Bændablaðið - 11.04.2006, Síða 2

Bændablaðið - 11.04.2006, Síða 2
2 Þriðjudagur 11. apríl 2006 Norðurlandsdeild Veiðimála- stofnunar og Vegagerðin Norð- urlandi vestra munu í sumar hleypa af stokkunum sam- starfsverkefni er miðar að því að opna svæði í ám og lækjum sem hafa lokast af fyrir göngu- fisk vegna vegræsa. Um rann- sóknarverkefni er að ræða þar sem ræsum verður breytt til að tryggja fiskgengi um þau og fylgst verður með áhrifum af lagfæringum fyrir viðkomandi fiskistofna. Þau svæði sem fyrir valinu hafa orðið í fyrsta áfanga eru Fljótin og Blöndu- hlíð í Skagafirði. Styrkur fékkst úr rannsóknasjóði Vegagerðar- innar til þessa verkefnis og er þetta í fyrsta skipti sem skipu- lega er ráðist í lagfæringar af þessu tagi og árangur þeirra mældur. Að sögn Bjarna Jónssonar hjá Norðurlandsdeild Veiðimála- stofnunar er ein helsta hættan sem fylgir þverun vatnsfalla í vega- gerð að ferðir fiska og smærri vatnadýra takmarkist eða séu jafnvel alveg hindraðar og bú- svæði þeirra skerðist. Að hans sögn hefur mun meiri aðgát verið höfð þegar stærri vatnsföll eru brúuð, sérstaklega ef um er að ræða mikilvægar veiðiár, heldur en við þveranir minni áa og lækja. Þessu valdi takmörkuð þekking á lífríki hinna síðarnefndu. Bjarni segir hliðarár og minni læki hins vegar gjarnan vera mik- ilvæg uppvaxtarsvæði laxfiska- seiða, ásamt því að urriði og bleikja hrygna oft í slíkum vatns- föllum. Þá sé algengt að laxaseiði gangi upp í hliðarár og minni læki og nýti sér þau búsvæði til vaxtar. Mikilvægi þessara vatnsfalla geti því oft verið umtalsvert fyrir við- gang og stærð sjógöngustofna. Aðgerðunum, sem ráðist verð- ur í í sumar, er ætlað að styrkja sjóbleikju og laxastofna Fljótaár og auka við uppeldissvæði sjó- bleikju og sjóbirtings á Héraðs- vatnasvæðinu. Ef árangur af þessu tilraunaverkefni verður góður er stefnt að því að ráðast í lagfæringar víðar á landinu. Rannsóknasjóður Vegagerðarinnar styrkir lagfæringu ófiskgengra ræsa Farsælt sam- starf í 25 ár 945 samningar hafa verið gerð- ir um námsdvöl! Mikilvægur hluti búfræði- náms á Hvanneyri hefur verið námsdvölin á kennslubúinu, en samstarf skólans og bænda hófst í janúar 1981. Nú eru kennslubú LBHÍ 76 víðsvegar um landið. Frá upphafi hefur Sigtryggur Jón Björnsson, kennari á Hvanneyri, haldið utan um og þróað þetta farsæla samstarf. Á meðfylgjandi mynd er Kristján Friðriksson, búfræðinemi frá Gautsstöðum á Svalbarðsströnd, að skrifa undir samning um námsdvöl sína á Spóastöðum í Biskupstungum. Þar mun hann dvelja sem einn af heimilisfólk- inu við nám og störf næstu þrjá mánuðina og er hann farinn þangað þegar þetta er ritað. Þetta mun hafa verið samn- ingur nr. 940 sem Sigtryggur gerir milli skólans, nemanda og kennslubús. Sú starfsþjálfun og bóklega námið, sem stundað er samhliða í námsdölinni, hefur reynst vera góður skóli og hvað eftirminnilegasti þáttur námsins á Hvanneyri að mati flestra bú- fræðinga. Það er skólanum ómetanlegt að eiga jafn gott samstarf við heimilisfólk á kennslubúunum og raun ber vitni. /SHe Hreppsnefnd Breiðdalshrepps hefur enn einu sinni samþykkt ályktun þar sem skorað er á yf- irvöld vegamála að á þessu ári verði gert verulegt átak í að lagfæra malarvegi á Suður- byggð og Norðurdal í Breiðdal. Kaflar á þessum vegum hafa á undanförnum árum langtímum saman verið illfærir vegna gallaðs ofaníburðar og skorts á viðhaldi. Við slíkt verður ekki unað lengur, segir í ályktuninni. Sigfríður Þorsteinsdóttir, sveitarstjóri Breiðdalshrepps, sagði í samtali við Bændablaðið að þessir fyrrnefndu vegir hefðu fengið afskaplega takmarkað við- hald auk þess sem ofaníburðurinn sé slæmur. Það sé fyrir löngu kominn tími á viðhald þessara vega sem báðir eru safnvegir. Hún segir að ályktanir um að skora á yfirvöld vegamála að gera eitthvað í málinu hafi verið