blaðið - 15.07.2006, Blaðsíða 2
2 I FRÉTTIR
LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2006 blaöiö
blaðiðu=
Hádegismóum 2,110 Reykjavík
Sími: 510 3700 •www.vbl.is
FRÉTTASÍMi:
510 3799
netfang: frettir@ bladid.net
AUGLÝSINGADEILD:
510 3744
netfang: auglysingar@bladid.net
Ríka fólkiö:
íslendingar
vel stæðir
Tæpar níu milljónir jarð-
arbúa eiga eignir sem nema
einni milljón dollara (ríflega 75
milljónum króna) á síðasta ári
og hafði þeim fjölgað um 6,5% á
árinu. Af þessum milljónerum
eru um 5,7 milljónir þeirra
búsettir í Evrópu. Þetta kemur
fram í Morgunkorni Greiningar-
deildar Glitnis í gær. Þar kemur
ennfremur fram að fjöldi þeirra
sem eiga meira en 30 milljónir
bandaríkjadala (rúma 2 millj-
arða króna) og geta þar með
kallast vellauðugir samkvæmt
skilgreiningu í peningalegum
eignum var hins vegar 85.400 í
fyrra og fjölgaði þeim um 10,2%
frá árinu áður.
„Það er ljóst að fslendingar
eru nokkuð betur stæðir en
gengur og gerist meðal jarðar-
búa. f fyrra mátum við að um
3.000 fjölskyldur hér á landi
ættu yfir 100 m.kr. í hreinni
eign. Þetta eru um 2,7% íslend-
inga. Ef notað er það fjárhags-
lega viðmið sem Merrill Lynch
og Capgemini nota er ljóst að
hlutfall fslendinga sem eru yfir
)eim mörkum fer vel yfir 3%
)jóðarinnar,“ segir um stöðu
slendinga í Morgunkorninu
ígær.
Deilur eru á milli kajakræðara og veiðimanna í Hveragerði:
Kajakstríð
í Hveragerði
■ Varmá heillar bæði kajakræðara og veiðimenn ■ Fer ekki saman
Aldís Hafsteinsdóttir
Eftir Val Grettisson
Stjórn Veiðifélags
Varmár og Þorleifslæks
hafa sent bæjarstjóra
Hveragerðis bréf þar
sem þeir mótmæla
fyrirhugaðri aðstöðu
fyrir kajakræðara við
ána. Formaður félags-
ins, Hannes Sigurðsson
segir að ef af breyting-
unum verði þá þýði það gríðarlcgt
tap fyrir þá sem eiga land að ánni.
Hveragerðisbær á land að ánni
og segir Aldís Hafsteinsdóttir
bæjarstjóri að ekki sé hægt að
banna ungmennunum sem eru
á kajökum að vera í ánni sam-
kvæmt vatnalögum.
„Við mótmælum fyrirhuguðum
framkvæmdum enda miklir fjár-
munir í húfi,“ segir Hannes en
hann hefur áhyggjur af því að ef
kajakróður aukist í ánni þá muni
það hafa áhrif á aðsókn veiði-
manna í ána. Hann segir það geta
haft verulegt tekjutap í för með sér
fyrir landeigendur.
„Þeir fæla fiskinn og það er óþægi-
legt fyrir okkur,“ segir Hannes
og bendir á að hver landeigandi
getur ekki tekið svona
ákvörðun einn og sér
heldur þurfi alla til. Hann
segir veiðimönnum vera
illa við að fólk sé að vaða
eða sigla í ánum sem þeir
eru að veiða í. „Þeir eiga
bara að vera í sundlaug-
unum,“ segir Hannes.
Hann segir þetta geta
orðið óþægilegt fyrir
veiðimenn en hann mun
ganga á fund bæjarstjóra í vikunni
og reyna að leysa þetta mál farsæl-
lega. „Við vonumst til að finna far-
sællega lausn en þetta er óneitan-
lega flókið," segir Hannes.
Má ekki einoka ána
„Ég skil vel sjónarmið veiðimann-
ana,“ segir Aldís Hafsteinsdóttir
bæjarstjóri Hveragerðis. Hún segir
ána vinsæla hjá yngri kynslóðinni
og undanfarið hefur borið meira
á að kajakræðarar leiki sér í ánni.
Hún segir ræðaranna taka mikið
tillit til veiðimannan.
„Það er ekki hægt að banna börn-
unum að leika sér í ánni,“ segir
Aldís og bendir á að í vatnalögum
komi skýrt fram að ekki megi ein-
oka ána fyrir veiðar. Breytingarnar
sem eru á teikniborðinu fyrir ka-
jakræðara er sú að leggja þil á botn
árinnar til að auka straumþunga
á ákveðnum stað. Það verður til
þess að betri aðstæður myndist
fyrir ræðarana til þess að æfa sig
að sögn Aldísar. Hún segir að þessi
breyting muni ekki hafa nein áhrif
á fiskinn og því ástæðulaust að
hafa áhyggjur.
Allir nýta ána
„Einhvers staðar verða þeir að
æfa sig,“ segir Aldís og bætir við að
leikur þeirra í ánni hafi sett sterkan
svip á bæjarlífið. Ferðamenn fylgj-
ast mikið með krökkunum á kajök-
unum þegar þeir stökkva niður foss-
inn og hafa gaman af, segir Aldís
sem telur þetta skemmtilega viðbót
við menninguna í Hveragerði.
