blaðið - 14.11.2006, Blaðsíða 31
blaðið ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2006
BÍLAR I 31
EGO stöðvarnar bjóða tölvustýrðan loftjafnara
Ego stöðvarnar ætla í vetur að
leggja áherslu á öryggi í umferðinni
og bjóða ökumönnum upp á tölvu-
stýrðan loftjafnara og ódýran rúðu-
vökva í sjálfsala. Orkusetur ákvað
að veita EGO sjálfsafgreiðslustöðv-
unum viðurkenningu fyrir að bjóða
ökumönnum tölvustýrða mælingu
og loftjöfnun á hjólbörðum bifreiða
á öllum stöðvum fyrirtækisins.
Rúðuvökvadælan er tengd sjálfsal-
anum Greitt er fyrir magnið sem dælt
er á tankinn.
Nýr Chevrolet
sportjeppi
Bílabúð Benna kynnti á dög-
unum nýja Chevrolet Captiva sport-
jeppann sem jafnframt er fyrsti
sportjeppinn sem Chevrolet mark-
aðssetur fyrir Evrópu. Viðtökur
hafa verið mjög góðar og ef marka
má umsagnir þekktra bílatímarita
á borð við „Auto Express“ og „Auto-
Presse“ má segja að bíllinn hafi hitt
beint í mark.
Captiva er búinn nýrri dísilvél
sem jafnframt er fyrsta Chevrolet-
dísilvélin á evrópska markaðnum.
Vélin, sem er 2ja lítra, 4ra sílindra
og með yfirliggjandi kambási, er
búin tölvustýrðri háþrýsti-inn-
sprautun frá forðagrein. Við vélina
er pústþjappa með breytilegu þjöpp-
unarrými, en sá búnaður kemur
í veg fyrir þjöppuhik og eykur
snerpu. Bíllinn sameinar sportlega
eiginleika jeppa, hagkvæmni fólks-
bíls og rými fjölnota bíls. Hann
hefur sérstaklega stór hjólop og stór
hjól (18” felgur), auk þess sem ávöl
þaklínan gefur bílnum sterklegan
stíl sem sportjeppa. Áberandi fram-
ljós, innfelld stefnuljós í speglum
og þoku/dreifiljós í framstykkinu
ásamt hlífum undir stuðurum gefur
góða mynd af styrkleika bílsins. Að
auki er útlitið óneitanlega stílhreint,
skemmtilegt og klassískt. Captiva
er fáanlegur með sætum fyrir fimm
eða sjö manns.
Frekari upplýsingar um bílinn má
finna á heimasiðu Bilabúðar Benna.
menmun
alla þriðjudaga
Að sögn Jóhanns P. Jónssonar hjá
EGO eykur réttur og jafn loftþrýst-
ingur í dekkjum bifreiða öryggi í ak-
stri og því mikilvægt að fólk hugi að
því. „Loftjafnarinn á stöðvunum er
afskaplega einfalt og þægilegt tæki í
notkun til loftjöfnunar. Það þarf ein-
ungis að velja réttan loftþrýsting í
byrjun og síðan er loftslangan sett á
öll dekk bifreiðarinnar og tækið sér
um að bæta lofti í eða hleypa lofti úr
dekkinu ef þrýstingur er meiri eða
minni en valið var á tækinu. Með
þessu móti næst jafn loftþrýstingur
í öllum dekkjum,“ segir Jóhann.
„Orkusetur hefur gefið út að rangur
loftþrýstingur geti einnig valdið allt
að io% meiri eldsneytiseyðslu bif-
Lolt'fýútinqui ákvídinnmeð
stjofntókiuni
ATH. Vtljaskol lolQjrýsting oem
linmleiðjndi bifreiðor n«lir m«ð.
Upplj-cingosoMif sem sýnir valinn
og nwsldan lotfþrýsting i pundum
Með ioftjafnaran-
um næst jafn loftþrýst-
ingur í öllum dekkjum.
/ KYNNING
reiða, og því er loftjafnarinn ekki
bara til að auka öryggi heldur einnig
til að minnka eldsneytisnotkun bif-
reiða og draga úr mengun.“
EGO stöðvarnar eru einnig einu
bensínstöðvarnar á Islandi sem
bjóða upp á rúðuvökva frá dælu
tengdri sjálfsala. Rúðuvökvadælan
er tengd sjálfsala og aðeins er greitt
fyrir nákvæmlega það magn sem
dælt er á rúðuvökvatankinn. Þess
má geta að rúðuvökvinn er á sér-
stöku kynningarverði á 99 krónur
á lítra.
Jeppadekk
Sendum frítt um land allt!
27" 215/75R15 (TR249)
30" 245/75R16
31" 31x10.50R15
32" 265/75R16
www.alorka.is
28" 235/75R15 (hv.stafir)
30" 215/85R16 (hv.stafir)
30"245/75R16
31" 31xl0,50R15 (hv.stafir)
31" 275/70R16 (hv.stafir)
32" 235/85R16
32“ 265/75R16 (hv.stafir)
31” 31xl0.50R15 (hv.stafir)
32" LT265/75R16 (hv.stafir)
33" LT305/70R16 (hv.stafir)
33" 33x12.50R15 (hv.stafir)
Sími 577 3080
TLJk
31" heilsársdekk
verð frá kr. 12*900
Opið á laugardögum 9-13
AL©RKA
Vagnhöfða 6 • 110 Reykjavík • Sími 577 3080
GRAND YITARA
Grand Vitara er glæsilegur og vandaður jeppi framleiddur í Japan af Suzuki, einum stærsta bílaframleiðanda
heims. Undir glæsilegri yfirbyggingunni leynist sterkbyggð grind, aflmikil vél og fullkomið fjórhjóladrif,
með háu og láu sídrifi. Öryggisbúnaðurinn er eins og best gerist. ABS/EDB hemlakerfi, ESP stöðugleikakerfi
og spólvörn, 4 öryggisloftpúðar og hliðargardínur auk ISO FIX barnastólafestinga eru staðalbúnaður.
Síðast en ekki síst gera einstakir aksturseiginleikar
Grand Vitara aksturinn ánægjulegan hvort sem ekið er
í borgarumferðinni eða upp á fjöllum.