blaðið - 14.11.2006, Síða 48
48
r'ilÐJiJDAuún M. NÖf/EMBER 2006
Geðvonska
Til að koma 1 veg fyrir miklar geðsveiflur yfir daginn er um
að gera að drekka nógu mikið vatn og fá sér að borða á
fjögurra klukkustunda fresti. Langir dagar án almennilegr-
ar næringar eða vatns geta valdið geðvonsku.
blaðið
Falleg húð
Lélegt mataræði bitnar jafn mikiö á húðinni og öðrum líkamspört-
um. A-vítamín er nauðsynlegt til þess aö viðhalda heilbrigði húð-
arinnar og því er um að gera að borða gulrætur, sætar kartöflur,
brokkólí og spínat til þess að fá fallegri húð.
Orðlaus
mælir með
...NYJU PLOTUNNI
MEÐ DEFTONES
Saturday Night Wrist er nýjasta
afurð hjólabrettastrákanna
í Deftones. Platan kemur
skemmtilega á óvart þar sem
síðasta plata sveitarinnar olli
töluverðum vonbrigðum. Talið
var að sveitin væri jafnvel búin
að missa það en nýja platan
þaggar niður í gagnrýnisrödd-
unum. Fáar sveitir fara jafn vel
með hina baneitruðu blöndu af
hörðu rokki, raftónlist og poppi.
...ODYRUM MAT
Hver er ekki orðinn hundleiður
á öllum þessum skyndibita-
stöðum sem virðast spretta
upp eins og gorkúlur um allan
bæ? Hamborgaramáltíðin sem
þú borgaðir þúsundkall fyrir
í gær hefði getað reddað þér
þriggja daga skammti af alls
kyns góðgæti í Bónus eða
Krónunni. Eldamennska er
skemmtileg og gefandi iðja
sem allir ættu að stunda. Af
hverju ekki að sjóða spagettí
og steikja hakk í staðinn fyrir
að troða ofan í sig kebabrúllu
eða slepjulegum borgara? Þú
hefur gott af því og veskið þitt
líka.
Tíkin vinnur sjaldnast
undan virðist hafa náð að stimpla um The Look for Less á Style Netw-
sig vel inn í fyrirsætuheiminn. Eva ork. Sigurvegarar America’s Next
Pigford, sigurvegari þriðju þátta- Top Model eiga því ekki glæsta
raðarinnar, heillaði áhorfendur framtíð sem ofurfyrirsætur nema
og heiminn með hroka sem hún þeir virkilega hafi fyrir því. Það
notaði til að fela litla og brothætta verður því forvitnilegt að fylgjast
sál. Evu hefur tekist vel að vinna úr með hver stendur uppi sem sigur-
sigri sínum og hefur verið vinsæl vegarinn í þessari þáttaröð en loka-
fyrirsæta. þátturinn verður sýndur á Skjá ein-
um 22. nóvember. Viku síðar hefst
Fyrsti sigurvegarinn gleymdur? sjöunda þáttaröðin.
Fyrsti sigurvegari America’s .....................................
Next Top Model var Adrianne svanhvit@bladid.net
Curry sem virðist hafa fengið g-r
fæst verkefni eftir keppnina. ■4$ÉÍKá8£5iaS32!&*i...^. _
Henni hefur líka verið tíð-
rætt um svik því hún *
áleit að htin myndi fá
stóran samning við -
Revlon en væntingar
hennar til samnings- 'JjS
ins stóðust ekki. Curry V
hefur því oft lýst yfir
andúð sinni á Tyru Vítfos&þ
Banks i viðtölum við alls ' 'Rl
kynstímarit. Andúðinvirð-
ist vera gagnkvæm því það er Tf-, ****“*
aldrei minnst á Curry í þáttunum & —Æ
þótt oft sé minnst á fyrri sigurveg- 1\ ''jgf’W,-
ara. Eins sést hún aldrei *
í þáttunum sjálfum qJjL ^ &æfp
þrátt fyrir að aðrir
þátttakendur birt- jp
ist oft í þáttunum. É
Yoanna House J/ f
sem vann aðra f /afc..
þáttaröðina af ^
America’s Next \
Top Modcl hef-
ur unnið vel úr
sigri sínum og
haft næg verkefni.
