Bændablaðið - 11.04.2006, Side 21

Bændablaðið - 11.04.2006, Side 21
21Þriðjudagur 11. apríl 2006 Á aðalfundi Hrossaræktarsam- taka Suðurlands, sem haldinn var í Þingborg fimmtudaginn 30. mars síðastliðinn, fluttu Svan- hildur Hall og Magnús Lárus- son, reiðkennarar, erindi um mat á unghrossum. Magnús sagði í samtali við Bændablaðið að þau Svanhildur hefðu verið að þróa kerfi sem miðar að því að vinna með hross yngri en fjögurra vetra til þess að flýta fyrir tamningu þeirra í reið. Hann sagði þau nota upplýs- ingarnar sem þau fá í gegnum þessa vinnu til að leggja mat á skapgerð, hreyfingar og útlit. Með þessu er hægt að grisja frá það sem er miður heppilegt. ,,Það er stundum sagt að hross á þessum aldri séu misþroska. Samt er eitt og annað sem við vitum að er komið til að vera og mun ekki breytast þegar þau eldast þótt aðrir þættir geti breyst. Ef við nýtum okkur þær upplýsingar sem við fáum þarna getur maður áttað sig á í hvaða átt hrossið er að þróast. Hjá sumum er hægt að sjá ákveðna þætti strax þegar þau eru 2ja vetra, öðrum 3ja vetra. Á þessum aldri eru hrossin miklu fljótari að læra en þau sem eldri eru. Við nýtum okkur það og kennum þeim það sem hægt er. Við venjum þau við að bera hnakk og beisli og jafnvel að setjast á bak þeim þótt ekki sé um beina tamningu í reið að ræða. Og síðast en ekki síst að móta við- horf þeirra gagnvart manninum og skapa virðingu og traust,“ sagði Magnús. Hann sagði að þau Svanhildur væru búin að vera í hrossarækt um nokkurn tíma og noti þessar aðferðir við sína hrossarækt til að ná þeim mark- miðum sem þau hafa sett sér. Síð- an hafa þau unnið með hópa af hrossaræktendum sem nota þessi sömu vinnubrögð. Þessi aðferð þeirra við unghrossin kemur mönnum til góða við tamningu og einnig sparar það kostnað að losna strax við trippi sem munu skila litlu síðar meir sem reiðhestar og þetta flýtir líka fyrir að gera hross- in að góðri söluvöru. Mat á unghrossum skilar miklu til hrossaræktenda Smíðum sérlega vandaðar bílskúrs- og iðnaðarhurðir eftir málum. Þær eru léttar og auðveldar í notkun. Einangrun er á öllum köntum. Fáanlegar í mörgum stærðum og gerðum, með eða án glugga. Einnig fáanlegar með mótordrifi. Verðdæmi: 3000 mm X 3000 mm = kr. 115.020,- m/VSK Bílskúra- og iðnaðarhurðir Vagnar & þjónusta ehf Tunguháls 10, 110 Reykjavík Sími: 567-3440, Fax: 587-9192 Afgreiðslutími hurða 3m hæð, 4 dagar.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.