blaðið - 03.06.2006, Qupperneq 54
54 IFÓLK
LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ2006 blaöiö
TÖKUM ÖLL
PÁTT I SJÁLF-
HVERFUNNI
Smáborgarinn er einn af þeim sem
finnst ekki nógu mikið um útlitsdýrkun
hér á landi. Ljóst er að lyfta þarf Grett-
istaki til þess að útliti ákveðinna stétta
séu gerð fullnægjandi skil í íslenskum
fjölmiðlum.
Vissulega verður ekki gert lítið úr
því mikla en vanþakkláta starfi sem
ákveðnir fjölmiðlar hafa unnið í þvf að
kynna almenningi hvaða fjölmiðlungar
eru mest „sexf" hverju sinni. Það erákaf-
lega mikilvægt að gerð sé úttekt á því
að minnsta kosti einu sinni í mánuði
þannig að hægt sé að fylgjast með því
hverjir eru að auka „sexappílið" og á
kostnað hverra. Það er aðdáunarvert að
fjölmiðlungar skuli taka að sér jafn flók-
ið verkefni og vega og meta „sexappfl"
kollega sinna reglulega.
Og fleiru má hrósa. Það ber vott um
fátækt andans að einblína aðeins á útlit
fólks. Dýptin kemur þegar maður setur
útlitið í samhengi við innréttingar í hí-
býlum fólks. Sérstaklega er það framtak
sjónvarpsstöðva virðingarvert að leyfa
smáborgurum þessa lands að fylgjast
með framkvæmdum á heimilum frægs
fólks. Vissulega læðist að manni sá grun-
ur að alltaf sé verið að sýna frá sama
heimilinu í þessum þáttum þar sem að
allir fá sér nákvæmlega eins innrétting-
ar og hvergi sést bók í hillum. En slíkar
vangaveltur skipta litlu andspænis því
gagni sem slíkir þættir gera. Heyrst hef-
ur að þessir þættir séu orðnir að ómetan-
legu mælitæki hagfræðinga sem vega
og meta þenslu I þjóðfélaginu út frá því
hversu oft ákveðnir leikarar hafa látið
breyta og bæta hjá sér heimilin I þess-
um þáttum.
Þetta er allt saman gott og blessað.
Hins vegar þarf að spýta I lófana þar
sem að fallegt og smekkvíst fólkfinnst I
öllum stéttum. Það felst I hlutarins eðli
hjá fallegustu þjóð I heimi. Væri ekki
ráð að fjölmiðlar birtu lika greinar um
það hvaða plpulagningamenn væru
með „sexappílið" I lagi endrum eins.
Hvaða lagnamenn eru lostafullir I sum-
ar? Á hverjum degi þarf að fylla margar
blaðsiður og sjónvarpsmínútur af efni.
Það gengur ekkert alltof vel. Hví ekki
að leysa það vandamál með því að leyfa
öllum stéttum að taka þátt I sjálfhverfu
samtímans?
HVAÐ FINNST ÞÉR?
Mörður Árnasoti, þingmaður Samfylkingarinnar.
Hvernig er að vera sammála Pétri
Blöndal?
„Það er alveg einstök tilfinning!“
Mörður og Pétur Blöndal, kollegi hans á þingi, eru ekki oft sammála. Það gerðist þó í gær þegar Mörður ákvað að styðja
breytingartillögu Péturs við lög um tóbaksvarnir. Þeir félagar eru sammála um að fella beri brott klausu í lögunum sem bann-
ar hvers konar umfjöllun um einstakar vörutegundir tóbaks til annars en að vara sérstaklega við skaðsemi þeirra.
Sólin skein í miðbœ Reykjavíkur í gcer og nýttu borgarbúar sér það óspart.
Austurvöllur er staður minninga og ófáar sltkarfœddustþennanfallega dag. Menn
og dýr léku sér í sátt og samlyndi og tónlistarmenn léku á hljóðfceri sín á hverju
götuhorni. Sumarið er tíminn gottfólk, nýtum það vel.
