Orðlaus - 30.09.2004, Side 30

Orðlaus - 30.09.2004, Side 30
F KOMDU ELSKHUGANUM A OVART! Það er misjafnt hvað kemur okkur til og hvað ekki en iíffræðilega séð þá eru sumir staðir næmari fyrir snertingu en aðrir. Ef þig langar að koma elskhuganum á óvart og gefa honum ógleymanlegt kvöld þá ættirðu að lesa áfram.Mrj|qja staðina á minnið og koma þér upp leikplani. Hársvörður Það finnst öllum gott að láta leika við hárið á sér. Það er ástæða fyrir því að það er svona dýrt að láta þvo á sér hárið á hárgreiðslustofum, það er af því að fólk er tilbúið til að borga hátt verð! Fáðu leikfélagann til að setjast á milli lappanna á þér og halla hausnum aftur og nuddaðu hársvörðinn og hausinn og hann mun falla í dá og ekki vita af sér um stund. Ef þú átt baðkar þ^jetið þið ákveðið einn dag í viku þar sem þið farið í bað sJJjlan og þvoið á hvort öðru hárið. Hnakkinn, hálsinn og bak við eyrun Þetta svæði er eitt stórt örvandi svæði og þau vinna mjög vel saman. Ein leið er að nudda eða klóra laust í hársvörðinn um leið og þú kyssir hálsinn. Þú getur líka prófað að standa á bak við manneskjuna og nota báðar hendurnar, eina til að halda utan um hálsinn og kjálkann til að geta snúið höfðinu þegar þig langar til að kyssa hann, og hina til að nudda hársvörðinn. Þú getur notað sama trix en í stað þess að kyssa hann geturðu fiktað við eyrað á honum. Svæðið bak við eyrun er sérstaklega næmt hjá karlmönnum og flestir vilja að tungan sé notuð, þá sleikirðu í hringi og þrýstir fast og laust til skiptis þangað til að hann verður alveg trylltur. Eyrun Konur og karlar eru ekki með sömu þarfir þegar það kemur að eyrum. Konur vilja láta gæla við eyrnasneplana á meðan karlmenn vilja láta gæla við efri part eyrans. (Það er þó misjafnt eftir fólki.) Hvað varðar konur þá ættirðu að prófa að sleikja hann fyrst létt og ögrandi og þegar þú finnur að hún er orðin æst þá seturðu eyrnasnepilinn upp í þig og sígur. Á meðan þú ert að sjúga prófaðu þá að snúa tungunni í kringum eyrnasnepilinn, þetta ætti að virka mjög vel. Fyrir karlmenn á þó frekar að einbeita sér að efri partinum, þá kyssa hann og narta laust I hann og láta tunguna renna niður í „rennibrautinni" niður að eyrnasneplinum. Prófaðu svo í miðjum hasarnum að pota með tunguna inn í eyrað á honum og athugaðu hvað gerist... annað hvort finnst honum það himneskt eða ekki gott... þannig að það er þess virði að athuga það! Lófarnir Lófarnir okkar eru rosalega næmir fyrir snertingum og þetta er það svæði sem við getum komist í snertingu við hvar sem er og hvenær sem er. Hvort sem það er á almannafæri eða bara heima upp í sófa að horfa á vídeó þá er hægt að gæla við lófann. Þetta er góður staður sem byrjunarreitur fyrir það sem koma skal og hann gefur ekki alveg beinar vísbendingar um að þig langi upp í ból en eftir kitl í lófanum i smá tíma þá á það eftir að leiða annað... Mjóbak Þetta er tilvalið svæði til að taka fyrir ef þið eruð að nudda hvert annað. Byrja efst á bakinu og fikra sig niður eftir því og enda á löngum kafla á mjóþakinu. Karlmenn verða sérstaklega örvaðir við snertingar á þessu svæði en það verður þó að vera gert á réttan hátt. Notaðu tvo putta, helst þumalfingurna því þá nærðu gripi um mjaðmirnar og notar þumalputtana