blaðið - 14.11.2006, Page 14
blaðið
14 ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2006
HVAÐ MANSTU?
1. Hvenær er Nikulásarmessa sungin?
2. Hver er upplýsingafulltrúi lcelandair?
3. Um hvaða rokkhljómsveit er bókin Hammer of the Gods?
4. Forsætisráðherra hvaða lands heitir Fouad Siniora?
5. Hvaða ár fæddist knattspyrnugoðið Diego Maradona?
N!K»
?
GENGI GJALDMIÐLA
Svör:
KAUP
■ Bandarikjadalur 67,93
SiS Sterlingspund 129,56
SS Dönskkróna 11,693
-J— Norskkróna 10,649
2S Sænskkróna 9,59
Oi Evra 86,22
SALA
68,25
130,18
11,761
10,711
9,646
87,7
Danskir blaðamenn:
Ákærðir útaf
leyniskýrslu
Mbl.is Ritstjórinn og tveir blaða-
menn á Berlingske Tidende
í Danmörku komu fyrir rétt í
gær, ákærðir fyrir að hafa birt
leynilegar upplýsingar um
vopnaeign íraka. Þeir vitnuðu
í skýrslu dansks leyniþjónustu-
manns, Frank Grevil, í greinum
sem birtust í blaðinu 2004.
f skýrslunni, sem skrifuð
var áður en innrásin í frak
hófst 2003, komst Grevil að
þeirri niðurstöðu að engin
gereyðingarvopn væru í frak.
Ritstjórinn, Niels Lunde, og
blaðamennirnir, Michael Bjerre
og Jesper Larsen, neituðu sök
í málinu. En finni dómstólf-
inn þá seka geta þeir átt yfir
höfði sér sekt eða tveggja ára
fangelsi. Grevil var dæmdur
í fjögurra mánaða fangelsi í
fyrra fýrir að hafa lekið upplýs-
ingunum til blaðamannanna.
Virðisaukaskattur á tónlist:
Þvingar sig til bjartsýni
■ Ráðherra segir málin í skoðun ■ Gert upp á milli samkeppnisvarnings
Eftir Atla ísleifsson
atlii@bladid.net
„Þessi mál eru til skoðunar í fjármála-
ráðuneytinu ásamt fleiri þáttum í
tengslum við skattamál," segir Jón
Sigurðsson viðskiptaráðherra. Hann
segir að enn hafi ekki verið tekin
nein ákvörðun um það hvort eða hve-
nær virðisaukaskattur á fslenskri tón-
list yrði lækkaður líkt og á bókum.
Hluti af tillögum ríkisstjórnar-
innar til lækkunar á vöruverði sem
voru settar fram í haust er að lækka
virðisaukaskatt á þeim vörum sem
verið hafa f fjórtán prósenta þrepi
niður í sjö prósent þann 1. mars
2007. Jón segir að við virðisauka-
skattsbreytingarnar sem taka gildi
1. mars næstkomandi og fófu meðal
annars f sér lækkun virðisaukaskatts
á íslenskum bókum, blöðum og tíma-
ritum, hafi verið litið á þá liði sem
voru í neðra þrepi virðisaukaskatts.
„Við vildum ekki fara í þriggja
þrepa kerfi. Tónlistarbönd voru ekki
rædd á þeim tíma því að þau eru ekki
í þessu neðra þrepi. Við vorum að
breyta til þarna og þegar menn fóru
að ræða við okkur um tónlistarbönd
gátu þeir allt eins talað við okkur um
Iferíð er að veita
| annarri vörunni
mikið forskot
á hina
Magnús Kjartansson
Framkvæmdastjóri FTT
hundrað milljón aðra hluti. Tónlist-
arböndin voru ekki þáttur í þessari
ákvörðun, en eru hins vegar til athug-
unar hjá skattayfirvöldum og fjár-
Wð vildum ekki
þriggja þrepa
skattkerfi
Jón Sigurösson
Viöskiptaráðherra
málaráðuneytinu líkt og alltaf þegar
verið er að skoða samkeppnisstöðu
milli listgreina."
Magnús Kjartansson, fram-
kvæmdastjóri Félags tónskálda og
textahöfunda, segir að það hljóti að
vera góðar fréttir fyrst málið er til
skoðunar í ráðuneytinu. Tónlist er
nú í efra þrepi virðisaukaskattsins,
24,5 prósenta flokknum.
„Ég þvinga mig til bjartsýni og að
hafa trú á réttlætiskennd íslenskra
stjórnmálamanna. Ég vona bara að
stjórnvöld horfi til þeirra reglna sem
þau setja sjálf um jafnræði og sam-
keppni. Menningararfurinn, tónlist,
bækur, kvikmyndir eða hvaða öðru
nafni sem þetta heitir, er gífurlega
stór hluti af þjóðarframleiðslunni.
Það er þvf ekkert skrýtið að menn
vilji að það verði skoðað að lækka
virðisaukaskatt á íslenska tónlist.“
Magnús telur að stjórnmálamenn
séu almennt að átta sig á því að
skattalækkanir geti haft gífurlega já-
kvæða tekjuaukningu í för með sér.
„Það má enginn skilja sem svo að ég
sé á móti því að virðisaukaskattur á
bækur sé lækkaður. Mér finnst samt
ekki gott að verið sé að gera upp á
milli samkeppnisvarnings.'Tslenskir
stjórnmálamenn séu síðastir að átta
sig á því að bókmenntaþjóðin varð
að tónlistarþjóð, beint fyrir framan
nefið á öllum.
MírSUBISHI C er frábaer bíll sem hefur sópad ad sér verdlaunum, enda
kostirnir augljósir; glaesileg hönnun, mikid innra rými med mikla möguleika,
nýjar öflugar vélar, 6 hrada „ Allshift" sjálfskipting og margt fleira.
Stadalbúnadur MASC stödugleikastýring
ABS hemlalæsivörn • EBD hemlajöfnunarkerfi
MATC spyrnustýring • Aksturstölva • Hití i framsætum
Fjarstýrdar samlæsingar ■ Rafdrifnar rúduvindur
Komdu og prófadu hann
Verd: 1.590.000 kr,
MITSUBISHI
MOTORS
Umboösmenn um land allt: Hóldur hf„ Akureyri, slmi 461 6020 ■ HEKLA, Borgarnesi, slmi 437 2100 • HEKLA, Isafirði, slmi 456 4666 | HEKLA, Laugavegi 174, slmi 590 5000