blaðið - 14.11.2006, Page 45
ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVERMBER 2006 45
Lífrænt hótel í Köben
blaðið
Til aö flýta fyrir
Við öryggisleit er gott að vera með ferðaskjöl tilbúin til að sýna öryggisvörðum til
skoðunar. Einnig er gott að muna að handfarangur og utanyfirflíkur eiga að fara í
plastbakka við færibandið fyrir framan gegnumlýsingarvél. Gott er að vera búin(n)
að taka plastpokann með vökvunum úr handfarangri, taka fartölvu og önnur stærri
rafmagnstæki úr tösku og fara úr yfirhöfn, taka af sér belti og tæma vasana.
Sál og
Þeir sem ætla að bregða undir sig
betri fætinum og leggja land undir
fót á vormánuðum eiga þess kost
að hlýða á Sálina hans Jóns míns og
Stuðmenn á tónleikum í Kaupmanna-
höfn, síðasta vetrardag á næsta ári.
Fyrir alla Sálar- og Stuðmannaaðdá-
endur er um mikla upplifun að ræða.
stuð í Köben
Umgjörðin verður afar vönduð og bú-
ist er við mikilli aðsókn á tónleikana.
Skemmtunin fer fram í Cirkusbygn-
ingen í miðborg Kaupmannahafnar
og er þetta í fyrsta sinn sem sveitirn-
ar koma saman með þessum hætti.
Húsið rúmar alls 1150 manns. Hljóm-
sveitirnar hafa hvor um sig áður spil-
að fyrir fullu húsi í Kaupmannahöfn,
Sálin 2005 og Stuðmenn í Tívoli
2003. Hljómsveitirnar munu spila til
skiptis undir borðhaldi og síðan fyr-
ir dansleik fram á rauða nótt. Sala
aðgöngumiða á tónleikana hefst á
næstunni og það er Icelandair sem
er söluaðili á Islandi.
Hótelkeðjan Guldsmeden í Danmörku býður upp á góða og öðruvísi gistingu
á þremur stöðum í Danmörku. Keðjan er í eigu hjóna sem leggja metnað sinn
í að bjóða huggulega gistingu fyrir ferðalanga og rósin í hnappagati þeirra
er einstaklega gott og hollt morgunverðarhlaðborð sem státar eingöngu af
lífrænum mat.
Forfallatrygging
Það er mikilvægt að fesía
kaup á forfallatryggingu þegar
fargjald er keypt á Netinu.
Tryggingin tryggir endurgjaid ef
farþegi er ófær um að ferðast
sökum eigin veikinda eða ein-
hvers sem er honum nákominn.
Skýrar reglur um hveriær og
hvernig forfallatrygging virkar
er að finna á heimasíðum bæði
lceland Express og lcelandair.
Forfallatrygging lceland Ex-
press tryggir fulla endurgreiðslu
fargjaldsins ef farþegi eða þeir
sem eru í bókuninni einnig
geta ekki ferðast af heilsufars-
ástæðum og þarf að framvísa
læknisvottorði vegna veikinda
innan við viku frá brottför.
Icelandair býður uþþ á forfalla-
tryggingu sem tryggir endur-
greiðslu á þeim hluta fargjalda
og gistikostnaðar sem greiddur
hefur verið og ekki fæst endur-
greiddur ef farþegi getur ekki
farið í fyrirhugaða ferð. Ástæður
geta verið dauðsfall í fjölskyldu,
alvarlegur sjúkdómur eða slys
og þarf að framvísa læknisvott-
orði. Það eru þó ýmis gjöld eins
og forfalla- og þjónustugjald,
lántökukostnaður og endur-
greiðslugjald sem ekki fæst
endurgreitt ef um forföll er að
ræða.
Til Asíu með
Andreu
Ferðabókin í ár er án efa ferða-
bók Andreu Róbertsdóttur
Spennið beltin, til Asíu með
Andreu Róberts. í bókinni segir
Andrea frá ævintýralegu ferða-
lagi sínu um indland, Taíland,
Kambódíu og Laos. Andrea
seldi íbúðina sína, bílinn og
aðrar efnislegar eigur, pakkaði
ofan í bakpoka og hélt ein í
þessa langferð. í bókinni lýsir
hún því fólki sem hún kynnist á
ferðum sínum og frásögnin er
skemmtileg og fyndin en í senn
fræðandi og góður vegvísir
fyrir alla þá sem eru með ferða-
lög um fjarlæg lönd á prjón-
unum. Eins og segir á kápu
þókarinnar
er Andrea
þeirrar
skoðunar
að allir
hafi gott
af því að
viðra sig
á röngunni,
skoða sál
sín og spá
í hvers
vegna við
erum
eins
og við
erum.
Engar hömlur á verslun
í Flugstöð Leifs Eiríkssonar
Að gefnu tilefni skal það tekið fram og ítrekað að þrátt fyrir nýjar öryggisreglur
geta farþegar eftir sem áður keypt allan vökva, krem og aðrar snyrtivörur
á frísvæði Flugstöðvarinnar hvort heldur sem þeir eru að fara af landi brott eða
koma til íslands.
Allar upplýsingar um verslun í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og nýjar öryggisreglur er
að finna á heimasíðu Flugstöðvarinnar www.airport.is
FLUSSTÖÐ
LEIF5
EIRlKSSONAR HF
©
ferð til fjár!
Flugstöð Leifs Eiríkssonar
.........: -