blaðið - 14.11.2006, Síða 40
blaöið
JUDAGUR 14. NÓVEMBER 2006
Skáldaspírukvöldin eru löngu orðin fastur liður í menningarlífi
borgarinnar. I kvöld klukkan 20 verður blásiö til leiks í sjötugasta
og annað sinn i bókarými Iðu við Lækjargötu. Skáld kvöldsins er
Óskar Árni Óskarsson og einnig munu bræðurnir Jón Hallur og
Hermann Stefánssynir fremja nokkur hljóðverk.
Félagið Island-Palestína efnir til sýningar á myndinni Gaza Strip á Kaffi Kúltúra klukkan 20:30.
Þetta er 74 mínútna heimildarmynd frá árinu 2002 sem vakið hefur verðskuldaða athygli, meðal
annars á kvikmyndahátíðum víða um heim. Myndin er á arabísku, en með enskum texta. Dagskráin
hefst klukkan 20 með nokkrum lögum Retro Stefson. Aðgangur er ókeypis. Frjáls framlög og ágóði
af söluvarningi, bolum, nælum og geisladiskum, renna til stuðnings konum í hertekinni Palestínu.
Mannvinur með
mikilfenglegan
boðskap
tr'tpxn uMrvtui
Tónlist ★★★
Söknuður
Jóhann Helgason
Tilfinningaríkur
bautasteinn
Jóhann Helgason er einn af
mestu hæfileikamönnum
íslenskrar dægurtónlistar og
eftir hann liggja fjölmargar perlur.Á
plötunni Söknuður má heyra nýjar út-
gáfur af nokkrum af þessum lögum í
útsetningu Jóns Ólafssonar. Jóhann
söng lögin sjálfur og um undirleik sá
einvalalið manna.
Útsetningarnar eru lágstemmdar og
draga fram hversu faglega flest lögin
eru samin. Lög sem margir þekkja í
frekar leiðinlegum júrósvisjón-útsetn-
ingum, lög eins og Karen, Karen og
I blíðu og stríðu, ganga í endurnýjun
lífdaga við slíka meðferð.
Söngur Jóhanns er einlægur og ber-
sýnilegt er hversu vænt honum þykir
um mörg þessara laga. Diskósmell-
urinn í Reykjarvíkurborg gengur
aftur eins og vofa: Ekki í Ijósum loga
diskóhelvítisins heldur sem íhugull
bragur þroskaðs manns. Kúlutyggj-
ópoppslagarinn Yaketi yak, smac-
ketty smack missir þó kjarnann í
þessari lágstemmdu meðferð.
Platan nær hæstu hæðum í flutningi
laganna Sail On og Söknuði. Flutn-
ingur þessara frábæru laga stendur
samfætis upprunalegu útgáfunum
þótt ólíkur sé. Lagið Ástarsorg hefur
verið losað úr fjötrum fortíðar með
frábærum flutningi.Platan Söknuður
er ánægjulegur bautasteinn um
æviverk mikils hæfileikamanns sem
vonandi mun halda áfram að leyfa
hlustendum að njóta hæfileika sinna
lengi og vel.
orn@bladid.net
ohn Lennon var einn
dáðasti tónlistarmaður
tuttugustu aldarinnar.
Pilturinn frá Liverpool
sigraði ótal hjörtu ásamt
félögum sínum í Bítlunum og þeg-
ar hljómsveitin sú leystist upp hóf
hann farsælan sólóferil. Lennon
var aðdáendum sínum mikill harm-
dauði og þeir eru ófáir sem muna
í hvaða sporum þeir stóðu þegar
þær hörmulegu fréttir skóku heims-
byggðina að hann hefði fallið fyrir
morðingjahendi í desember 1980.
í byrjun desember verða haldnir
þrennir tónleikar í Háskólabíói til
heiðurs Lennon. Þar mun Sinfónín-
íuhljómsveitin stíga á stokk ásamt
fríðu föruneyti og flytja tónsmíðar
Lennons sem Haraldur Vignir Svein-
björnsson hefur útsett sérstaklega
af þessu tilefni. Allt ætlaði um koll
að keyra í gærmorgun þegar miða-
sala á tónleikana hófst og ljóst er að
margir hafa áhuga á að hlýða á þessa
tónlist. Sigurður Kaiser annast svið-
setningu tónleikanna og segir hann
undirbúning þessara viðamiklu
tónleika hafa hafist af alvöru fyrir
rúmu ári. „Fyrir um tíu árum skipu-
lögðum við Jón Ólafsson tónleika
með tónsmíðum Bítlanna og feng-
um þá Ólaf Gauk til þess að útsetja
eina þekktustu plötu Bítlana, Sgt.
Pepper’s Lonely Hearts Club Band,
fyrir Sinfóníuhljómsveit íslands.
Þetta þótti mjög nýstárleg tilraun
og varð upphafið á því að Sinfóníu-
hljómsveitin fór í auknum mæli að
bjóða upp á tónleika með popp- og
rokkívafi. Okkur þótti þetta takast
prýðilega og vorum sannfærðir um
að ef Bítlarnir hefðu haft sinfón-
íuhljómsveit með sér í stúdíóinu
þegar Sgt. Pepper's var tekin upp
þá hefði útkoman verið svipuð tón-
leikunum í Háskólabíói í júní 1997,“
útskýrir Sigurður.
Sinfónísk músík
Sigurður segir að allt frá þessum
fyrstu tónleikum hafi blundað í
þeim löngun til þess að vinna meira
með þessa tónlist. „Tónlist Lennons
hentar að mörgu leyti mjög vel fyr-
ir slíkan flutning þó svo mörgum
kunni að þykja þetta framandi.
