blaðið - 14.11.2006, Side 6
ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2006
blaöiö
Höskuldur tekur við
Höskuldur H. Ólafsson hefur verið ráðinn forstjóri VISA
(slands - Greiðslumiðlunar. Höskuldur tekur við af Halldóri
Guðbjarnasyni sem hefur starfað hjá fyrirtækinu undanfarin
sjö ár og lét af störfum í síðustu viku. Höskuldur hefur um
árabil starfað hjá Eimskip, síðast sem aðstoðarforstjóri.
Brottkast eykst
Brottkast þorsks hefur verið 2.594 tonn á síðasta
ári, eða 1,27 prósent af lönduðum afla, samkvæmt
mælingum Hafrannsóknastofnunar. Það er talsvert
meira en síðustu þrjú ár. Brottkast ýsu var 4.871
tonn, eða 5,24 þrósent af lönduðum afla.
Góð sala á mjólkurafurðum
Góð sala var á mjólkurafurðum í október og nam aukn-
ingin, miðað við sama mánuð í fyrra, 9,8 prósentum á svo-
nefndum prótíngrunni en 13,9 prósentum á fitugrunni, að
sögn Landssambands kúabænda. Samdráttur hefur hins
vegar verið í skyri, tólf prósent og jógúrt, sjö prósent.
Veður:
Sendibíll valt
Mbl.is Sendibíll valt á Vesturlands-
vegi við bæinn Fiskilæk skömmu
fyrir klukkan tíu í gærmorgun.
Að sögn lögreglunnar í Borgar-
nesi var ökumaður einn í bílnum
og slapp hann með minni-
háttar áverka. Bíllinn er mikið
skemmdur, en mjög hvasst var í
veðri og mikil hálka.
,---- r
í camet ^ \W W\n
scnve JlVUIl
REALITY WEAR
Gabor
www.xena.is
x€na
SPÖNGINNI S: 587 0740
MJÓDDINNI S: 557 1291
GLÆSIBÆ S: 553 7060
BORGARNESI S: 437 1240
Jóhannes í yfirheyrslu
Efnahagsbrotadeild
ríkislögreglustjóra hefur
boðað Jóhannes i Bónus
til yfirheyrslu vegna brota á
skattatögum. Hann furðar
sig á því að málið sé til rann-
sóknar á tveimur stöðum.
Jóhannes í Bónus kallaður til yfirheyrslu hjá ríkislögreglustjóra:
Óhæfir menn
■ Málið til rannsóknar á tveimur stöðum ■ Enginn fær sérmeðferð
Eftir Trausta Hafsteinsson
trausti@bladid.net
„Ég tjáði að sjálfsögðu sakleysi mitt
enda búið að henda út sömu sakar-
giftum fyrir dómstólum. Ég sætti
mig ekki við að forsjá þessa máls
sé aftur komin í hendur óhæfra
manna sem engan veginn eru
starfi sínu vaxnir,“ segir Jóhannes
Jónsson verslunarmaður sem í
gær var boðaður til yfirheyrslu hjá
ríkislögreglustjóra vegna brota á
skattalögum. Málið er einnig til
rannsóknar hjá yfirskattanefnd og
Jóhannes furðar sig á því að málið
sé til rannsóknar á tveimur stöðum
í einu i sama réttarkerfinu. Jón H.B.
Snorrason, yfirmaður efnahags-
brotadeildar ríkislögreglustjóra,
stýrir rannsókninni og ábyrgðar-
maður hennar er Haraldur Johann-
essen ríkislögreglustjóri.
Á að vera hjá okkur
Jón vildi lítið tjá sig um mál sem
eru til rannsóknar. Hann vísar
áskökunum Jóhannesar alfarið á
bug og skilur ekki hver hefði átt að
rannsaka málið ef ekki starfsmenn
ríkislögreglustjóra. „Þegar grunur
um brot liggur fyrir er eðlilegt að
embætti ríkislögreglustjóra rann-
saki máli. Áttu kannski björgun-
arsveitirnar að fara ofan í málið?“
segir Jón. „Þau mál sem eru til skoð-
unar hjá okkur eiga að vera til skoð-
unar hjá okkur, meira hef ég ekki
um það að segja.“
Algjör niðurlæging
Aðspurður er Jóhannes undrandi
yfir því að til yfirheyrslunnar sé
boðað þar sem yfirskattanefnd sé
enn að rannsaka málið. Hann telur
eðlilegt að bíða þeirrar niðurstöðu.