Yoanna var þybbin TwS
sem unglingur en I |
heitasta ósk hennar 1 H
var að verða fyrirsæta
og hún léttist því um
30 kg. f dag stýrir
Yoanna sjónvarpsþættin- \
Fyrirsætuþátturinn America's
Next Top Model er sérstaklega
vinsæll þáttur, bæði hér á landi
og erlendis en þátturinn er sköp-
unarverk ofurfyrirsætunnar Tyru
Banks. Um þessar mundir er ver-
ið að sýna sjöttu þáttaröðin á Skjá
einum og eru nokkrar stúlkur
eftir á lokasprettinum. Sagan hef-
ur sýnt og sannað að það er ekki
nóg að vinna til þeirra glæsilegu
verðlauna sem sigurvegari þáttar-
ins fær því það skiptir miklu máli
hvernig fyrirsætan vinnur úr sigr-
inum. Sigurvegari America’s Next
Top Model verður því ekki sjálf-
krafa að ofurfyrirsætu heldur þarf
að vinna fyrir því þó þátturinn sé
vissulega stökkpallur í rétta átt.
Viðkunnanlegar ofurfyrirsætur
í America’s Next Top Model
þurfa þátttakendur að sýna bæði
innri og ytri fegurð á sama tíma og
þær læra að feta þröngan og erfið-
an stíg fyrirsætuheimsins. Tíkin í
þáttunum á því sjaldnast sigurinn
vísan enda ítrekar Tyra oft að ofur-
fyrirsæta verði að vera viðkunnan-
leg.
Sigurvegarar í þáttunum hafa
lagt ýmislegt fyrir sig eftir að þær
luku þátttöku sinni í þáttunum;
þær dæma í fegurðarsamkeppnum,
leika í kvikmyndum og tónlistar-
myndböndum ásamt því að stunda
fyrirsætustörf. Það er ekki komin
mikil reynsla á Nicole Linkletter
sem sigraði í fimmtu þáttaröðinni
en Naima Mora sem sigraði þar á
...RESCUE ME
Hversu frábærir eru þessir
þættir? Tommy Gavin og fé-
lagar eru hluti af allra litríkasta
hópi karaktera sem sést hafa
í sjónvarpi í langan tíma. Allir
eru svo útúrkomplexaðir að
Jerry Seinfeld virðist eðlilegur
við hliðina á þeim. Samt eru
þættirnir svo ýktir
x að þeir fara
hring 09
w virðastraun-
• verulegir.
Wm 0^ • Maður lítur
á slökkviliðs-
rai' mennina sem
gBk. '—bræður sína
og hlær með
þeim þegar
jfcak þeir hlæja
og grætur
j jlr þegar
gengur
Kolbrún Pálína Helgadóttir hefur unnið
sem fyrirsæta hér heima sem og
erlendis. Ferill Kolbrúnar byrjaði fyrir
alvöru þegar hún tók þátt í og vann
Ungfrú ísland.is. „Ég hef aldrei búið
erlendis og starfað sem fyrirsæta en
ég hef farið i stuttar ferðir til að sitja
fyrir. Ég fór til dæmis til Indlands í apríl
þar sem ég var f fimm vikur. Það var
stórkostlegt ævintýri," segir Kolbrún og
viðurkennir að þetta geti verið harður
heimur. „Það er ekki nóg að standa
bara og vera sætur. Ég var til dæmis í
verkefni fyrir Cosmopolitan á Indlandi
og ég þurfti að fljúga til Malasíu. Ég
ferðaðist í sólarhring svefnlaus, tók rútu
upp í fjöll og fór beint i myndatöku. Það
var mjög erfitt og krefjandi enda var ég
gjörsamlega búin á því.“
Aðspurð hvernig hægt sé að vera sætur
á myndum þegar maður er þreyttur og
illa upplagður segir Kolbrún að hún setji
sig í einhvern ákveðinn gír. „Mér fannst
það líka auðveldara úti því hér heima
þekkirðu alltaf einhvern í kringum þig.
Mér fannst því auðveldara að setja mig
í þennan leikaragír þegar ég var úti.
Hins vegar verðurðu bara að standa þig
þegar þú ert komin f verkefni af þessari
stærðargráðu, það er ekkert í boði aö
kvarta yfir þreytu." Kolbrún segir að
henni hafi fundist frábært að vinna sem
fyrirsæta erlendis en það henti henni
ekki í fullu starfi. „Ég er móðlr og það
hentar mér því ekki núna en það er frá-
bært að gera þetta annað slaglð."
Arlrianne Curt, Taldi sig svikna að fá ekki samning við Revion,
Naima IVIora Hefur stimplað sig vel inn í fyrirsætuheiminn.
Eva Pigford Heillaði heiminn með hroka sinum og hefur haft nóg að gera.
Yoanna House Vann vel úr sigri sínum og hefur fengið næg verkefni
Tyra Banks Mikilvægt að fyrirsætur séu viðkunnanlegar segir fyrirsætan
r(
i PíO í*Tf t’if í fJrT tiSI 1 V V J