blaðið - 15.07.2006, Page 23

blaðið - 15.07.2006, Page 23
blaöiö LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2006 MATURI 23 /7 MATRl Ragga Omars Gratínerað brokkólí Kona sendi mér tölvupóst um daginn og spurði hvort ég væri með einhverja sniðuga hugmynd að því hvernig hægt væri að gera eitthvað sniðugt við brokkólí. Henni finnst brokkólí svo gott en engum öðrum á heimilinu. Hún vildi því prófa eitt- hvað annað en bara að sjóða það. Ég hef reyndar oft heyrt að margir borði ekki brokkólí og margt annað ferskt græn- meti. Reyndar var ég ekkert skárri sjálfur þegar ég var að byrja að læra kokkinn fyrir nokkrum árum, sennilega vegna þess að það var bara grænmeti í dósum heima hjá mér í æsku og maður kunni ekkert að meta þetta. Ekki það að úrvalið hafi verið svo mikið þá en það var ein- göngu gulrætur, blómkál og brokkólí notað með aðal- réttum þar sem ég var að læra kokkinn. Síðan var bara kiwi notaður í eftirréttina, alveg meiriháttar! 1 dag er þetta svolítið annað og úrvalið af grænmeti er orðið al- veg ótrúlegt. Mér finnst að fólk eigi að leika sér meira með þessar tegundir sem eru í boði, eins og ferskan aspas, steinseljurót, sellerírót og alla þessa sveppi svo eitthvað sé nefnt. En aftur að brokkólíinu, það er nú eitt og annað sem hægt er að gera við það. Til dæmis má krydda það með hvítlauksolíu og ferskum söxuðum kryddjurtum eða velta því upp úr smá sojasósu og engifer. Önnur skemmtileg aðferð er að þynna dijonsinnep með smá vatni og blanda saman við soðið brokkólíið og saxa ferskt estragon út á, þetta er agalega gott. Síðan er hægt að gratínera brokkólíið og það er einmitt uppskriftin sem ég læt fylgja með í dag. í uppskriftinni nota ég hvítlauksost en það er hægt að nota hvaða ost sem er. ostur Ijuffengur kostur! Fyrir fjóra Ca. 400 g brokkólí (magnið fer eftir þvi hve hrifið fólk af brokkólíi) 1 msk sýrður rjómi Idl mjólk 'h stk hvítlauksostur (rifmn) 1 msk parmesanostur (fínt rifinn) 1 tskdijonsinnep Sjóðið brokkóliið í 2 mínútur í soðnu vatni (segir sig kannski sjálft), þerrið það og kryddið með salti og pipar. Setjið brokkólíið í eldfast mót, blandið öllu öðru saman í potti eða í örbylgjuofni þangað til allt er blandað vel saman. Hellið blöndunni yfir brokkólfið og bakið inni í 220 g heitum ofni eða undir grilli þangað til ostasósan fer að gullinbrúnast. Þetta er gott með öllum mat fiski, kjöti eða grænmeti. Kveðja Raggi Ferskt sushi við Reykjavíkurhöfn Vinsældir sushi hafa borist eins og eldur í sinu um hciminn og fsland hefur ekki farið varhluta af því. Nýverið opnaði Sushismiðjan lítinn og sjarmerandi stað við Reykjavíkurhöfn. Á staðnum er hægt að panta og taka einstaklega bragðgott sushi með heim. Stefanía Ingvarsdóttir rekur Sushismiðjuna ásamt eiginmanni j sinum og f ö ð u r . H ú n smakk- a ð i s u s h i fyrst í New York árið 1997 og kolféll fyrir því. „Mér fannst það geðveikislega gott. Við stofnuðum fyrirtækið í febrúar 2003 enda erum við mikið áhugafólk um sushi. Við byrjuðum í samstarfi við aðila í Finnlandi en þangað sendum við frosið sushi. Við- skiptin þróuðust svo út í það að við vorum eingöngu með ferskt sushi á innanlandsmarkaði. Betra með hverjum bita Samkvæmt Stefaníu hafa vin- sældir sushi vaxið ört á Vestur- löndum síðustu ár og það sér ekki fyrir endann á því ennþá. „Yfirleitt er það þannig að ef fólk smakkar sushi þá finnst þeim það betra og betra með hverjum bita, segir Stef- anía og hlær. „Mér hefur fund- ist sem fólki finnist hug- myndin um sushi skrýtin en um leið og það smakkar sushi þá er það undrandi á hve gott það er. Enda hafa viðtökurnar verið rosa fínar og við erum æðislega ánægð. Fólki finnst þetta spennandi og það skemmir ekki fyrir að vera niðri á bryggju. Það er alltaf skemmti- leg stemning á bryggjunni og við erum með barborð og barstóla þar sem fólk getur tyllt sér og horft út á sjóinn." Hollt og létt í maga Stefanía talar um að laxinn og tún- fiskurinn séu vinsælustu réttirnar í Sushismiðjunni en rúllurnar séu líka vinsælar. „Sushi saman- stendur af nokkrum mismunandi bragðteg- undum og það er allt ferskt. Fisk- *v , ■ urinn verður að vera fyrsta flokks og glænýr, grænmetið verður að vera ferskt og þar fram eftir götunum. Þetta er vit- anlega mjög mikil ferskvara. Eins er sushi hollt og létt í maga,“ segir Stefanía og bætir við að í Sushismiðjunni selja þau ekki ein- ungis sushi heldur einnig fiskisúpur, kaldar japanskar núðlur og fleira. ,Við erum alltaf að þróa okkur áfram og bæta fleiri tegundum við.“ Sushi Sushi er hefðbundinn japanskur rétt- ur sem á sér yfir 1300 ára langa sögu. Öldum saman var sushi notað sem varð- veisluaðferð þegar ekki var um margt að velja við varðveislu matvæla. Sushi leik- ur ekki aðeins við bragðlaukana, heldur er það einnig mjög hollt. Það er saman- sett úr nokkrum mismunandi hráefnum sem hvert um sig aðstoðar líkamann við mismunandi daglegar þarfir.

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.