blaðið - 14.11.2006, Qupperneq 44
ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2006
blaðið
Hugað að handfarangri
Nú þegar hertar reglur um handfarangur í millilandaflugi gilda er mikilvægt að huga vel
að handfarangri og pakka því sem ekki má vera með í handfarangri með innrituðum farangri. Ef bann
aðir hlutir eins og oddhvassir hlutir og vökvar í stærri umbúðum en 100 ml finnast við öryggisleit fá
farþegar ekki að fara með þá inn fyrir öryggishlið. Það er engin aðstaða til að geyma bannaða hluti í
flugstöðvum á (slandi og því eru þessir hlutir glataðir fyrir þá farþega sem eru með þá í handfarangri.
A síðustu stundu
Stundum getur verið skemmtilegt að plana fríin með löngum fyrirvara og lesa sér til um
staðinn sem á að sækja heim og plana hinar og þessar skoðunarferðir. Fyrir
þásem ekki vilja ákveða hluti langtfram ítímann getur veriðskemmti- ju jt,
legt að kíkja á ferðavefinn lastminute.com en þar er að finna ýmis góð
tilboð þegar bókað er með stuttum fyrirvara. 'V* !§P
París á fjórum tímum
Það er mjög sniðugt að byrja stutt-
ar helgarferðir á skipulagðri skoðun-
arferð þar sem helstu merkisstaðir
borgarinnar, sem heimsótt er, eru
skoðaðir. Þannig fær maður sögu og
landafræði borgarinnar beint í æð.
Fyrir þá sem stefna á að skreppa í
helgarferð til Parísar með Icelanda-
ir er boðið upp á skipulagðar skoð-
unarferðir sem Laufey Helgadóttir
leiðsegir. Laufey er listfræðingur
og leiðsögumaður og hefur verið
búsett í París í meira en 20 ár og
er því nákunnug borginni. Skoðun-
arferðin tekur ekki nema 4 klukku-
stundir og skoðaðir eru allir helstu
staðir þessarar sögufrægu borgar.
Ferðirnar eru farnar á þriðjudögum
og laugardögum. Á laugardögum er
gott að fara til að losna við mesta
umferðarþungann. Staðir eins og
Bastillutorgið og Nýja óperan eru á
dagskránni, Hotel de Ville, Louvre
og Palais Garnier, Place Vendome
og Champs-Elysées. Síðan er stopp-
að á Concorde-torginu þar sem út-
sýnið er best yfir að Eiffelturninum
Laufey Helgadóttir er leiðsögumaður í París.
Hún hefur verið búsett í París í 20 ár og þekkir því vel
til staðhátta íþessari fallegu þorg.
Castro afnam jólin
og ef tími leyfir er farið inn í Notre
Dame-kirkjuna.
Eftir svona góða skoðunarferð er
síðan hægt að ákveða hvað hvern
og einn langar að skoða nánar eða
eyða því sem eftir er af ferðinni með
góðri samvisku á kaffihúsum og á
óskipulögðu rölti um borgina.
Það hefur færst í vöxt á
undanförnum árum að
íslendingar kjósi að eyða
jólunum á framandi slóð-
um. Nú í ár er í fyrsta
skipti boðið upp á skipulagðar ferðir,
á vegum Heimsferða, til Kúbu yfir
jólin, en Kúba hefur verið vinsæll
áfangastaður fyrir ferðaglaða Islend-
inga.
Olafur Gíslason listfræðingur er
fararstjóri Heimsferða á Kúbu og
hann ætlar að dvelja um komandi jól
á eyjunni fögru. Olafur hefur marg-
sinnis dvalið á eyjunni og þekkir vel
til sögu og menningar eyjarskeggja.
„Ég hef einu sinni eytt jólunum á
Kúbu en það var árið 1975 og þá var
ég í vinnu og varð ekki mikið var við
aðþað værujól.”
Castro afnam jólin eins og frægt er
en það gerði hann vegna þess að syk-
urreyrsuppskeran var í hámarki á
þessum tíma og þegar landið byggði
afkomu sína nær eingöngu á upp-
skerunni þurftu allir að leggja fram
vinnu sína á þessum tíma. Ástandið
er ekki lengur þannig á Kúbu og ýmis-
legt er gert í tilefni jólanna og þá ekki
síst fyrir ferðamenn en opinberir fjöl-
miðlar og stjórnvöld gera ekki mikið
úr jólahátíðinni. Allir gististaðir búa
til að mynda til evrópska jólastemn-
ingu og verslunargötur eru skreyttar
og jafnvel er byrjað að selja almenn-
ingijólaskraut.