sam- þykktar tvisvar á ári þau fjögur ár sem hún hefur verið sveitarstjóri í Breiðdalshreppi en lítið verið gert. Sagt sé að einhverjir pening- ar verði settir í að laga þessa vegi í sumar. Sigfríður segir hreppsnefnd Breiðdalshrepps líka leggja þunga áherslu á að sem fyrst verði farið í að skipuleggja upp- byggingu hringvegarins sem enn hefur ekki verið slitlagður í Breiðdal og Skriðdal. Hún segir að þarna séu holóttir fornaldar- vegir án bundins slitlags. Það er ofarlega á óskalista Breiðdælinga að gerð verði jarð- göng undir Breiðdalsheiði og Berufjarðarskarð. Sigfríður segir að þetta hafi verið rætt en enginn viti hvenær þetta kemst á áætlun. Með þessum jarðgöngum kæmist á mjög góð heilsárstenging milli Fljótsdalshéraðs og Breiðdals- og Djúpavogshreppa. Hún segir þessi gögn jafnvel stytta leiðina fyrir Norðlendinga til Reykjavík- ur. Brýnast af öllu sé að lagfæra vegina í Norðurdal og Suðurdal. Vegir í Breiðdals- hreppi illfærir vegna gallaðs ofaníburðar Símareikningar vegna ISDNplús áskriftar Nokkuð hefur verið um það að bændur hafi haft samband við tölvudeild BÍ vegna síma- reikninga frá Símanum vegna ISDNplús áskriftar. Bændur eru hvattir til að fara vel yfir símareikninginn til að tryggja að rétt sé með farið. Einnig er nauðsynlegt að þeir, sem eru með ISDN+, en ekki venjulega ISDN áskrift, fari vel yfir stillingar á FRITZ! hug- búnaðinum. Miklu máli skiptir að hugbúnaðurinn sé þannig stilltur að samband við B-rás rofni eftir ákveðinn tíma meðan verið er að rápa á netinu (að- eins D-rás sé þá tengd) og hringi síðan aftur inn á B-rás þegar þörf er á eftir ákveðinn tíma. Þeir sem eru með ISDN+ fá nefnilega upphafsgjald nið- urfellt sem afslátt. Það kemur fram á símareikningi sem „Afsl. af upphafsgj. ISDN plús“. Jafnframt er brýnt að fá sundurliðun á reikningi til að skoða hvort þær 60 mínútur, sem eru innifaldar í ISDNplús áskrift, komi rétt fram undir liðnum „Símtöl innanlands“. Ef bændur þurfa á aðstoð að halda vegna þessa er hægt að hringja í tölvudeild BÍ sem þá reynir að leiðbeina eða liðsinna bændum í samskiptum við Sí- mann. Vilja að virðisauka- skattur af refa- og minkaveiðum verði endurgreiddur Hreppsnefnd Djúpavogs- hrepps hefur samþykkt álykt- un þar sem skorað er á Sam- band íslenskra sveitarfélaga að beita sér fyrir því við ríkis- valdið að virðisaukaskattur af refa- og minkaveiðum verði endurgreiddur til sveit- arfélaganna. Málið var rætt á stjórnarfundi sambandsins nýlega. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður sambandsins, sagði í samtali við Bændablaðið að þetta mál hefði verið rætt áður og að í ljós hafi komið mikil tregða hjá ríkisvaldinu að gefa eftir slíkar greiðslur. Hann sagði málið til skoðunar og ekki síst með tilliti til þess að í undirbúningi eru ný lög um refa- og minkaveiðar. Frum- vörpin hafa verið samin en ekki enn verið lögð fram . ,,Ég er samt ekki bjartsýnn á að fjármálaráðherra fallist á að fella virðisaukaskatt af veið- unum niður. Það hefur líka ver- ið að gerast á síðustu misserum að sveitarfélögin hafa orðið að taka á sig æ stærri hluta af kostnaði við veiðarnar. Í byrjun var gengið út frá því að þarna yrði um helmingaskipti að ræða milli ríkis og sveitarfélaga en nú er svo komið, vegna þess að kostnaðurinn er alltaf að aukast og ríkið greiðir bara ákveðna fasta upphæð, að sveitarfélögin greiða 70% kostnaðar við veið- arnar en ríkið 30%. Í kjölfarið hafa sveitarfélögin verið að breyta skipulagi þessara mála hjá sér og eitthvað hefur sparast við það. Hitt er ljóst að ef menn ætla að vinna á mink og ref þá þarf meira fjármagn í þennan málaflokk,“ sagði Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson.Hér má sjá illgengt ræsi sem getur hindrað ferð fiska. Bændablaðið/Jón Eiríksson

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.