Bændablaðið - 11.04.2006, Page 41
41Þriðjudagur 11. apríl 2006
15. – 22. ágúst
Landbúnaðarferðin okkar er að þessu sinni til Bæjaralands í
Þýskalandi og Austurríkis og er fyrir alla þá sem hafa mikinn áhuga á
landbúnaði. Lögð verður sérstök áhersla á heimaframleiðslu á hinum
ýmsu landbúnaðarvörum og má þar telja sultur, söft, pylsur af
ýmsum gerðum, osta, ávexti, egg, kjöt og ýmislegt fleira sem hægt er
að kaupa beint af bóndanum. Heimsóttir eru bæir sem gefa hvað
fjölbreyttasta mynd af því sem er í boði á þessu svæði,
framleiðsluaðstaða skoðuð og síðan að sjálfsögðu hefðbundinn
búskapur. Ekki er úr vegi að fara í eitt sel, en mikið er um
ostaframleiðslu á þessum slóðum. Flogið er til München og gist þar
eina nótt áður en haldið er sem leið liggur til Austurríkis þar sem að
gist er í 2 nætur. Seinni hluta ferðar verður gist í 4 nætur á hóteli í
bænum Kempten. Í ferðinni verða áhugaverðir ferðamannastaðir að
sjálfsögðu skoðaðir í leiðinni.
Fararstjóri: Inga Sigga Ragnarsdóttir
s: 570 2790 www.baendaferdir.is
K Y N N T U Þ É R S É R F E R Ð I R F E R Ð A Þ J Ó N U S T U B Æ N D A
Landbúnaðarferð
Verð: 96.300 kr. á mann í tvíbýli.
Nánari upplýsingar í síma 570 2790 eða á www.baendaferdir.is
Suður Þýskaland og
Austurríki
Heimavinnsla landbúnaðarafurða
Spurningakeppni Stranda-
manna sem Sauðfjársetur á
Ströndum stóð fyrir fjórða árið í
röð lauk nú um helgina með
sigri starfsmanna Hólmadrangs.
Þetta árið mættu tólf lið til leiks
en liðin hafa verið sextán undan-
farin ár. Liðin sem hófu keppni
eru Strandamenn í Kennarahá-
skóla Íslands, Nemendur
Hólmavíkurskóla, Leikfélag
Hólmavíkur, Grunnskólinn á
Drang-snesi, Félagsmiðstöðin
Ozon, Kennarar í Grunnskólan-
um á Hólmavík, Hólmadrangur,
Sparisjóður Strandamanna,
Kaupfélag Steingrímsfjarðar,
skrifstofa Hólmavíkurhrepps,
félag eldri borgara á Ströndum
og Strandahestar.
Lokabáráttan var æsispennandi
en þá voru tvær umferðir og stóð
baráttan milli þeirra fjögurra liða
sem eftir stóðu. Keppnirnar voru
allar hnífjafnar, en í fyrri umferð
sigruðu Strandamenn í KHÍ lið
kennara við Grunnskólann á
Hólmavík og starfsmenn Hólm-
drangs sigruðu Leikfélag Hólma-
víkur. Báðum viðureignunum lauk
með eins stigs mun. Í úrslitaviður-
eigninni sigraði svo Hólmadrangur
Strandamenn í KHÍ 20-18. Hlutu
þeir að launum svokallaðan Visku-
bikar til varðveislu í eitt ár og veg-
leg bókaverðlaun ásamt páska-
eggi. Áður höfðu kennarar við
Grunnskólann á Hólmavík unnið
bikarinn tvisvar og Strandagaldur
einu sinni. /KS
Starfsmenn Hólmadrangs hampa Viskubikarnum 2006. F.v. Pétur
Matthíasson, Björn Fannar Hjálmarsson og Þröstur Áskelsson..
/Bændablaðið Kristín Sigurrós
Starfsmenn Hólmadrangs fróðastir á Ströndum
Sigurður Sigurðarson,
dýralæknir
Kaplaskjól
Þegar ég fer um landið tek
ég eftir því að útigangs-
hross hafa ekki alls staðar
fullnægjandi skjól, hvorki
náttúrleg né manngerð.
Sumir setja eitthvert drasl
út í hagana svo sem gömul
kefli undan rafmagnsköpl-
um eða spýtnabrak og telja
sig hafa gert skyldu sína.
Sums staðar er það þó
betra en ekkert.
Enn er allra veðra von.
Kvöldin eru kaldlynd úti á
nesjum og inn til dala. Hús er
á við hálfa gjöf, segir fornt
spakmæli. Reyndar þekkja
þó allir að hrossin eru harð-
ger og velja frekar að vera úti
en í vondum húsum og jafn-
vel frekar en að vera inni í
góðum húsum, ef veðrið er
ekki mjög slæmt. Skjól og
skýli eru þó nauðsyn í hrak-
viðrum. Af hverju sjá ekki
allir hrossaeigendur sóma
sinn í að koma upp fullgild-
um skjólum, þar sem náttúr-
leg skjól eru ekki til? Af
hverju láta búfjáreftirlits-
menn þetta viðgangast árum
saman sums staðar? Það er
þeim til skammar og okkur
öllum.
Víða kvelja útigangs-
hrossin, og reyndar þau sem
inni eru líka, sníkjudýr bæði
útvortis og innvortis. Eig-
endur ættu að setja sig oftar í
spor skepnanna sinna og
hugsa sér, hvort þeir vildu
láta naga sig innan af ormum
og utan af lús án þess að
líkna og lækna, sem er auð-
velt.