„Opinbert kristnihald var afar tak-
markað eftir byltingu af því að bylt-
ingin átti að koma í staðinn fyrir trú-
arbrögðin og kaþólska kirkjan átti
lengi vel erfitt uppdráttar á Kúbu,”
segir Ólafur en bætir því við að nokk-
ur breyting hafi orðið þar á á síðast-
liðnum 10 árum eða síðan Jóhannes
Páll páfi heimsótti eyjuna.
„Páfinn og Castro fundu sameigin-
legan flöt og voru sammála um ým-
islegt er varðaði stöðu fátækra þjóða
í heiminum og upp frá því hefur
kirkjan haft meira svigrúm á Kúbu,
margar kirkjur voru opnaðar að nýju
og messur eru haldnar við ýmis tæki-
færi.”
Á Kúbu er stunduð blanda af afr-
ískum fjölgyðistrúarbrögðum sem
bárust með þrælum til Kúbu á 16. öld
og kaþólskri trú og gengur þessi siða-
blanda undir nafninu Santeria. Þessi
siðablanda varð meðal annars með
þeim hætti að hinir afrísku guðir
tóku nöfn kaþólskra dýrlinga.
„Innan Kommúnistaflokksins og
kaþólsku kirkjunnar ríkir þegjandi
samkomulag um að líta á þetta sem
eðlilega trúariðkun og fer þessi trú-
MIKIÐ ÚRVAL AF LÍKAMSRÆKTARVÖRUM TIL KEIMILISNOTA 0G í RÆKTINA
Æfingagrifflur -7M|fcl|lt t - • rJtáu.
kr. 1.790,- fanHft ARB
Ólafur Gíslason Ætlar að eyða kom
andi jólum á Kúbu en hann hefur
margsinnis dvalið á þessari fögru
eyju og veit mikið um menningu og
sögu þjóðarinnar.
Lyftingaólar
kr. 990,-
tllnliðsvafningar
kr. 1.490,-
Púðahanskar.
kr. 6.990,-
Æfingaboltar
55cm - 75cm
verð frá kr. 2990,
Undir strönd: Strendurnar og kóral-
rifin eru náttúrufyrirbæri sem á sér
fáa líka i veröldinni og það er mikið
af ósnortnum ströndum á Kúbu.
ariðkun fram jafnt innan kirkjunnar
og í heimahúsum. Jólin eru í senn há-
tíð Jesúbarnsins og hátíð Jesúbarns-
ins frá Prag, sem er nafn guðsins
Eleggua, sem er örlagaguð er leiðir
okkur að upphafi og endalokum sér-
hvers ferlis á lífsleiðinni. Jólin eru há-
tíð nýs upphafs og því hátfð Eleggua.
Jólin eru haldin hátíðleg í kirkjum
en einnig eru veislur í heimahúsum
og þar færa menn dýrafórnir.”
Þegar Ólafur er beðinn um að
nefna eitthvað sem hann mælir með
að gera á Kúbu segir hann að áhuga-
verðast við Kúbu sé mannlífið ann-
ars vegar og náttúran hins vegar.
Hann segir að náttúrunni kynnist
maður best með því að fara inn í regn-
skóginn í fjöllunum. „Það er upplif-
um sem enginn gleymir, kúbanskur
regnskógur með öllu sínu fugla- og
dýralífi og ótrúlegri náttúrufegurð.
Strendurnar og kóralrifin eru nátt-
úrufyrirbæri sem á sér fáa líka í ver-
öldinni og það er mikið af ósnortn-
um ströndum á Kúbu.
Mannlífið er líka áhugavert ogþað
skrítna er að þrátt fyrir mikinn skort
og niðurníðslu sem blasir við þá er
fólkið glaðlynt og það er óvíða dans-
að jafnmikið á götunum og á götum
Havana.”
Teygjur
kr. 1.990,
Sippubönd frá
kr. 490,-
Lyftingakrókur
kr. 2.990,-
Róðravél
kr. 65.900,
Fjölþjálfar frá
kr. 49.900,-
Þrekhjól
kr. 72.900,
ferðalö
FJALLAHJOLABUÐIN FAXAFENI 7
S: 5200 200 www.gap.is MÁN- FÖS. KL. 9-Í81. LAU. KL. 10-14. WWW.gQp.IS