Orðlaus - 30.09.2004, Page 30
F
KOMDU ELSKHUGANUM A OVART!
Það er misjafnt hvað kemur okkur til og hvað ekki en iíffræðilega séð þá eru sumir staðir næmari fyrir snertingu en aðrir. Ef þig langar að koma
elskhuganum á óvart og gefa honum ógleymanlegt kvöld þá ættirðu að lesa áfram.Mrj|qja staðina á minnið og koma þér upp leikplani.
Hársvörður
Það finnst öllum gott að láta leika við hárið á sér. Það er
ástæða fyrir því að það er svona dýrt að láta þvo á sér
hárið á hárgreiðslustofum, það er af því að fólk er tilbúið
til að borga hátt verð! Fáðu leikfélagann til að setjast á
milli lappanna á þér og halla hausnum aftur og nuddaðu
hársvörðinn og hausinn og hann mun falla í dá og ekki vita
af sér um stund. Ef þú átt baðkar þ^jetið þið ákveðið einn
dag í viku þar sem þið farið í bað sJJjlan og þvoið á hvort
öðru hárið.
Hnakkinn, hálsinn og bak við eyrun
Þetta svæði er eitt stórt örvandi svæði og þau vinna mjög vel
saman. Ein leið er að nudda eða klóra laust í hársvörðinn um leið
og þú kyssir hálsinn. Þú getur líka prófað að standa á bak við
manneskjuna og nota báðar hendurnar, eina til að halda utan um
hálsinn og kjálkann til að geta snúið höfðinu þegar þig langar til
að kyssa hann, og hina til að nudda hársvörðinn. Þú getur notað
sama trix en í stað þess að kyssa hann geturðu fiktað við eyrað á
honum. Svæðið bak við eyrun er sérstaklega næmt hjá karlmönnum
og flestir vilja að tungan sé notuð, þá sleikirðu í hringi og þrýstir
fast og laust til skiptis þangað til að hann verður alveg trylltur.
Eyrun
Konur og karlar eru ekki með sömu þarfir
þegar það kemur að eyrum. Konur vilja láta
gæla við eyrnasneplana á meðan karlmenn
vilja láta gæla við efri part eyrans. (Það er
þó misjafnt eftir fólki.) Hvað varðar konur
þá ættirðu að prófa að sleikja hann fyrst
létt og ögrandi og þegar þú finnur að hún
er orðin æst þá seturðu eyrnasnepilinn upp
í þig og sígur. Á meðan þú ert að sjúga
prófaðu þá að snúa tungunni í kringum
eyrnasnepilinn, þetta ætti að virka mjög
vel. Fyrir karlmenn á þó frekar að einbeita
sér að efri partinum, þá kyssa hann og narta
laust I hann og láta tunguna renna niður í
„rennibrautinni" niður að eyrnasneplinum.
Prófaðu svo í miðjum hasarnum að pota með
tunguna inn í eyrað á honum og athugaðu
hvað gerist... annað hvort finnst honum
það himneskt eða ekki gott... þannig að
það er þess virði að athuga það!
Lófarnir
Lófarnir okkar eru rosalega næmir fyrir snertingum og þetta er
það svæði sem við getum komist í snertingu við hvar sem er og
hvenær sem er. Hvort sem það er á almannafæri eða bara heima
upp í sófa að horfa á vídeó þá er hægt að gæla við lófann. Þetta er
góður staður sem byrjunarreitur fyrir það sem koma skal og hann
gefur ekki alveg beinar vísbendingar um að þig langi upp í ból en
eftir kitl í lófanum i smá tíma þá á það eftir að leiða annað...
Mjóbak
Þetta er tilvalið svæði til að taka fyrir ef þið eruð
að nudda hvert annað. Byrja efst á bakinu og
fikra sig niður eftir því og enda á löngum kafla
á mjóþakinu. Karlmenn verða sérstaklega örvaðir
við snertingar á þessu svæði en það verður þó að
vera gert á réttan hátt. Notaðu tvo putta, helst
þumalfingurna því þá nærðu gripi um mjaðmirnar
og notar þumalputtana til að nudda í hringi og
þrýsta örlítið niður. Á meðan þú ert að nudda er
sniðugt að stoppa nokkrum sinnum til að leggjast
niður og kyssa hann aftan á hnakkanum og upp
að eyranu og byrja svo aftur að nudda.