„Það eru sömu menn sem standa
bak við þessar yfirheyrslur nú og
stóðu að baki málarekstrinum
fyrir dómstólum. Þeir voru
með stórar yfirlýsinga:
um glæpamennsku
minnar fjölskyldu og
eru nú komnir aftur af
stað,“ segir Jóhannes.
„Ætli þessar aðgerðir
nú séu ekki einhver
vonlaus tilraun
til upphafningar
þessara manna
því að niðurlægingin
var náttúrlega algjör
þegar málinu var
visað frá.“
Erum að rannsaka
refsimál
Jón bendir á að
yfirskattanefnd
rannsaki ekki brot
á skattalögum
heldur sé þar að
einsúrskurðað
um skatta-
greiðslur. Hjá nefndinni fáist aðeins
skattalegar niðurstöður. „Nefndin
tekur aðeins á því hversu mikið á
að borga í skatt, ef menn eru ekki
ánægðir með niðurstöður ríkisskatt-
stjóra. Þetta hefur hins vegar ekkert
með refsimál að gera,“ segir Jón og
vildi lítið tjá sig um orð Jóhannesar
um óhæfi forsvarsmanna rannsókn-
arinnar. „Ef einhver brýtur af sér á
þessu sviði þá lendir hann hjá okkur
til rannsóknar. Menn geta
ekkert valið Jón eða
Gunnu til að stýra
rannsókninni
og hér fær eng-
inn sérmeð-
ferð, hvort
sem hann er
snauður eða
ríkur oghvort
sem hann
afgreiðir kjöt-
fars eða ekki.
Svona er þetta
bara,“ segir Jón.
Jón H.B. Snorrason Ef einhver
brýtur af sér á þessu sviði þá lend-
ir hann hjá okkur ti/ rannsóknar.
Samfylking:
Ágúst getur
vel við unað
{prófkjöri Samfylkingarinnar í
Reykjavík um helgina var harðast
barist um fjórða sætið sem Ágúst
Ólafur Ágústsson varaformaður
hlaut.
„Ég held að almennt verði menn
að túlka þessa kosningu fyrir
hann sem ágæta. Hann er náttúr-
lega að berjast um fjórða sætið við
sjö aðra og hann tryggir sér það
sæti sem hann biður um,” bendir
Einar Mar Þórðarson, stjórnmála-
fræðingur og verkefnastjóri hjá Fé-
lagsvísindastofnun, á. „Það voru
leiðinlegar umræður í kringum
varaformannskjörið og Ágúst
hefur sýnt að flokksmenn eru
ánægðir með hann,” segir Einar
Mar. Hann telur að Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir, formaður Sam-
fylkingarinnar, geti einnig vel
við unað en hún hlaut 70 prósent
gildra atkvæða í fyrsta sæti. „Ég
held að það breyti svo sem engu
um hennar stöðu þótt hún hefði
sjálfsagt viljað fá betri kosningu.
Kannski eru einhver sárindi eftir
frá því í formannskjörinu.”
Bílainnflutningur:
Tuttugu þús-
und innfluttir
Á árinu 2005 voru skráðir
20.875 nýir bílar, en það sem af er
árinu hafa verið nýskráðir 18.472
bílar. Bílainnflutningur hefur
vaxið jafnt og þétt frá árinu 2002
og var árið 2005 metár þar sem
samtals 26.000 bílar voru fluttir
inn.
Özur Lárusson, framkvæmda-
stjóri Bílgreinasambandsins,
segir að innflutningurinn hafi
dregist miklu minna saman en
menn bjuggust við. „Samdrátt-
urinn hjá umboðunum er frekar
lítill en þetta er mjög áberandi
hjá þessum svokallaða gráa
markaði,“ segir Özur og á þá við
einkainnflutning.
Hreint ehf. var stofnaö áriö 1983 og er eitt elsta
og stærsta ræstingarfyrirtaeki landsins.
Er HREINT hjá þínu fyrirtæki
Hreint býður upp á ókeypis ráðgjöf
Hneint
Auðbrekku 8, 200 Kópavogi, sími 554 6088, hreint@hreint.is, www.hreint