Myndir/Frikki
Hljómsveitin Rolling Stones getur
hafið tónleikaferðalag sitt um Evr-
ópu eftir að læknar úrskurðuðu
um að Keith Richards hefði náð sér
eftir heilaskurðaðgerð. Samkvæmt
því sem kemur fram á vef BBC er
talið að Richards hafi dottið úr tré
en það er víst ekki fullkomlega ör-
uggt. Mörgum tónleikum hefur
verið frestað út af þessu slysi en nú
er gítaristinn aldni tilbúinn í slag-
inn. Fyrstu tónleikarnir munu fara
fram á San Siro leikvellinum í Míl-
anó þann u. júlí en þeir áttu upphaf-
lega að fara fram 22. júní.
eftir Jim Unger
Halli, viltu koma hingað eins og skot!
8-11
© Jim Unger/dist. by United Media, 2001
lafur F. Ma
að þar færi|
stjórnmálar
meira sagt.!
er sagt að flók
HEYRST HEFUR...
Ymsir telja mikil pólitísk
tíðindi felast í þeim meiri-
hlutum sem Framsóknarflokk-
aurinn og Sjálfstæðis-
flokkurinn mynda
þessa dagana víða
um land. Spurt er
hvort flokkarnir ætli
að þjappa sér saman fyrir þing-
kosningarnar á næsta ári. Allt
byrjaði þetta eins og menn vita
í Reykjavík þegar Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálms-
son, oddviti sjálfstæð-
ismanna,
á k v a ð
óvænt að slíta viðræð-
um sem hafnar voru
við Ólaf F. Magnús-
son, efsta manna á lista Frjáls-
lynda flokksins. Nokkrum
klukkustundum síðar hafði
Vilhjálmur myndað meirihluta
með Birni Inga Hrafnssyni, at-
hafnastjórnmálamanni og bé-
vita.
m
Ymsir halda því fram að
flokksforustan hafi kom-
ið nærri þeirri ákvörðun Vil-
hjálms að slíta viðræðunum.
Vitað er að innan flokksins
voru skiptar skoðanir um hvort
ganga ætti til samstarfs við
frjálslynda. Margir töldu það
;anga geggjigi næst þar sem
ússon hefði sýnt
tt sveigjanlegur
ur svo ekki sé
ðurbera Blaðsins
sforustan hafði
verið hlynnt samstarfi við frjáls-
lynda en Vilhjálmi hafi einfald-
lega snúist hugur eftir fund
með Ólafi og haft sitt fram.
Pví er einnig haldið fram að
forysta Framsóknarflokks-
ins hafi komist að þeirri niður-
stöðu að hin margfræga „endur-
reisn“ flokksins sem boðuð var
strax eftir afhroðið á laugardag-
inn eigi að felast í sem mestri
þátttöku í sveitarstjórnum. í
stað þess ao draga sig í hlé eins
og flokkar gera oft eftir erfiðan
ósigur eigi Framsóknarflokkur-
inn að vera sem sýnilegastur.
Stjórnmálafræðinga Blaðsins
greinir á um þessa aðferð en
margir halda því fram að í
þessu felist sennilega eini mögu-
leiki flokksins að ná sér á strik
fyrir þingkosningarnar að ári.
Lífróðurinn er hafinn.
Sú áhersla sem lögð er á
samstarf við Sjálfstæðis-
flokkinn vekur nokkra furðu.
Þetta virðist vera í mótsögn
við þann málflutning helstu
leiðtoga framsóknarmanna
að samstarfið við Sjálfstæðis-
flokkinn í ríkisstjórn sé nú að
koma í bakið á flokknum. Ein-
hverjir telja þetta til merkis um
að stefnt skuli að þvi að halda
meirihlutanum á þingi í næstu
kosningum og halda áfram rík-
isstjórnarsamstarfi takist það.
Bent er á að sjálfstæðismenn
hafi í raun engu að tapa. Þeir
muni að öllu óbreyttu hæglega
geta myndað stjórn eftir kosn-
ingarnar á næsta ári. Fái fram-
sókn enn einn skellinn komi
samstarf auðvitað ekki til álita
en jafnframt verði þá útilokað
fyrir framsókn að taka þátt í
vinstri stjórn.
Um leið er með þessu reynt
að einangra Samfylking-
una á sveitarstjórnarstiginu
eins og kostur er og minnka
sýnleika fulltrúa flokksins.
Fleyg urðu þau ummæli
Hannesar Hólmsteins Giss-
urarsonar að réttast væri að
SjálfstæðisflokkurogFramsókn-
arflokkur sameinuðust. Ætli lík-
ur fari ekki vaxandi á þvi?