Bændablaðið - 11.04.2006, Qupperneq 22

Bændablaðið - 11.04.2006, Qupperneq 22
22 Þriðjudagur 11. apríl 2006 Endurnýting lambamerkja Á aðalfundi Landssamtaka sauð- fjárbænda sem haldinn var dagana 30. og 31. mars sl. var samþykkt að skora „á Yfirdýralækni að heimila endurnýtingu eyrnamerkja úr sláturlömbum, án þess að hver einstakur bóndi þurfi að sækja um það sérstaklega. Viðkomandi slát- urhús beri ábyrgð á sótthreinsun allra lambamerkja.“ Í greinargerð með tillögunni segir meðal annars að árleg merkjakaup valdi umtalsverðum kostnaði hjá sauðfjárbændum, auk þess sem það stuðli bæði að hag- ræði fyrir bændur og umhverfis- vernd að bændur fái að endurnýta merkin. Varðveitum verkþekkinguna Aðfundurinn samþykkti að beina því til stjórnar „að leita leiða til að halda skinnaiðnaði og verkþekk- ingu sem honum tengist í landinu. Þótt illa ári nú er mjög slæmt að láta verðmæti sem felast í verk- þekkingu og vélum skinnaiðnaðar hverfa.“ Óviðunandi vinnubrögð yfirdýralæknis Aðalfundurinn samþykkti að átelja „embætti yfirdýralæknis fyrir óviðunandi vinnubrögð við gerð samninga og uppgjör vegna riðu- niðurskurðar. Fundurinn krefst þess að bætt verði nú þegar úr þeim brotalömum sem orðið hafa á gerð og efndum samninga við sauðfjárbændur sem skorið hafa niður í baráttunni við riðuveiki.“ Í greinargerð með ályktuninni segir að bændum hafi verið mis- munað við samningsgerð, þeir eigi rétt á að fá lögboðnar bætur greiddar án eftirgangsmuna, nógu erfitt sé að láta fjárstofn sinn, um- turna húsum, eyða heyjum og farga eigum. Einnig segir að fund- urinn hafi ekki efasemdir um að halda beri áfram að bregðast við riðu með niðurskurði en til þess að tryggja áframhaldandi samstarf bænda í baráttunni gegn riðuveiki verði embættið að standa mun bet- ur að málum en verið hefur. Grænn eða gulur stuðningur? Aðalfundurinn samþykkti að beina eftirfarandi „til samninganefndar um nýjan sauðfjársamning: „Sauð- fjárbændur komu verulegum hluta af sínum ríkisstuðningi árið 1995 í „grænt box“ samkvæmt WTO. LS krefst þess að við njótum þess þeg- ar kemur til skerðingar og bú- greinaskiptingar á „gulum stuðn- ingi“. Tryggt þarf að vera að út- flutningsþörf sé uppfyllt til að halda jafnvægi á innanlandsmark- aði, komi til þess að ráðherra- ábyrgð á henni verði afnumin.“ Dýralæknakostnaður verði skoðaður Fundurinn samþykkti að beina „því til stjórnar að láta gera úttekt á öllu er varðar dýralæknakostnað. Leitað verði eftir samstarfi fleiri aðila um málið og leitað eftir fjár- magni til verkefnisins. Markmiðið er að kanna lyfjaverð og kostnað við dýralæknaþjónustu milli hér- aða, mismun milli Íslands og ná- grannalanda, og einnig aðgang bænda að lyfjum í sömu löndum.“ Breytingu á þungaskatti mótmælt Fundarmenn ítrekuðu „ályktun frá síðasta aðalfundi þar sem þeirri kostnaðarhækkun sem hlaust að breyttri löggjöf um innheimtu þungaskatts í gegnum olíugjald var mótmælt. Fundurinn beinir því til stjórnar BÍ að ljúka samningum við fjármálaráðuneytið hið fyrsta.“ Verðhækkun á orku mótmælt Fundurinn mótmælti „hækkun á raforkuverði, sem er tilkomið með nýjum raforkulögum og bitnar illa á bændum. Fundurinn hvetur stjórn BÍ til að standa fast á hags- munum bænda að þessu máli.“ Tölvumál og netsamband Á aðalfundinum voru samþykktar tvær ályktanir um tölvumál og net- tengingar bænda. Í annarri er fagn- ar fundurinn „þeirri vinnu sem er farin af stað við nýjan Fjárvís og hvetur til áframhaldandi þróunar í samvinnu við bændur. Tryggðar verði áfram viðunandi lausnir varðandi skýrsluhald í sauðfjár- rækt, þar til allir hafa fengið ásætt- anlega nettengingu.“ Í þeirri síðari er því beint „til stjórnar BÍ að fylgja því eftir að flýtt verði sem mögulegt er að bæta aðgengi fólks í hinum dreifðu byggðum landsins að háhraða int- ernet tengingum.“ Hækkanir umfram verðlag Stjórn LS var brýnd til „að ná fram verulegum hækkunum á afurða- verði, umfram verðlagsþróun, á komandi hausti.“ Varnarlínum sé viðhaldið Fundurinn skoraði „á stjórnvöld að tryggja fjármagn til viðhalds og endurnýjunar á sauðfjárveikivarn- arlínum.“ Í greinargerð segir að það sal- gerlega ólíðandi að vörslu og við- haldi varnargirðinga sé ekki sinn fyrr en langt er liðið á sumar og í sumum tilvikum séu girðingar ekki reistar við. „Ekki má slaka á í bar- áttunni við búfjársjúkdóma eins og riðu, garnaveiki, tannlos, kýlapest og kláða eða veikja varnir gagn- vart sjúkdómum sem borist geta til landsins,“ segir þar. Viðbrögð við fuglaflensu Fundurinn beindi því „til yfirdýra- læknis að kynna sem fyrst í Bændablaðinu, viðbrögð við fugla- flensu berist hún til landsins.“ Aðalfundur Landssamtaka sauðfjárbænda Svipmyndir frá aðalfundinum WECKMAN STURTUVAGNAR H. Hauksson ehf. Suðurlandsbraut 48 Sími 588 1130 Fax 588 1131 Verðdæmi: 6 tonn Verð kr. 550.000 með virðisaukaskatti 8 tonn Verð kr. 675.000 með virðisaukaskatti 10 tonn Verð kr. 755.000 með virðisaukaskatti 12 tonn Verð kr. 840.000 með virðisaukaskatti (Athugið! Fleiri gerðir í boði: 1,5 - 17 tonn) Bændablaðið kemur næst út: þriðjudaginn 2. maí

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.