Það er mikið í tónlistinni sem er
sinfónískt, bæði tilraunir Lennons
sjálfs með röddina sína sem hann
kóperaði gjarnan og setti saman
upp á nýtt og einnig tilraunir hans
og Phil Spectors upptökustjóra með
strengi sem gefa til kynna að þá
hafi langað til þess að færa tónlist-
ina í klassískar áttir.“
Á þessum síðustu og verstu tím-
um verður mörgum hugsað til
boðskaparins í textum Lennons
en hann þreyttist ekki á að boða
frið og fordæma blóðsúthellingar
víða um lönd. „Lennon var þannig
listamaður að hans skoðanir komu
mjög fram í hans verkum. Hann
var mikil byltingarsinni og var ekki
feiminn að láta í ljósi skoðanir sínar
á hinum ýmsu málum. Hann samdi
einnig mikið um sjálfan sig og var
oft mjög persónulegur í sinni texta-
gerð,“ segir Sigurður.
Þekktir þátttakendur
Fjölmargir þekktir tónlistar-
menn taka þátt í þessu skemmti-
lega verkefni. Tónlistarstjórn ann-
ast Jón Ólafsson, konsertmeistari er
Sigrún Eðvaldsdóttir og hljómsveit-
arstjórn er í höndum Árna Harðar-
sonar. Fjörutíu hljóðfæraleikarar úr
Sinfóníuhljómsveit Islands koma
fram á hljómleikunum auk rokk-
hljómsveitar og söngvara sem eru
þau Björn Jörundur, Hildur Vala,
KK, Páll Rósinkrans, Magnús Þór
Sigmundsson, Jón Ólafsson, Sigur-
jón Brink, Pétur Örn Guðmundsson,
Jens Ólafsson úr hljómsveitinni Bra-
in Police, Haukur Heiðar Hauksson
úr hljómsveitinni Dikta og færeyska
söngkonan Eivör Pálsdóttir. Kynnir
á hljómleikunum er Sigurður Skúla-
son leikari. Sigurður segir alla lista-
mennina hafa tekið vel í það að ráð-
ast í verkefnið. „Jón Ólafsson valdi
söngvarana og reyndi að hafa að
leiðarljósi að þeir væru nokkuð ólík-
ir innbyrðis, hefðu mikinn áhuga
á þessari tónlist og ánægju af því
að flytja hana.“ Áhugasamir geta
keypt miða á tónleikana á www.
midi.is en þeir fara fram 1., 2. og 3.
desember í Háskólabíói.
FJORAR
STJÖRNUR
AF FIMM.
ELÍSABET BREKKAN/DV
688000 BORGARLEIKHÚSIÐ
Englar Guðs og
bráðskemmtilegt Leg
„Ég fór ásamt ellefu ára gamalli
dóttur minni að sjá Sitji Guðs
englar í Þjóðleikhúsinu í gær. Ég
var hrifin af sýningunni. Hún er
einföld, svolítið gamaldags og laus
við alla stæla. Við mæðgur skemmt-
um okkur prýðilega," segir Ilmur
Stefánsdóttir myndlistarkona. „Á
dögunum dreif ég mig svo í bíó og
sáThe Departed eftir Martin Scors-
ese með þeim Jack Nicholson, Le-
onardo DiCaprio og Matt Damon í
aðahlutverkum. Þetta er fín afþrey-
ing sem ég get vel mælt með. Jack
Nicholson var þarna í sínum gamla
ham og í þessari umgjörð var sá
hamur alveg að virka.“ Aðspurð
um lestrarefnið á náttborðinu seg-
ist Ilmur vera að lesa handritið að
leikriti Hugleiks Dagssonar, Legi,
sem verður sett upp í Þjóðleikhús-
inu eftir áramót. „Handritið lof-
ar ákaflega góðu,“ segir Ilmur
íbyggin. „Ég er svo heppin að
fá smá forskot á sæluna en ég
annast leikmyndina í sýning-
unni og sú vinna er að fara
af stað.“ Ilmur býr í hjarta
borgarinnar og nýlega vakti
athygli hennar veggskreyt-
ing á versluninni Li-
borius sem staðsett
er við Mýrargötu.
„Þetta er mjög skemmtileg skreyting
sem ég veit ekki nánari deili á en er
mjög forvitin að vita meira um það.
Þetta er skemmtilegt krydd í hverf-
ið og hluti af heildarútliti verslunar-
innar.“
menningarvitmn
Málþing um
mannhelgi
Mannhelgi í islensku samfélagi
nútímans er viðfangsefni veg-
legs málþings sem guðfræði-
nemar við Háskóla íslands efna
til I dag klukkan 15 í hátíðarsal
Háskóla íslands. Fyrirlesarar
eru þau Vilhjálmur Árnason
prófessor sem fjalla mun um
mannhelgi og rannsóknir í heil-
brigðisvísindum, Karl Blöndal,
aðstoðarritstjóri Morgunblaðs-
ins, sem fjallar um hugtakið út
frá fjölmiðlum, Salvör Nordal,
forstöðumaður Siðfræðistofn-
unar, sem flytur erindi um
mannhelgi og börn og að lokum
mun Þórður Pálsson, forstöðu-
maður Greiningardeildar KB
banka einblína á viðskipti og
samhengi þeirra við mannhelgi.
Að erindum loknum verða fyr-
irspurnir og umræður. Allir eru
velkomnir og léttar veitingar
verða á boðstólum