Mjaðmirnar
Það er löngu vitað hversu veigamiklu hlutverki
mjaðmirnar gegna í kynlífi hjá konum en það eru
færri sem vita að karlmenn eru jafn hrifnir af þeim
og konur. Vegna nálægðar við kynfærin þá leiðir
snerting við mjaðmirnar beint niður í kynfærin. Hvort
sem það er gripið um mjaðmirnar í leiknum sjálfum
eða áður en hann hefst þá vekur það upp löngun í
meira. Það þarf ekki annað en að halda utan um þær
og þá magnast upp allar tilfinningar, þannig að grip
um mjaðmirnar þegar samfarir eða munngælur eiga
sér stað gerir kynlífið margfalt betra.
Hné
Hefurðu ekki lent í því að það sé klipið utan um hnén
á þér og þú kippist öll til? Þú getur notfært þér þetta
svæði á annan hátt, með því að klípa ekki fast heldur
bara þrýsta á það og færa þig síðan ofar upp lærið og
enda í innra lærinu. Þetta er einnig tilvalinn staður til að
nota við flört því þetta er staður sem hægt er að snerta
„óviljandi" þegar þú ert að spjalla, það gefur engin merki
en fær manneskjuna til að hugsa og færast nær þér ef
hún hefur áhuga á.
Innri læri
Viðkvæmasta svæðið er um 10 cm
niður frá kynfærunum. Þarna er
allt pakkað af taugaendum þannig
að forleikur þarna áður en gælt er
við kynfærin gera bólfélagann mun
æstari. Byrjaðu neðst og færðu
þig síðan ofar en þegar kemur að
hátindinum færðu þig þá aftur
niður til að magna upp spennuna
enn meira. Notaðu fínar hreyfingar
með puttanum eða tungunni og þá
tekst þér að vekja upp allt svæðið
kring.v
Naflinn
Naflinn er tengdur beint við kynfæri okkar og þegar leikið
er með naflann þá örvumst við flest okkar furðu fljótt. Það
þarf þó að fara vel að honum því hann er mjög viðkvæmur og
mistök þar, eins og til dæmis að pota í hann, geta dregið úr
allri kynlífslöngun. Besta leiðin er að þrýsta lófanum á naflann,
þó ekki fast, og nudda í hring þannig að húðin hreyfist undir
lófanum en ekki lófinn ofan á húðinni. Byrjaðu hægt og auktu
hraðann eftir því sem við á eða í samráði við bólfélagann og
það sem honum finnst gott.
Tærnar
Það eru ekki allir sem hafa áhuga á því að sjúga annarra manna tær eða þá
einu sinni koma við þær, en það er einmitt þess vegna sem sá verknaður
verður mjög innilegur. Alveg eins og puttarnir okkar þá hafa tærnar mikið
af tilfinningum og ef þig langar ekki að sjúga þær þá er gott að byrja á
nuddi, nota við það krem sem er góð lykt af og hver veit nema þú sért farin
að sleikja þær. Ef þú kemst á þetta stig byrjaðu þá á litlu tánni og fikraði þig
í átt að stóru tánni, þá nærðu að magna upp spennu hjá viðkomandi og ef
það ert þú sem tekur fyrsta skrefið þá er aldrei að vita nema þú fáir leikinn
endurgreiddan sem þú átt ekki eftir að sjá eftir.
3
Mundu að mjúkar og fíngerðar hreyfingar virka alltaf. Það er líka mikilvægt að geta tjáð sig um það sem þér
finnst gott og hvað ekki. Ef þið getið sagt hvort öðru það þá náið þið mun betri árangri en ella.
-EMÞ-