blaðið - 14.11.2006, Blaðsíða 28
28 I BÍLAR
Draumabíllinn
ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2006 blaöiö
Fátt jafnast á við Benz
„Ég er reyndar afspyrnu lélegur
í þessum bílamálum, en ætli ég
verði ekki að segja Benz-jeppi
GL500,“ segir knattspyrnuþjálfar-
inn Logi Ólafsson, aðspurður um
draumabílinn.
„Ef ég fengi að uppfylla drauma
mína hvað bíla varðar og hefði efni
á slíkum draumi myndi ég eflaust
fjárfesta í einum slíkum.”
Fegurðin kemur að innan
Logi kveðst myndu kjósa góðan
bíl sem á sjaldan erindi á bifreiða-
verkstæðin, en slíkar heimsóknir
eru honum ekki að skapi. „Það
pirrar mig alveg út í hið óendan-
lega að þurfa að fara á allt sem
heitir bíla- eða hjólbarðaverkstæði
og þess vegna reyni ég að komast
hjá lélegum bifreiðum,” segir hann
og bætir við að Benz-bílarnir tróni
að hans mati á toppnum hvað þetta
varðar. „Ástæðan fyrir því að ég
myndi kjósa Benz er einfaldlega sú
að fátt jafnast á við það vörumerki.
Að auki eru þeir sérstaklega flottir
í útliti, sem er auðvitað stór kostur.
Annars er það nú reyndar þannig,
eins og Bubbi söng hérna forðum,
að fegurðin kemur að innan og því
ekki hægt að taka útlitið eitt og sér.
Það má kannski horfa frekar á allt
kramið í bílnum og vélarstyrkinn,
sem er mjög heillandi, auk
þess sem allt innihaldið
er í toppi. Bílunum
fylgir líka ákveðinn
lúxus og þægindi
fyrir ökumann og far-
þega. Sannkallað þýskt
eðalstál.”
Sáttur við eigin bíl í dag
Logi segist hafa þokkalegt vit á
bílum, en tekur þó fram að hann sé
ekki einn þeirra sem búi yfir gryfju
í bílskúrnum hjá sér fyrir bifreiða-
stúss. Hann er ekki haldinn bílad-
ellu og myndi seint leggja í að gera
upp heilan skrjóð.
„Þó ég sé alls ekki bíladellukarl þá
hef ég áhuga á góðum og skemmti-
legum bílum. Ég tel mig hafa þokka-
legt vit á bílum, en það ristir ekki
mikið dýpra en það. Til dæmis er
ég ekki með sérstaka aðstöðu fyrir
bílastúss eða annað slíkt og get sagt
hreint út að ég myndi aldrei kaupa
skemmdan bíl og gera hann upp.
Þegar kemur að svona hlutum verð
ég einfaldlega að viðurkenna van-
mátt minn,” segir Logi. Þrátt fyrir
drauma um Merzedes Benz-jeppa
segist hann afar ánægður með þá bif-
reið sem hann ekur á í dag. „Núna
er ég á Volvo-jeppa sem hefur reynst
mér alveg gríðarlega vel og er fyrir-
taksbíll. Framleiðendur og fleiri
kjósa nú að kalla þetta fasteign á
hjólum og ætli ég verði ekki bara að
taka undir það.”
Knattspyrnuþjálfarinn Logi Tekur undir með Bubba um að feguröin komi að innan. Gæði bíls-
ins skipta því meira máli en úttitið.