blaðið - 14.11.2006, Síða 16

blaðið - 14.11.2006, Síða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2006 blaðið ÞAU SÖGÐU FRJÁLS FÖR VERKAFÓLKS í PÓLITÍK Fólk flykkist í flokkinn og ég hef ekki undan 99 að senda málefnaskrá til nýrra féiaga.” MARGRÉT SVERRISDÓTTIR, FRAMKVÆMDASTJÓRI FRJÁLSLYNDRA, I FRÉTTABLAÐINU I GÆR. ÞARF AÐ HALDA UPP Á EITTHVAÐ FLEIRA? í Mýrinni lifir ekkert eftir af íslenskum 99 hefðum utan einn sviðakjammi.” BAKÞANKAR ÞRÁINS BERTELSSONAR f SAMA BLAÐI SNÚAST UM KVIKMYNDIR. Bandaríkjastjórn skoðar meiri samvinnu: Vill sátt um Íraksstríð Súdan: Vígamenn á ferð í Darfúr Um þrjátíu voru myrtir og um fjörutíu særðir eftir að hópur vígamanna á hestum og kameldýrum gerði árás á þorp í Darfúr-héraði í gær að sögn friðargæsluliða Afríkubanda- lagsins. Janjaweed, arabískir vígamenn sem njóta stuðnings stjórnvalda, eru grunaðir um að bera ábyrgð á árásinni. 180 milljónir til Malaví: Tvö hundruð nýjar borholur Þróunarsamvinnustofnun Islands er að ráðast í mikið vatns- og hreinlætisverkefni í Malaví og er það unnið í samstarfi við þrjú ráðuneyti í Malaví og héraðs- stjórnir í suðurhluta landsins. Verkefnið er til fjögurra ára og hefst fyrir áramót og lýkur í árslok 20io. Kostnaður ÞSSl vegna verksins er áætlaður 180 milljónir króna. Meginmark- miðið er að styðja við bakið á stjórnvöldum í Malaví í viðleitni þeirra til að ná þúsaldarmarkmið- um Sameinuðu þjóðanna. Stefnt er að því að bora hundrað nýjar borholur, endurbæta fimmtíu aðrar og tryggja verndun vatns- bóla til að fækka dauðsföllum í héraðinu sem rekja má til heilsuspillandi drykkjarvatns. ■ Bush fundaöi meö þverpólitískri íraks-nefnd ■ Viöræður viö írana ekki útilokaðar Eftir Örn Arnarson orn@bladid.net Ríkisstjórn George Bush Banda- ríkjaforseta hefur gefið sterklega til kynna að hún sé opin fyrir nýjum hugmyndum varðandi lausnir á ástandinu í írak. Hún hefur sýnt áður óþekktan vilja til þess að mynda þver- pólitíska sátt í málefnum Iraks. Bush fundaði með þverpólitískri rannsóknarnefnd um Irak í gær en störf nefndarinnar eru leidd af James Baker, fyrrum utanríkisráðherra. Fjöl- miðlar hafa greint frá því að nefndar- menn muni leggja til að stjórnvöld slaki á harðlínustefnu sinni gagvart Sýrlendingum og írönum gegn því að þeir beiti áhrifum sínum til þess að mynda stöðugleika í Irak og blása nýju lífi friðarferlið fyrir botni Miðjarðarhafs. Josh Bolten, starfsmannastjóri Hvíta hússins, sagði við fjölmiðla á sunnudag að stjórn- völd myndu ekki útiloka neinar 1 a u s n i r varðandi ástandið í írak. T o n y B 1 a i r, forsætis- ráðherra Bretlands og helsti b a n d a - maður Bush í hinu hnatt- stríði gegn hryðjuverkum, sagði í ræðu í London í gærkvöldi að nauð- synlegt væri að stjórnvöld í Damaskus og Teheran beittu sér í Iraksmálum en varaði þau við að grafa undan til- raunum Bandaríkjamanna og Breta til að koma böndum á ástandið. Þrátt fyrir að rannsóknarnefnd Bakers muni ekki skila niðurstöðum strax er talið að hún geti myndað far- veg sáttar milli repúblikana og demó- krata um stefnu gagnvart Irak. Demó- kratar vilja að byrjað verði fljótlega að kalla bandaríska hermenn heim frá írak en ekki er samstaða þeirra á meðal hvernig eigi að standa að framkvæmdinni. Stefna George Bush hefur falist í því að „halda kúrsinn” en repúblikanar óttast að írak sökkvi endanlega í fen borgara- og trúarbragðastriðs hverfi bandarískir hermenn á brott áður en ríkisstjórn landsins geti tryggt öryggi þess. Baker hefur sagt í viðtölum að nefndin muni leggja til stefnu sem tekur mið af áherslum demókrata og repúblikana ásamt því að taka upp viðræður við Irana og Sýr- lendinga. Vandamálið verði ekki leyst án þess að taka tillit til heildarhagsmuna svæðisins. Bandarísk stjórnvöld og klerka- stjórnin í Teheren eiga ekki í stjórn- málasambandi. Hinsvegar var náið samstarf á bak við tjöldin í kjölfar þess að Banda- r æ n a Neyddur til að skipta um skoðun Ósigur repú- blikana í þingkosningun- um i siðustu viku og nöt- uriegt ástand i irak gerir að verkum að George Bush Bandarikjaforseti á um fáa aöra kosti að velja en að ihuga aðrar leiðir í iraksmálum. Daglegt brauð Syrgjenduríjarð- arför í Najaf í gær. Ekkert tát er á skálmöldinni f landinu. ríkjamenn steyptu stjórn talibana af stóli í Afganistan. Auk þessa hafa samskipti Banda- ríkjamanna og Sýrlendinga verið stirð und- anfarin ár. Talsmaður utanríkisráðu- neytis frans sagði í gær að klerkastjórnin myndi taka öll tilboð Banda- ríkjamanna um viðræður til greina. Sýrlenski sendiherrann í Banda- rikjunum sagði í gær að stjórnvöld í Damaskus væru reiðubúin að beita sér í málefnum Iraks. Bretland: Milljónir með salernisfælni Herferð til að efla vitund manna um salernisfælni er hafin á Bretlandseyjum. Samtök fælnisjúklinga hafa gefið út bók og myndband til að vekja athygli á vanda þeirra sem eiga við salern- isfælni að stríða. Forsvars- menn samtakanna telja að allt að fjórar milljónir Breta eigi í einhvers konar sálar- kreppu þegar kemur að því að nota almenningssalerni. Þeir sem þjást af salernis- fælni eiga erfitt með að nota al- menningssalerni og salerni á opinberum stöðum. I flestum tilfellum eru einkennin væg og felast aðallega í því að vera illa við að nota slík salerni.

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.