til að nudda í hringi og þrýsta örlítið niður. Á meðan þú ert að nudda er sniðugt að stoppa nokkrum sinnum til að leggjast niður og kyssa hann aftan á hnakkanum og upp að eyranu og byrja svo aftur að nudda. Mjaðmirnar Það er löngu vitað hversu veigamiklu hlutverki mjaðmirnar gegna í kynlífi hjá konum en það eru færri sem vita að karlmenn eru jafn hrifnir af þeim og konur. Vegna nálægðar við kynfærin þá leiðir snerting við mjaðmirnar beint niður í kynfærin. Hvort sem það er gripið um mjaðmirnar í leiknum sjálfum eða áður en hann hefst þá vekur það upp löngun í meira. Það þarf ekki annað en að halda utan um þær og þá magnast upp allar tilfinningar, þannig að grip um mjaðmirnar þegar samfarir eða munngælur eiga sér stað gerir kynlífið margfalt betra. Hné Hefurðu ekki lent í því að það sé klipið utan um hnén á þér og þú kippist öll til? Þú getur notfært þér þetta svæði á annan hátt, með því að klípa ekki fast heldur bara þrýsta á það og færa þig síðan ofar upp lærið og enda í innra lærinu. Þetta er einnig tilvalinn staður til að nota við flört því þetta er staður sem hægt er að snerta „óviljandi" þegar þú ert að spjalla, það gefur engin merki en fær manneskjuna til að hugsa og færast nær þér ef hún hefur áhuga á. Innri læri Viðkvæmasta svæðið er um 10 cm niður frá kynfærunum. Þarna er allt pakkað af taugaendum þannig að forleikur þarna áður en gælt er við kynfærin gera bólfélagann mun æstari. Byrjaðu neðst og færðu þig síðan ofar en þegar kemur að hátindinum færðu þig þá aftur niður til að magna upp spennuna enn meira. Notaðu fínar hreyfingar með puttanum eða tungunni og þá tekst þér að vekja upp allt svæðið kring.v Naflinn Naflinn er tengdur beint við kynfæri okkar og þegar leikið er með naflann þá örvumst við flest okkar furðu fljótt. Það þarf þó að fara vel að honum því hann er mjög viðkvæmur og mistök þar, eins og til dæmis að pota í hann, geta dregið úr allri kynlífslöngun. Besta leiðin er að þrýsta lófanum á naflann, þó ekki fast, og nudda í hring þannig að húðin hreyfist undir lófanum en ekki lófinn ofan á húðinni. Byrjaðu hægt og auktu hraðann eftir því sem við á eða í samráði við bólfélagann og það sem honum finnst gott. Tærnar Það eru ekki allir sem hafa áhuga á því að sjúga annarra manna tær eða þá einu sinni koma við þær, en það er einmitt þess vegna sem sá verknaður verður mjög innilegur. Alveg eins og puttarnir okkar þá hafa tærnar mikið af tilfinningum og ef þig langar ekki að sjúga þær þá er gott að byrja á nuddi, nota við það krem sem er góð lykt af og hver veit nema þú sért farin að sleikja þær. Ef þú kemst á þetta stig byrjaðu þá á litlu tánni og fikraði þig í átt að stóru tánni, þá nærðu að magna upp spennu hjá viðkomandi og ef það ert þú sem tekur fyrsta skrefið þá er aldrei að vita nema þú fáir leikinn endurgreiddan sem þú átt ekki eftir að sjá eftir. 3 Mundu að mjúkar og fíngerðar hreyfingar virka alltaf. Það er líka mikilvægt að geta tjáð sig um það sem þér finnst gott og hvað ekki. Ef þið getið sagt hvort öðru það þá náið þið mun betri árangri en ella. -EMÞ-

x

Orðlaus

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Orðlaus
https://timarit.is/publication/942

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.