blaðið - 25.11.2006, Blaðsíða 31
blaöiö
LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2006 35
Skákin er félagslegt afl. Hún brúar
kynslóðabil og ólíka heima. í Amer-
íku kenndi ég börnunum sem ólust
upp í fátækrahverfum að tefla. Það
er falleg leið til að breyta heiminum
örlitið.“
Þegar þú hófst þinn skákferil voru
ekki margar konur að tefla opinber-
lega. Fannstþérþú vera einangruð?
„Ég átti fyrirmyndir eins og
Guðlaugu Þorsteinsdóttur sem
var glæsileg skákkona og fleiri. Á
barna- og unglingaæfingum var ég
nánast alltaf eina stelpan sem tefldi.
Mér fannst það erfitt og það tók
á. Stundum kom ég grátandi heim
og sagðist aldrei ætla að tefla aftur.
Þetta gerðist miklu fremur þegar ég
vann en þegar ég tapaði. Strákunum
fannst skömm að því að tapa fyrir
stelpu og það kom mér í uppnám.
Það hefur alltaf verið hluti af
minni sýn varðandi þátttöku
kvenna í skák að það verði að búa til
samfélag skákkvenna. Þær eigi ekki
að vera einyrkjar. Sjálf var ég ein-
yrki og það var stundum erfitt. Það
verður að búa til samfélag stúlkna
sem tefla svo þær geti haft stuðning
hver af annarri og breytt skákheim-
inum í enn gjöfulli og betri heim.
Konur á öllum sviðum verða að hafa
þetta í huga - við þurfum að standa
saman.“
Maður á alltaf einhvern leik
Er skákheimurinn ennþá
karlaheimur?
„Já, hann er það en það er að breyt-
ast til batnaðar. Þetta er áhugaverður
heimur. Allt fullt áf svipmiklum og
skemmtilegum karakterum."
Hverjir eru eftirminnilegastir?
„Kasparov er auðvitað eftirminni-
legur. Þegar maður er nálægt honum
þá er eins og maður sé í námunda
við tifandi tímasprengju, hann er
svo brjálæðislega kraftmikill og um
leið sjálfhverfur, eins og margir snill-
ingar eru. Þegar hann er að tefla þá
finnst manni að maður sé að horfa
á leiksýningu, það eru grettur, svip-
brigði og dramatík. Hann er ástríðu-
fullur og leiftrandi klár.
Svo verð ég að minnast á vin minn
Helga Ólafsson en það verður afmæl-
ismót honum til heiðurs nú um helg-
ina. Helgi er skemmtilegur, hnytt-
inn og hefur auðugt listamannseðli.
Skákir hans eru skapandi og hug-
myndaríkar. Það eru margar frægar
sögur til af Helga. Einhvern tíma
á sínum yngri árum, eftir að hafa
tapað tvísýnni skák, þaut hann út en
kom síðan aftur nokkru seinna því
hann hafði áttað sig á því að hann
hafði gleymt skónum sínum.
Skákin er list yfirvegunar en það
eru líka miklar tilfinningar sem
tengjast henni. Þess vegna er hún
aldrei leiðinleg."
Hvernig tekurþú því að tapa?
„Kannski tek ég því alltof vel, sem
er ekki endilega gott. En auðvitað er
ég keppnismanneskja og stundum
verð ég súr þegar ég tapa. Maður
verður að vilja vinna. Eg tapaði í
mörg ár fyrir ömmu minni og það
kenndi mér að sætta mig við að
tapa. Það á við í lífinu sjálfu, alveg
eins og (skákinni, að maður verður
að kunna að taka ósigrum en halda
samt áfram.
Þegar talað er um árangur í dag
þá eru notuð orð eins og frumkvæði,
áræðni og útsjónarsemi. Þetta eru
allt grundvallarlögmál góðrar tafl-
mennsku. Maður verður að hafa
kjark til að leiða atburðarásina og
þora að taka áhættu, fara ótroðnar
slóðir. Maður verður alltaf að finna
einhvern leik jafnvel þótt staðan virð-
ist vonlaus. Þannig endurspeglar
skákin sjálft lifið. Það er dýrmæt
lexía í lífinu að maður eigi alltaf ein-
hvern leik.“
Var það ekki stór áfangi í lífi þínu
að verðaforseti Skáksambandsins?
„Það sem er kannski athyglisverð-
ast við það að ég varð forseti Skák-
sambandsins er ekki bara að ég er
fyrsta konan til að gegna því emb-
ætti heldur það að ég er femínisti.
Gamalgróið karlaveldi valdi femín-
ista til að leiða hreyfingu sína. Það
var athyglisvert og róttækt skref hjá
þessari góðu hreyfingu. Karlarnir
vissu allir að ég hafði barist, skamm-
ast og röflað í þeim í mörg ár varð-
andi skertan hlut kvenna en þeir
ákváðu samt að veðja á mig. Þetta
hefur verið gefandi og skemmtilegt
starf og það eina sem ég sakna við
að vera svona leiðandi í hreyfing-
unni er að geta ekki teflt nógu mikið
sjálf.”
Dásamlegur félagi
Tölum aðeins um einkalífið, þú
býrð með konu en einhvern tímann
las ég viðtal við þig þar sem þú sagð-
ist ekki vera lesbía.
„Ég var með þeim orðum að reyna
að brjóta upp staðlaðar hugmyndir
Framhald á ncestu opnu
Samba
svefnsófi TILBOÐ 59.600
rafmagnsrúm verð frá 84.510
dúnsœngur & koddar
eldhússtólar
barstólar
borðstofa
sjónvarpsherbergið
náttborð verð 9.800
; - -V ,
Kdrolin
svefnsófar
sófasett & hornsófar
stólar / casper 39.000
1.. ■Q'
i~ni
5
.
*»if
www. toscana. is
HÚSGAGNAVERSLUN
TOSCANA
SMIBJUVEGI 2, KOP S;587 6090
HÚSGÖGNIN FÁST EINNIG i HÚSGAGNAVAL. HÖFN S: 478 2535