páls og Árna Scheving
Jómfrúin
16.30-Tónlist
Reykjavík Trópík
Háskólasvæðið
Miðasala á midi.is
21.00-Tóniist
Akureyri International Music
Festival
Ketilhúsið
Miðasala á midi.is
00.00-Tónlist
Dj Palli í Maus þeytir skífum
Bar n
REYKJAVÍKUR X A
MARAÞON jZj
GLITNIS
19. ÁGÚST ^ X
I
Illlllliilli