blaðið - 15.07.2006, Blaðsíða 20

blaðið - 15.07.2006, Blaðsíða 20
20 I VIÐTAL LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2006 blaAÍÖ Lífið er dálítið vesen Eiríkur Jónsson er sennilega umdeild- asti blaðamaður landsins. Þeir sem gagnrýna hann harðast saka hann um sorpblaðamennsku en sjálfur tekur hann gagnrýni á störf sín með heimspekilegri ró. „Mér stendur á sama vegna þess að ég er með góða samvisku. Ég hef aldrei logið,“ segir hann. „Sorpblaðamennska er orð sem ráðsettir menn í þessum bransa, og stundum lítilfjörlegir, nota um það sem ann- ars staðar í heiminum er stundum talið vera eina alvöru blaðamennskan. Fréttir heita „news“ á fjölmörgum tungu- málum vegna þess að þær eiga að fjalla um eitthvað sem fólk hefur ekki heyrt áður. Þær eru sögur sem blaðamaður segir og það fer eftir persónu hans hvernig hann segir þær. Kannski hef ég þann hátt á að segja sögur á galsafenginn hátt eða glannalegan. Stundum hefur verið sagt að ég sé of væminn en það er bara gert til að auka áhrifamáttinn. Svo geta menn talað um sorp og slúður en þá eiga þeir við eitthvað sem þeim finnst óviðurkvæmilegt að segja frá. Þetta sama fólk stundar slúðrið í heitu pottunum, fermingarveislunum og partýjunum. Það er miklu betra að hafa þetta uppi á borðinu." Draumur um ástarsögu Ég hef unnið með þér og mitt mat er að þú hafir ákaflega frumlega hugsun. Finnst þér frumleiki skipta miklu máli? „Það skiptir öllu máli að vera frumlegur, sér- staklega í blaðamennsku. Frumleiki er hluti af sköpun. Ég er svo heppinn að hafa ákveðna hæfileika sem ég get nýtt. Ég hef líka borið gæfu til að vinna með skemmtilegu fólki. Það fólk leitar saman. 1 þeirri upplausn og ólgu sem nú ríkir í íslenskum fjölmiðlum eru menn að safna liði og fara fram undir nýjum merkjum, hvort sem það heitir Fróði eða eitt- hvað annað. Ég vil hafa góða menn í mínu liði. Menn sem ég treysti. Ég tel mig hafa verið í þannig liði. Ég vil ekki vera með sósíalfasist- unum sem eru alltaf að segja fólki hvernig það eigi að lifa. Hér er sjónvarpsstöð sem sendir út allan sólarhringinn og þar eru þáttastjórn- endur að segja fólki hvernig lífið eigi að vera og velja viðmælendur og umfjöllunarefni eftir sinni sýn áveruleikann. Áhorfendur eigaþetta ekki skilið. Fjölmiðlar eiga að vera skemmti- legir. Fréttir eiga að vera skemmtilegar og ef þær eru ekki skemmtilegar í eðli sínu þá verður að vera sveifla í þeim sem gerir þær skemmtilegrar aflestrar. Svo margt byggir á því skemmtilega, hvort sem er í lífinu eða bók- menntunum. Laxness væri ekki frægur rithöf- undur ef hann hefði ekki verið fyndinn. Það sama á við um fólk. Fólk er ekki annað hvort gott eða vont, það er annaðhvort leiðinlegt eða skemmtilegt.“ Þú ert vel ritfær. Hefur þig einhvern tíma langað til að skrifa skáldsögu? „Já, ég hef hugsað um það. Ég ætla ekki að skrifa glæpasögu eins og allir eru að gera. Mig langar til að skrifa alvöru reykvíska ástarsögu.“ Hvenœr œtlarðu að byrja á henni? „Það veit ég ekki. Kannski skrifa ég hana aldrei en þú spurðir hvort mig langaði til að skrifa og ég held að það væri gaman að skrifa svona bók.“ „Ferðalög byggjast á tilhlökkun að leggja af stað og tilhlökkun að koma heim. Allt sem er þar á milli er tómt vesen. Eins er með lífið, það er gaman að fæðast, svo kemur hryna af veseni. Líf- ið er nefnilega dálítið vesen. Ég kvarta samt ekki." Aö vænta einskis Hvernig myndirðu lýsa lífsviðhorfum þínum? „Lífsskoðanirnar koma með aldrinum. Þær eru niðurstaða sem maður kemst að eftir að hafa lent í ólgusjó og brimróti og gleði og sorg. Ég veit ekkert hvaða nafn má gefa lífsskoðun minni en hún byggir á því að öll augnablik séu dýrmæt. Og eins og mætur maður sagði þá hefur lífið einkennilega tilhneigingu til að leita jafnvægis. Þetta veit ungt fólk ekki en maður lærir þetta með tímanum. Allt getur

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.