Bændablaðið - 11.04.2006, Síða 35
35Þriðjudagur 11. apríl 2006
Diakur plus – og kálfurinn þrífst betur
Diakur plus er í náttúrulyfjalínu fyrirtækisins Boehringer
Ingelheim og er ætlað til að koma kálfum í gegn um skitutímabil.
Ástæður þess að Diakur plus er
einstakt í sinni röð eru eftirfarandi:
• Blandast í vatni eða mjólk.
• Einkaleyfisverndað pektin sem er húðað með lecitini.
• Hátt orkuhlutfall – sykruhlutfall 360 Kcal í einum skammti
Diakur plus fjarlægir hratt patogeniskar bakteríur úr
meltingarveginum og nær upp vökvamagni líkamans á réttan hátt.
Einn skammtur af Diakur plus fjarlægir 350 milljarða E.coli.
Bakteríurnar bindast við pektinfibra í stað þarmaveggja,
og þar með verða ekki frekari skemmdir á meltingarveginum.
Vatnsbúskapur líkamans lagast, þökk sé sérstakri
málmsaltablöndu sem er í Diakur plus.
Sími: 570 9800Hlíðarvegi 2-4 Hvolsvelli Fax: 570 9801 www.fodur.isKorngörðum 12 Reykjavík Austurvegi 69 Selfossi Bústólpi Akureyri
Nánari upplýsingar
á www.fodur.is
Nýlega var haldinn stofnfundur
Járningamannafélags Íslands, en
járningamenn, sem flestir starfa
sjálfstætt, hafa hingað til ekki átt
sér fagfélag. Á stofnfundinn
mættu um tuttugu járningamenn
víðsvegar að og í stjórn voru
kjörnir þeir Sigurður Torfi Sig-
urðsson, formaður; Sigurður Sæ-
mundsson, Ragnar Ólafsson,
Guðmundur Guðmundsson og
Kristján Elvar Gíslason. Alls
hafa 35 manns skráð sig í félagið
en hægt er að skrá sig sem stofn-
félaga til 18. apríl nk.
Markmið félagsins er að efla
menntun og fræðslu járningamanna
og auka tengsl við erlenda fræði-
menn í faginu. Eitt fyrsta verkefni
félagsins á þessu sviði verður að fá
til landsins hinn þekkta járninga-
mann og dýralækni Hans Casteljins
sem búsettur er á Ítalíu og mun
hann halda námskeið fyrir íslenska
járningamenn hér á landi í lok maí.
Námskeiðið verður auglýst þegar
nær dregur en hægt er að fá nánari
upplýsingar hjá Sigurði Torfa, for-
manni félagsins.
Þeir sem vilja skrá sig í félagið
geta snúið sér til Sigurðar Torfa og
sent honum tölvupóst á netfangið
sts@nett.is en félagið er öllum
opið, jafnt þeim sem eru sérmennt-
aðir í járningum sem og áhuga-
mönnum er stunda járningar. /hgg
Frá stofnfundi Járningamannafélags Íslands í Kópavogi fyrir skemmstu.
Bændablaðsmynd: HGG
Járningamenn stofna félag
L a m b o o s t
Lamboost er fæðubótarefni sem er auðugt af
broddmjólk og næringarefnum og er sérstaklega
hannað með þarfir lítilla og léttra lamba í huga.
Lamboost veitir þessum lömbum aukna orku sem er
þeim lífsnauðsynleg eftir fæðingu. Lamboost stuðlar
að jafnvægi þarmaflórunnar og getur þannig komið í
veg fyrir skitu
F l o r y b o o s t
Floryboost er þarmastyrkjandi pasta til inntöku fyrir
lömb með meltingartruflanir. Floryboost inniheldur
sérstakan leir (montmorillonite), sölt, dextrósi,
frúktó-ólígósakkaríð og nauðsynlegar olíur úr
blóðbergi og rósamarín. Þetta fæðubótarefni er notað
ef meltingartruflanir hafa gert vart við sig.
Auðvelt í notkun og er með íslenskum
leiðbeiningum.
Þarfnast ekki blöndunar og má nota strax.
Sauðfjárbændur athugið!!!
Nánari upplýsingar getur þú fengið hjá dýralækninum
þínum eða hjá umboðsaðila.
Umboðsaðili: Dýraheilsa ehf. Sími: 564 2240
Heildsöludreifing: Vistor hf. Pöntunarsími: 535 7000
Lamboost og Floryboost
Ómissandi í sauðburðinum!!
Pasta til inntöku fyrir lömb
Nú fæst einnig Floryboost fyrir lömb