blaðið - 25.11.2006, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2006
blaöið
fólk
folk@bladid.net
HVAÐ FINNST ÞER?
Hvers vegna varst' ekki
kyrr?
Hugurinn bar mig hálfa leið!
Ari Matthíasson, framkvævtdastjóri SÁÁ
Ari hefur slegið í gegn í auglýsingum þar sem lag Jóhanns G. Jóhannsson-
ar Hvers vegna varst' ekki kyrr? hljómar undir. SÁÁ flytur skrifstofur og
göngudeild sína formlega úr Síðumúla inn í nýtt húsnæði í Efstaleiti í dag.
HEYRST HEFUR...
Iólaandanum er vel smurt yfir
vetrarmánuðina því nú er jóla-
tónlistin farin að óma á hljóðvak-
arásum seint í nóvember. Fyrstu
jólalögin fóru i
spilun í gær og
hryllti suma við.
Við þessu var að
búast, enda versl-
anir skreyttar
og jólavarningur
allur farinn að streyma inn.
Margir hverjir skrúfa niður í
viðtækinu til að spara jólastemn-
inguna og vilja helst ekki heyra
vinsæl jólalög eins Jólahjól íoo
sinnum fyrir aðfangadag.
Verðlaunahátíðin Gullkindin
var haldin á Classik Rock í
Ármúla fimmtudaginn síðastlið-
inn en veitt voru verðlaun þeim
sem þóttu hafa staðið sig sérlega
illa á árinu. Hlustendur XFM
91,9 og gestir heimasiðunnar
xfm.is voru þeir sem skipuðu
hina eiginlegu dómnefnd. Hún
skar úr um
hverjir „skör-
uðu framúr
í klúðri og
almennum leið-
indum“.
Fjölmiðlamað-
urinn víðkunni Stjáni stuð
var annar kynna kvöldsins en
honum til fulltingis var ein feg-
ursta kona heims, Unnur Birna
Vilhjálmsdóttir.
Capone-bræður höfðu veg og
vanda af skipulagningu Gull-
kindarinnar þetta árið og lofuðu
frábæru fjöri. Þeir stóðu fyllilega
við loforð sitt og hápunkti
fjörsins var náð þegar tilkynnt
var um heiðursverðlaunaaf-
hendingu kvöldsins. Verðlaunin
hlaut Árni Johnsen en hann var
ekki á staðnum til að veita þeim
viðtöku. Öðrum Capone-bræðra
var mikið niðri fyrir vegna fjar-
veru, persónu og eðlis Árna og
eftir mikinn reiðilestur endaði
styttan af gullkind Árna af
einhverjum ástæðum á gólfinu
í molum og heyrst hefur að
staðarhaldarar hafi verið fremur
óánægðir með atganginn.
Unnur er á ferð
og flugi um helgina
Unnur Ösp Stefánsdóttir leik-
kona er á ferð og flugi þessa dag-
ana. Hún leikur í leikritinu Herra
Kolbert með Leikfélagi Akureyrar
um helgina og flýgur því næst til
Þýskalands með Vesturporti þar
sem hún tekur að sér eitt aðalhlut-
verka í tveimur sýningum á verkinu
Woyzeck á leiklistarlistarhátíð. , •
„Um helgina fer ég norður. Svo
stekk ég upp í bílinn á laugar-
dagskvöld og keyri í einum rykk
til Reykjavíkur og svo beint á
Keflavíkurflugvöll þar sem ég
tek næstu vél til Þýskalands með
Vesturporti. Allir leikarar verða á
sínum stað nema hvað ég tek hlut-
verk Maríu í stað Nínu Daggar. Þá
liggur leiðin beint til Akureyrar á
ný.
Unnur segir að það geti fylgt því
álag að vera alltaf á ferðinni. „Það
hefur verið svolítið slæm færð í
vetur, við höfum þurft að reikna
þetta svolítið út því það er ekki hægt
að taka neinar áhættur þegar það
bíður manns fullur salur af fólki.
Ég og Edda Björg keyrum saman á
laugardagskvöldið og höldum hvor
annarri félagsskap á leiðinni. Við
setjum bara gott rokk á fóninn og
förum á gott, langt fimm klukku-
stunda trúnó. Þá er víst engin hætta
á að sofna.
