blaðið - 14.11.2006, Side 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2006
+
blaðið
UTAN ÚR HEIMI
SUÐUR-KÓREA
Munu ekki leita í skipum
Stjórnvöld í Suður-Kóreu hafa lýst því yfir að þau muni
ekki verða við kröfu Bandaríkjamanna um að þau
stöðvi norðurkóresk skip til að hamla útbreiðslu gereyð-
ingarvopna. Stjórnvöld í Seúl óttast að slíkar aðgerðir
gætu leitttil vopnaðra átaka á Kóreuskaganum.
SÁDI-ARABÍA
Astandið i frak ógn við Mið-Austurlönd
Innanríkisráðherra Sádi-Arabíu, Naif fursti, segir Irak vera
griðland hryðjuverkamanna og að þeir geti notað sterka
stöðu sína í landinu til þess að gera árásir á önnur ríki.
Naif segir ástandið í landinu hríðversna frá degi til dags og
það ógni stöðugleikanum við botn Miðjarðarhafs.
iSRAELi
Sannfærður um áframhaldandi stuðning
Ehud Olmert, forsætisráðherra Israels, segist sannfærður
um áframhaldandi stuðning Bandaríkjamanna við Israels-
menn þrátt fyrir breytt pólitískt landslag í kjölfar þingkosn-
inganna í síðustu viku. Olmert fundaði með George Bush
Bandaríkjaforseta í gær og ræddu þeir málefni Palestínu,
Róbert Wessmann:
Á Harley í við-
skiptatímariti
Róbert Wessman, forstjóri
Actavis, birtist vígalegur og
leðurklæddur á Harley-Dav-
idson mótorhjóli á forsíðu
nóvemberútgáfu European
Business. Tímaritið er gefið út af
CNBC-viðskiptafréttastofunni.
ítarleg umfjöllun er um Róbert
í blaðinu þar sem afrek hans
á viðskiptasviðinu og hlutverk
í framgangi Actavis er reifað.
Umfjöllunin i garð Róberts er
ákaflega jákvæð og honum með-
al annars lýst sem miklum keppn-
ismanni sem eigi auðvelt með að
hvetja samstarfsmenn sína áfram.
Aðspurður um hið góða gengi
Islendinga í alþjóðaviðskiptum
á undanförnum árum segir
Róbert skýringuna að finna í
óblíðum náttúruöflum en þau
hafi styrkt samkeppniseðli
eyjarskeggja gegnum aldirnar.
MEGA
OMEGA-B
1300 mg
foi) K<ýi h€ilsa
“*6A>i<r fek.i? mk -haföu þaö gott
Vopnaútflutningur Svía Þrátt fyrir
að einungis megi framleiða vopn tit
að verja sænska grund er útflutn-
ingurinn meiri en nokkru sinni fyrr.
Vopnaútflutningur Svíþjóðar hefur þrefaldast síðustu ár:
Vopn fyrir 84 milljarða
Þvert á reglur og stefnu stjórnvalda Framleiða mest miðað við höfðatölu
Eftir Atla isleifsson
atlii@bladid.net
Vopnaútflutningur sænskra fyrir-
tækjahefur þrefaldast frá árinu 2001.
Þrátt fýrir að sænsk stjórnvöld
hafi ávallt verið andsnúin
hernaði hinna staðföstu
ríkja, má fýrst og fremst
rekja söluaukninguna til
aukinnar eftirspurnar
vegna Íraksstríðsins.
Vopnasalan hafði um
árabil numið um þremur
milljörðum sænskra króna, en
árið 2005 nam hún tæplega níu
milljörðum, eða um 84 milljörðum
íslenskra króna. Frá upphafi Ir-
aksstríðsins árið 2003 hafa sænsk
fyrirtæki selt staðföstum ríkjum
vopn fyrir tæplega sextíu milljarða
íslenskra króna.
Þetta kom fram í Uppdrag
granskning, fréttaskýringaþætti
ivold
á
sænska ríkissjónvarpsins, sem var
sýndur í síðustu viku. I Svíþjóð
er bannað að flytja út vopn. Sam-
kvæmt lögum og reglum má ein-
ungis framleiða vopn sem eru notuð
til að verja sænska grund, en í
H§|v undantekningartilvikum
er hægt að fá leyfi fyrir
útflutningi vopna. Þá er
{ bannað að selja ríkjum
^f vopn þar sem stjórnvöld
g|r kúga eigin þjóð, ríkjum
Wr sem taka þátt í stríði og
-Jltil ríkja á svæðum þar sem
líkur á stríði eru miklar. I þætt-
inum kom fram að ákvarðanir um
undanþágur eru orðnar að reglu í
útflutningsráði landsins.
Síðustu þrjú árin hefur útflutn-
ingsráð Sviþjóðar veitt um átta
hundruð undanþágur sem stríða
gegn þeirri stefnu sem tekin er í
sænskum lögum. Vöxtur vopnaút-
flutnings undanfarin ár hefur fært
Brynbaninn Carl Gustav
Er ein helsta söluvara sænska
vopnaframleiðandans Bofors.
Svíþjóð upp í tíunda sæti yfir mestu
vopnaútflutningsríki í heimi og ef
mið er tekið af höfðatölu eru Svíar
í efsta sæti. Útflutningur vopna
frá Svíþjóð til Bandaríkjanna og
Bretlands, ríkjanna sem leiða hern-
aðinn i Irak, hefur stóraukist á
siðustu árum og hefur aldrei verið
meiri. Sænsk vopn eru annars flutt
út til rúmlega fjörutíu landa víðs
vegar um heim. Carl Söderbergh,
talsmaður Svíþjóðardeildar Am-
nesty, gerir margar athugasemdir
við að sænsk fyrirtæki fái leyfi
til að flytja út vopn til ýmissa af
þessum löndum og nefnir Brasilíu
og Venesúela sérstaklega í því sam-
bandi. „I þessum löndum hefur
lögregla landanna staðið fyrir ótal
dauðsfalla. Við gerum einnig at-
hugasemdir við sölu vopna til Ind-
lands og Pakistans, þar sem ríkin
eiga í innbyrðis deilum í Kasmír-
héraði. Útflutningur til Sádi-Ar-
abíu orkar einnig tvímælis. Ríkið
er á svörtum lista Amnesty þar
sem stjórnvöld hafa gerst sek um
sex af sjö mögulegum tegundum af
mannréttindabrotum."
Á heimasíðu þáttarins kemur
fram að vopnaútflutningur
sænskra fyrirtækja til íslands hafi
numið hundrað þúsund sænskum
krónum bæði árið 2004 og 2005.
20%
afsláttur
af gluggatjaldahreinsun
í nóvember
Gæóahreinsun Þekking Góó þjónusta
EFNALAUG
ÞVOTTAHUS
Háaleitisbraut 58-60 • Sími 553 1380
Álfabakka 12 • Sími 557 2400
www.bjorg.is