blaðið - 25.11.2006, Blaðsíða 29
LAUGAfl
blaöiö
^5. NÓVEMBER 2006 29
f*W
Dalmay 1 Salnum
Listamannaspjall
Ungverski píanóleikarinn Miklós Dalmay
flytur píanósónötur Mozarts næstkomandi
mánudagskvöld í Salnum í Kópavogi. Tón-
leikarnir hefjast klukkan 20.
Kristin Helga Karadottir myndlistarkona synir verk sin
á Listasafni ASÍ um þessar mundir. Á sunnudaginn
klukkan 15 mun Kristín Helga spjalla um verk sín á
safninu. Allir velkomnir.
Menningarhelgin
ítalskar kvikmyndir rata ekki oft í
íslensk kvikmyndahús en nú er ástæöa
fyrir unnendur suöurevrópskrar menn-
ingar að storma í bíó því í Háskólabíói
stendur yfir ítölsk kvikmyndahátíð.
Þar er meðal annars áð finna fimm
myndir úr smiðju Pupi Avati sem er
þekktasti leikstjóri þeirra Itala. Óhætt
er að mæla með II cuore altrove frá
árinu 2003.
Fátt er betra á köldu síðdegi en að
rölta Skólavörðustíginn, kíkja í búðir
og setjast
inn á Mokka.
Stemningin er
notaleg, kaffið
gott og súkku-
laðið það besta
í allri borginni. I íslenskum veruleika, þar
sem öll kaffihús skipta um svip á nokk-
urra mánaða fresti, er kærkomið að geta
heimsótt Mokka þar sem tíminn hefur
staðið í stað siðan 1958.
Ógæfusama konan eftir bandaríska
skáldið Richard Brautigan er komin
út á íslensku í
þýöingu Gyrðis
Elíassonar
Verkið er fullt af
ísmeygilegum
húmor, Ijóðrænni
dýpt og löngu glöt-
uðum tíma sem
yljar um leið og
hann hrærir upp
í hjartanu. Gyrðir
hefur áður þýtt
þrjú skáldverk Brautigans sem ástæða
er til að endurnýja kynnin við. Ekki
missa af þessu goði '68 kynslóðarinnar
og ógæfusömu konunni sem heldur sínu
striki sama hvað ádynur.
sem ég sé?
Sérðu það
Sýningarhald Þjóðminjasafns
Islands á ljósmyndum hefur verið
öflugt undanfarin misseri og reglu-
lega berast þaðan fregnir af nýjum
og spennandi sýningum. Inga
Lára Baldvinsdóttir er fagstjóri
Myndasafns Þjóðminjasafnsins og
á hún heiðurinn af fjölmörgum
sýningum á vegum safnsins. Hún
tók einnig mikinn þátt í að móta
ljósmyndaþátt grunnsýningarinn-
ar Þjóð verður til. Næsta þriðjudag,
28. nóvember klukkan 12:10, mun
Inga Lára kynna myndabrunn
safnsins og beina sjónum að töfr-
um ljósmyndarinnar sjálfrar og
möguleikum hennar til að miðla
glötuðum tíma. Fjórar ólíkar ljós-
myndasýningar eru á sérstökum
skjáum við tuttugustu aldar færi-
bandið við endavegg grunnsýning-
arinnar á þriðju hæð. Þar er varpað
upp myndum af landi og þjóð ár
frá ári gegnum alla öldina og fæst
þannig yfirgripsmikil sýn. Skjá-
myndasýningarnar hafa heppnast
afar vel en ýmis vandkvæði geta þó
verið fólgin í því að segja sögu með
myndum. Það verður forvitnilegt
að hlusta á Ingu Láru Baldvinsdótt-
ur sjálfa segja frá sýningargerðinni
og ræða um val á sýningarefnum
og myndum á þriðjudaginn. Allir
eru velkomnir og boðið verður upp
á táknmálstúlkun.
Nú er kominn tími fyrir blússandi barokk.
Kveikið á kertum, umhellið þroskuðu
rauðvíni og
dustið rykið
af öllum þeim
Bach-plötum
sem til eru í hús-
inu. Ekki er verra
ef hugljúft og
róandi hummið
I Glenn Gould
heyrist einhvers
staðar í bakgrunni.
Nú fer sýningu á verkum Þórdísar
Aðalsteinsdóttur myndlistarkonu á Kjar-
valsstöðum
senn að Ijúka.
Þetta er
næstsíðasta
sýningar-
helgin en
sýningin ber
yfirskriftina
Þvi heyrist
þó hvíslað að einhverjir muni komast
af. Þórdís hefur fengið frábæra dóma
hér heima og erlendis fyrir verk sin og
um að gera að missa ekki af henni.
Skáldin storma nú út um víðan völl og
lesa úr nýjum bókum sinum fyrir hvern
sem heyra vill. Það er eitthvað við það
að heyra höfundinn sjálfan stíga á stokk
og lesa eilitið
feimnislega upp
úr eigin verkum.
Jólastemningin
magnast innan
um appelsinuilm
og negulnagla.
Ekki láta upplestrana fram hjá ykkur
fara. Margar bókabúðir borgarinnar
bjóða upp á slíkar uppákomur reglulega
fram að jólum.
í SÖGU JÓLANNA et fjallaö á íuirlcgan hátt um jólahátíhina fyrr og stöar á fslandi og
víftar um heim. Rakin er saga jólanna frá upphafi þegar fátækir sem ríkir héldu Ijósahátíð
í skammdeginu. Hér er einstakur fróðleikur settur fram á lilríkan hátt.
Árni Björnsson, þjóðháttafrasðingur, lýsir þvt hvemig kirkjan breytti eldra jóiahaldi og
mótaði nýtt helgihald, höfðingjar svölluðu og almúginn dansaði en allir re>'ndu að tjalda
því besta sem til var á hverju heimili. Cerð er grein fyrir hugmyndum fólks um jólavættir í
myrkrinu. Sérstaklega er hugað að þróun hátíðarinnar síðustu hundrað ár sem hefur
skipað henni svo sterkan sess í hugum okkar nútímafólks.
Hvernig væri líf okkar án jólanna? Hvers vegna byrjuðu þau yíirlcitt? Hvenær uppgötvuðu
íslendingar jólasveina og hvaðan komu þeir? Af hverju er alþjóðlegi jólasveinninn
kla^ddur rauðu? Hver er Faldafeykir? Hvað voru bamafælur? Hvar er elsta jólatréð á
fslandi? Hverjir sömdu jólasálmana? Hvernig skemmti fólk sér á jólunum? Hvaða mat
borðaðf fólk? Hver gerði fyrsta jólakortið í heiminum? Hvaða lög eru jólalög? Allt þetta og
ótalmargt annað íinnur þú í þessari bók.
BÓKIN SKIPTIST I 17 KAFIA:
K
Bókina prýðir mikill fjöldi teikninga og Ijósmynda sem setja sterkan svip á efnið. 5ACA
JÓLANNA er sannkölluð fróðleiksnáma fyrir alla islendinga. Höfundur bókarinnar, Ámi
Björnsson, er löngu kunnur fyrir störf sín og bækur enda er hann virtur fræðimaður á sínu
sviði.
SACA JÓLANNA er fyrir unga sem aldna, alla sem vilja vita
eitthvað meira um jólin og njóta þeirra í leíðinni.
Tindur
Bókaútgáfa
Slmar: 660 4753 • 534 6250
www.tindur.is •
tindur@internet.is • tindur@tindur.is