Mér finnst sérstaklega afslapp-
andi og róandi að fara í heitt freyði-
bað,” segir Unnur Ösp Stefánsdóttir
aðspurð um það hvernig henni finn-
ist best að slaka á eftir erfiðan dag.
„Sérstaklega á veturna.” Unnur seg-
ist líka vera mikil nautnamanneskja
og finnist gott að ná sér niður í sóf-
anum. Ég nýt þess að lesa og hlusta á
góða tónlist. Svo poppa ég eiginlega
á hverju kvöldi. Unnur poppar sjálf
með gamla laginu í góðum skaftpotti.
„Ég er góður poppari,” segir hún.
Unnur segist hreyfa sig mikið
í vinnunni. „Fyrir utan þá hreyf-
ingu sem ég fæ í vinnunni er ég í
líkamsrækt og fer stundum í sund.
Fer nokkrar ferðir bringusund
og eyði svo dágóðum tíma í heita
pottinum.”
Unnur er nautnamanneskja
Slappar af í sófanum eftir
erfiðan dag.
Mynd/Sverrir Vilhelmsson
SU DOKU talnaþraut
Lausn síðustu gátu:
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum
frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig
að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða
lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur
aðeins nota einu sinni innan hvers n(u
reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út
frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Gáta dagsins:
7 2 8 6
6 3 4 8
9 4 2
7 8 9
4 6 1 5
1 8 9 5 4 6
2 6 9 8
2 9 3 7
4 1 2
2 1 6 4 7 8 9 5 3
7 3 4 9 5 1 8 6 2
5 8 9 3 6 2 1 7 4
4 5 7 8 2 6 3 9 1
6 9 8 1 3 7 2 4 5
1 2 3 5 4 9 6 8 7
8 4 5 6 1 3 7 2 9
9 7 1 2 8 5 4 3 6
3 6 2 7 9 4 5 1 8
eftir Jim Unger
1-5©LaughingStock International Inc./dist. by United Media. 2004
Ef ég fæ góða einkunn er aldrei að vita
nema vænt epli bíði þín á morgun.
Hvað bar hæst
í vikunni?
Guðni Bergsson, lögfræðingur
Eg held að í fljótu bragði sé
þessi endanlega staðfesting
á kaupum Björgólfs og Eggerts á
West Ham það fyrsta sem kemur
upp í hugann. Það verður spenn-
andi að fylgjast með framgangi
mála þar og gengi félagsins á
næstu árum. Ég tel að fyrir-
huguð kaup félagsins á Shaun
Wright-Phillips séu af hinu góða,
sérstaklega ef þeir byrja á því að
fá hann lánaðan út tímabilið og
kaupa hann svo. Svona fyrst að
máta hann við liðið.“
Sigmar Vilhjálmsson, sjónvarpsmaður
Ætli það séu ekki kaup Is-
lendinga á West Ham sem
einkenna sókn okkar og útrás.
Það að kaupa einn fornfrægasta
klúbbinn á Englandi er ekki eins
og að ráðast á garðinn þar sem
hann er lægstur. Ég er að hugsa
um að skrá mig í West Ham-
klúbbinn ef hann er þá til. En
hann hlýtur að verða stofnaður
fljótlega ef hann er ekki til nú
þegar. Ég styð íslenskt, já takk.“
Guðrún Ásmundsdóttir, leikkona
Það sem mér fannst frétt-
næmast í vikunni voru svör
fjármálaráðherra þegar hann
var spurður að því hvort ekki
ætti eitthvað að gera eftir arðrán
eldri borgara með sjóð sem var
stofnaður fyrir fjórtán árum. Og
fjármálaráðherra sagðist alls
ekki geta svarað þessu núna því
hann væri ekki búinn að kynna
sér málið. Þetta finnst mér
skrýtið því það er búið að liggja
á borðinu í fjórtán ár. Það fer svo-
lítill hrollur um mann að stjórn-
málamenn í dag þurfi svolítið
lengri tima til umþenkingar.“