Á sumrin getur áin orðið allt að
20 gráðu heit og því vinsælt fyrir
börnin og unglingana að leika sér
og þar að auki fábær vettvangur
fyrir kajakræðara að æfa sig að
sögn Aldísar.
„Kúnstin er að allir þeir sem vilja
geti nýtt ána í sína afþreyingu,"
segir Áldís sem býst þó við að far-
sælt samkomulag muni nást í þess-
ari deilu.
valur@bladid.net
Blaðið:
Nýir
fréttastjórar
Aðalbjörn Sigurðsson og Erna
Kaaber, fréttastjórar á Blað-
inu, hafa sagt störfum sínum
lausum.
^ Bæði hafa
, ,4 3, , k- 1=- J^osjg ag
róa á önnur mið. Aðalbjörn fer
til starfa hjá íslensku friðargæsl-
unni og Erna stofnar til eigin
atvinnureksturs.
Brynjólfur Þór Guðmunds-
son og Gunnhildur Arna Gunn-
arsdóttir hafa verið ráðnir
fréttastjórar í þeirra stað. Brynj-
ólfur starfaði lengi á Fréttablað-
inu en er nú fréttamaður á NFS.
Hann kemur til starfa innan
fárra daga. Gunnhildur Arna
er blaðamaður á Fréttablaðinu.
Hún kemur til starfa þegar hún
hefur lokið skyldum sínum við
Fréttablaðið.
Aðalbjörn hættir á Blaðinu á
næstu dögum en Erna nokkru
síðar. Þeim er báðum þakkað
gott og óeigingjarnt starf fyrir
Blaðið og óskað alls hins besta
á nýjum vettvangi. Jafnvel er
gert ráð fyrir að þau, annað eða
bæði, leggi Blaðinu til starfs-
krafta á komandi mánuðum.
Veiði:
Norðurá enn
á toppnum
Flestir laxar hafa veiðst í Norðurá
það sem af er veiðisumrinu sam-
kvæmt nýjum veiðitölum sem birtar
eru á heimasíðu Landssambands
veiðifélaga, www.angling.is.
Þegar nýjar tölur voru birtar í
fyrradag höfðu 860 laxar veiðst í
Norðurá en næst á eftir komu Þverá
og Kjarrá þar sem 738 laxar höfðu
veiðst. í þriðja sæti er síðan Blanda
með 409 laxa.
Eins og áður sagði eru þessar upp-
lýsingar fengnar á síðunni www.
angling.is. Þar eru þessar tölu birtar
vikulega og er áhugasömum veiði-
mönnum því bent á að heimsækja
síðuna reglulega. Sérstaklega er rétt
að hafa í huga að hægt er að nálg-
ast sundurgreindar upplýsingar á
síðunni, undir liðnum „meiri upp-
lýsingar" á forsíðu. Þar er meðal
annars að finna upplýsingar um
upphafsdag veiði í hverri á fyrir
sig, stangafjölda í einstökum ám,
lokatölur síðasta árs, sem og meðal-
veiði síðustu tíu ára. Þarna er því
mikil og góð upplýsingaveita fyrir
veiðimenn.
Tilraun til að bæta lífsskilyrði:
Sex hundruð
milljón hopp
í einum af afkimum internetsins
er að finna síðuna www.worldjump-
day.org. Á henni er sagt frá allsér-
stakri tilraun til að bæta lífsskilyrði
hér á jörðinni með þeirri einföldu
aðgerð að hoppa.
Hugmyndin er sú að fá um sex
hundruð milljón einstaklinga til
að hoppa á fyrirfram útreiknuðum
stöðum á fyrirfram gefnum tíma til
að breyta sporbraut jarðar lítillega.
Segir á síðunni að með því sé hægt
að koma í veg fyrir hlýnun jarðar,
tryggja betra loftsslag á stærstum
hluta hnattarins og almennt bæta
lífsskilyrði mannsskepnunnar á
jörðinni. Það eina sem hver og
einn þurfi að gera er að hoppa einu
sinni. Áhugasamir eru beðnir um
að skrá sig og boðið að láta minna
sig á skyldur sínar sólarhring áður
en hoppið á að eiga sér stað. Sam-
kvæmt síðunni hafa nú þegar rúm-
lega 593.849.500 einstaklingar skráð
sig og því vantar mjög fáa upp á.
Það vakti hins vegar athygli blaða-
manns að eftir að hafa fylgst með
síðunni í yfir klukkustund höfðu
aðeins fimmtán einstaklingar bæst
við listann. Það vekur ákveðnar efa-
semdir um að tala um skráða þátt-
takendur sé fullkomlega nákvæm.
Fyrir áhugasama er ennfremur rétt
að benda á að ekki er gefinn upp
nákvæmur tími fyrir áhugasama
hoppara í Reykjavík.
Heiöskfrt Léttskýjað Skýjað Aiskýjað i --...Rigning, lítilsháttar4^*RionmgJí£*Súld - Snjökomai^ siytlda Snjóél ' - s
Jiuj'jjlr Algarve 31
Amsterdam 24
Barcelona 28
Berlín 26
Chicago 22
Dublin 16
Frankfurt 27
Glasgow 20
Hamborg 25
Helsinki 23
Kaupmannahöfn 24
London 22
Madrid 31
Mallorka 30
Montreal 23
New York 25
Orlando 24
Osló 21
Paris 28
Stokkhólmur 20
Vín 24
Þórshöfn 12
Veðurhorfur í dag kl: 15.00
Veðursíminn 902 0600
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu íslands
Á morgun