Bændablaðið - 11.04.2006, Page 39
39Þriðjudagur 11. apríl 2006
Gylfaflöt 24-30
Sími: 580 8200
velfang@velfang.is
www.velfang.is
Notaðar vélar á góðu verði
Zetor dráttarvél
Gerð: 7341
Árgerð: 1998
Notkun: 3700 vst.
Stærð: 82 hestöfl.
Drif: 4wd
Case dráttarvél
Gerð: 4230
Árgerð: 1995
Notkun: 4800 vstd.
Stærð: 82 hestöfl.
Drif: 4x4
Massey Ferguson dráttarvél
Gerð: 4255 12/12 PS Lágnefja
Árgerð: 2000
Notkun: 3300 vst.
Stærð: 95 hestöfl. DIN
Drif: 4x4
Ámoksturstæki: Trima 3.40 skóflu
í traktorsbreidd. Þriðja svið,
Gálgademparar.
Claas rúllubindivél
Týpa: 250 RF
Árgerð: 2000
Búnaður: 2,10 m sópvinda, Roto
feed mötun (snigilmötun).
netbúnaður. CCT stjórnbox.
McCormick dráttarvél
Gerð: MC115
Árgerð: 2004
Notkun: 1000 vstd.
Stærð: 118 hestöfl
Drif: 4x4
Helsti búnaður: Stoll Robust F-30
ámoksturstæki með Multi-Doc2/4
ásamt fjöðrun
Athugasemdir: Ný vél
Valmet 900
Árgerð: 1999
Notkun: 3,700 vst.
Stærð: 95 hestöfl. DIN
Drif: 4x4
Welger RP 200
Árgerð: 1998
Búnaður: 2,10 m sópvinda,
14 hnífa söxun og garnbúnaður,
mötunarvals
Krone 2 stjörnu múgavél
Gerð: KS 1401 DUO II
Vinnslubreidd: 8,40
Árgerð: 2000
Búnaður: Tveggja stjörnu.
Tegund: Case dráttarvél
Gerð: CS 94
Árgerð: 1998
Notkun: 7500 vst.
Stærð: 95 hestöfl.
Drif: 4x4
Same ASTRA
Árgerð: 1991
Notkun: 2500 vst.
Stærð: 100 hestöfl. DIN
Drif: 4x4
Ámoksturstæki: Sigma með skóflu
og þriðja svið.
Helsti búnaður: Fjögur drif og
fimm gírar, rafmagnskúppling.
Vendigír.
Magnús Þór Eggertsson er bóndi
í Ásgarði í Reykholtsdal. Jafn-
framt því er hann stórtækur
verktaki í mörgum greinum í
landbúnaði. Hann sagði í samtali
við Bændablaðið að það marg-
borgaði sig fyrir bændur að fá
verktaka til að vinna ákveðin
verk heldur en að kaupa sér sjálf-
ir vélar til að vinna verkið.
,,Það er nú ekki það sem ræður
ferðinni hjá mörgum. Menn segjast
vera bændur og vilja gera hlutina
sjálfir. Menn fara ekki alltaf djúpt í
það að reikna afskriftir af tækjum
sem kaupa þarf til verkanna þeir
bara vilja gera þetta sjálfir,“ sagði
Magnús.
Það eru býsna mörg verk sem
Magnús tekur að sér. Þar á meðal
allar tegundir af skítkeyrslu og
hann er með 15 tonna mykjudælu-
dreifara og skádælu. Hann tekur
líka að sér endurvinnslu á túnum og
plægingar fyrir kornrækt og sán-
ingu á öllum tegundum af fræi. Þá
er hann um þessar mundir að fá til
sín nýja gerð af taðdreifara. Afköst
hans eru margföld á við þá gömlu
dreifara sem hafa verið í notkun.
Magnús segir að það fari ört
vaxandi að menn noti hálm undir
kindur og aðra gripi. Hálmurinn er
látinn standa úti í haug í eitt ár eftir
notkun og þá morknar hann niður.
Síðan getur þessi nýi taðdreifari
tekið hálminn og tætt hann í sundur
og dreift á akra, tún eða flög því þá
er hann orðinn hinn besti áburður.
Skógarstjarna heitir tæki sem
Magnús á en það flettir bletti sem
síðan er plantað í. Loks er að nefna
skurðfræsara sem virkar líkt og
snjóblásari þegar hann fræsir niður
v-laga skurði. Fara þarf tvær til
þrjár ferðir til að komast í fulla
dýpt. Fræsarinn dreifir skurðruðn-
ingum út og því verður ekkert
skurðuppbrot. Síðan vex gasið upp
úr skurðruðningnum á fyrsta sumri
og ekkert sér á landinu eins og þeg-
ar skurðuppbrot er á öllum skurð-
börmum. Það er því ansi margt sem
Magnús tekur að sér að fram-
kvæma fyrir utan það að reka sitt
eigið bú.
Í flestum tilfellum borgar sig að
fá verktaka til að vinna verkið
Hinrik ehf. er nýtt verktökufyrirtæki í Eyjafirði.
Stofnandi þess og eigandi er Hinrik Máni Jó-
hannessson á Svalbarðseyri. Fyrirtækið tekur
að sér þjónustu fyrir bændur. Meðal annars
rekur það haugsugu af gerðinni Redroc frá
Vélfangi. Haugsugan er með 18 þúsund lítra
tanki á tveimur öxlum, með beygju á afturhá-
singu, þriggja tommu þvottastút, regnbyssu
og vökvavendingu. Case 190 dráttarvél er
notuð fyrir tækið. Þá hefur fyrirtækið séð um
snjómokstur víða í Eyjafirði. Nánari upplýsing-
ar í síma 862 - 2849.
!"#! $#%&'()*)
+
,$!-