blaðið - 14.11.2006, Blaðsíða 29
blaðið ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2006
BÍLAR I 29
Draumabíllinn
Land Cruiser sem minnir á geimskip
„Draumabíllinn er án efa splunku-
nýr Toyota Land Cruiser íoo á 38”
dekkjum með öllu draslinu sem
tilheyrir - öllum mögulegum köst-
urum, öllum mögulegum græjum,
DVD, talstöðvum og bara nefndu
það,“ segir Þröstur Gestsson, dag-
skrárstjóri Kiss FM, betur þekktur
undir nafninu Þröstur 3000, að-
spurður um þann bíl sem hann
vildi helst eignast. „Þegar þú kemur
inn í bílinn þá heldurðu að þú sért
að koma inn í geimskip, það er bara
ekki flóknara. Reyndar kostar hann
eflaust um 10-12 milljónir en ef
maður verður ríkur á útvarpsbrans-
anum fer maður út í svona kaup. f
rauninni er þetta ekki spurning
hvort, heldur hvenær.“
Bensíneyðslan seinni
tíma vandamál
Þröstur segist bjartsýnn á þennan
stóra draum sinn en hann stendur
fast við þá trú sína að peningarnir
fari að streyma inn og geri honum
kleift að fjárfesta í bílnum.
„Ég hef góða tilfinningu fyrir því
að fjárstreymið fari að beinast að
mér. Ég er búinn að vera ungur
drengur svo lengi, svo að ég hlýt að
vera á uppleið í lífinu núna,“ segir
Þröstur, sem mælir eindregið með
útvarpsbransanum þegar kemur
að tekjum. „Það eru svo svimandi
há laun í þessum bransa að maður
bara veit ekki hvort maður er að
koma eða fara! Ættu allir að leggja
þetta fyrir sig,“ segir hann og hlær.
Aðspurður um bíladellu segist
Þröstur veikur fyrir flottum bílum
og tekur fram að hann eigi bíla
sjaldnast lengur en í tvo mánuði.
Hann viðurkennir þó að bílaáhuga-
mennskan geti kostað ófáan skild-
inginn. „Ég er algjör dellukarl. Síð-
ustu þrjú árin hef ég átt bílana mína
í kannski tvo mánuði áður en ég fæ
leiða á þeim. Auðvitað er þetta dýrt
sport, en það er nú bara þannig að
ef þig langar í bil þá bara kaupirðu
hann. Svo bara vinnurðu meira
fyrir vikið. Bensíneyðsla og fleira
er bara seinni tíma vandamál. Ef ég
er spurður hvað bíllinn eyðir miklu,
þá svara ég „bensíni“ og ekki orð
um það meir.“
Fljótur á fæðingardeildina
Blaðamaður innir eftir upplýs-
ingum um afstöðu Þrastar þegar
kemur að mikilvægustu þáttum bíl-
anna. Þó svo að margt renni stoðum
undir að hann leggi mest upp úr út-
litinu viðurkennir hann að gæði og
notkunargildi hafi auðvitað sitt að
segja.
„Jú, notkunargildið skiptir að sjálf-
sögðu máli. Einu sinni átti ég Por-
sche Carrera 2 sportbíl, einn þann
flottasta sem ég hef séð eða nokk-
urn tímann átt. En hann var mjög lít-
ill og kannski ekki sá hagkvæmasti
þegar kemur að þægindum. Ég man
til dæmis eftir einu atviki þegar ég
sótti konuna mína á fæðingardeild-
ina og setti barnabílstólinn aftur í.
Þegar konan mín var komin með
andlitið klesst upp við framrúðuna
áttaði ég mig á því að Porche væri
kannski ekki alveg málið. En ég var
hinsvegar fljótur upp á fæðingar-
deild, það verður að segjast!”
Að síðustu rifjar útvarpsmaður-
inn upp gamla tíma, þegar hann átti
12 manna bíl af gerðinni Ford Econo-
line. „Þetta var rosalegur bíll, svona
7,3 powerstroke og algjör eðalkerra.
Það var nú bara þannig að Svali var
að plötusnúðast á neðri hæðinni og
Þröstur á þeirri efri. Á þessum bíl
var límdur miði sem á stóð: „Sá sem
á mest dót þegar hann deyr
- hann vinnur.” Þetta er
svo auðvitað orðið
mottóið mitt.“
• ' ; ■. ■ : ■ "• ■; ' ■' "■■'■ ■■■' 'Cr ;■
AUGLJÓS KOSTUR
VIÐ BÍLAKAUP
Glitnir Fjármögnun býður fjölbreytta
kosti við fjármögnun bíla og atvinnutækja,
Eigð’ann
Eignastu bílinn
með hjálp Glitnis
• Bílalán
• Bílasamningur
Leigð’ann
Greiddu aðeins
fyrir afnot af bílnum
• Einkaleiga
• Rekstrarleiga
Hafðu samband í síma 440 4400 eða
kynntu þér málið á www.glitnirfjarmognun.is
GLITNIR
FJÁRMÖGNUN