Bændablaðið - 11.04.2006, Blaðsíða 43

Bændablaðið - 11.04.2006, Blaðsíða 43
43Þriðjudagur 11. apríl 2006 Meginniðurstöður ársreiknings 2005 Yfirlit um breytingu á hreinni eign til greiðslu lífeyris 2005: Efnahagsreikningur 31. desember 2005: Í milljónum króna 2005 2004 Í milljónum króna 2005 2004 Iðgjöld 417 388 Hlutabréf og verðbréfasj. 14.033 9.848 Lífeyrir -655 -615 Markaðsverðbréf 3.113 2.531 Fjárfestingartekjur 2.046 1.473 Veðlán 489 743 Fjárfestingargjöld -65 -21 Önnur útlán 479 546 Rekstrarkostnaður -32 -27 Bankainnistæður 0 26 Kröfur 72 65 Hækkun á hreinni eign á árinu 1.711 1.197 Aðrar eignir 98 150 Sérstök innborgun 2005 2.630 0 Hrein eign frá fyrra ári 13.894 12.697 18.283 13.908 Skuldir -48 -14 Hrein eign til greiðslu lífeyris 18.236 13.894 18.236 13.894 Tryggingafræðileg staða Í árslok fékk sjóðurinn sérstakt framlag úr Ríkissjóði og bætti það stöðu hans til muna. Gerð var tryggingafræðileg úttekt á sjóðnum miðað við árslok 2005. Endurmetin hrein eign sjóðsins miðað við 3,5% ávöxtun nemur í árslok 2005 18.752 mkr. og verðmæti framtíðariðgjalda 4.160 mkr. eða samtals 22.912 mkr. Heildarskuldbindingar nema 21.911 mkr. Sjóðurinn á því 1.001 mkr., eða 4,6%, umfram heildarskuldbindingar. Áfallnar skuldbindingar nema 16.184 mkr. Hagnaður miðað við áfallnar skuldbindingar er því 2.568 mkr., eða 15,9%. Í árslok 2004 voru eignir 9,7% lægri en heildarskuldbindingar og 5,7% lægri en áfallnar skuldbindingar. Lífeyrisskuldbindingar 2005 2004 2005 2004 Hlutfall eigna af Hlutfall eigna af heildarskuldbindingum 104,6% 90,3% áföllnum skuldbindingum 115,9% 94,3% Ávöxtun – Fjárfestingarstefna Ávöxtun sjóðsins á árinu var 14,15% sem jafngildir 9,61% hreinni raunávöxtun. Hrein raunávöxtun árið 2004 var 7,13%. Helstu ástæður betri ávöxtunar en 2004 er sú að erlendir markaðir gáfu betur af sér og mikil hækkun varð á innlendum hlutabréfum. Lítil ávöxtun varð hins vegar á ríkisskuldabréfum. Samkvæmt fjárfestingarstefnu sjóðsins 2006 skal samsetning eigna vera sem næst eftirfarandi hlutföllum: Skuldabréf með ríkisábyrgð 40%, önnur skuldabréf 25%, erlend hlutabréf 25% og innlend hlutabréf 10%. Heimilt er að leggja allt að 15% eigna inn á bundna innlánsreikninga. Kennitölur 2005 2004 2005 2004 Nafnávöxtun 14,15% 11,32% Eignir í íslenskum krónum 80,78% 78,65% Hrein raunávöxtun 9,61% 7,13% Eignir í erlendum gjaldm. 19,22% 21,35% Meðaltal hrein raunávöxtun sl. 5 ár 3,59% 1,33% Fjöldi virkra sjóðfélaga 3.256 3.364 Meðaltal hrein raunávöxtun sl. 10 ár 5,19% 4,76% Fjöldi lífeyrisþega 3.655 3.668 Sjóðfélagalán Hámarkslán nema 6.000.000 króna til allt að 40 ára. Vextir breytast 15. hvers mánaðar og eru 1,5 prósentustigum hærri en meðaltalsávöxtun á nýjustu flokkum íbúðabréfa til 20 og 30 ára. Vextir verða þó ekki lægri en 5%. Ársfundur Ársfundur sjóðsins verður haldinn í Bændahöllinni þriðjudaginn 13. júní n.k. og verður nánar auglýstur síðar. LÍFEYRISSJÓÐUR BÆNDA Stjórn Lífeyrissjóðs bænda Skrifstofa sjóðsins er til húsa á 3. hæð í Guðríður Þorsteinsdóttir, formaður Bændahöllinni við Hagatorg, 107 Reykjavík Elmar Hallgríms Hallgrímsson Afgreiðslutími er frá kl.10 - 16. Loftur Þorsteinsson Sími 563 0300 og myndsendir 561 9100 Guðmundur Grétar Guðmundsson Örn Bergsson Heimasíða lífeyrissjóðsins er www.lsb.is Netfang: lsb@lsb.is Framkvæmdastjóri er Sigurbjörg Björnsdóttir Sævar Skaptason fram- kvæmdastjóri Ferða- þjónustu bænda hf Mikilvægur samstarfs- samningur Kynntur hefur verið samstarfs- samningur milli ferðaþjónustu bænda, Félags ferðaþjónustu- bænda og Ferðaþjónustu bænda hf. Að sögn Sævars Skaptasonar, framkvæmdastjóra Ferðaþjón- ustu bænda hf, er tilgangurinn með þessum samningi að skýra þá þætti er lúta að samstarfi þessara samningsaðila. Forsendur þessa samstarfssamn- ings eru þær samþykktir og reglu- gerðir sem aðalfundir Ferðaþjón- ustu bænda samþykkir á hverjum tíma. Sævar segir að í dag byggi samstarfssamningurinn á sam- þykktum um gæðaflokkunarkerfi Ferðaþjónustu bænda, samning við Ferðamálastofu um stjörnuflokkun, umhverfisstefnu FB og reglum um notkun vöru- og félagsmerkja fé- lagsins. Sævar segir að menn vilji koma á meiri virðingu fyrir vörumerki samtakanna og að menn misnoti ekki eða afskræmi merki Ferða- þjónustu bænda. Þegar og ef menn hætta samstarfi við Ferðaþjónustu bænda þá geti þeir ekki notað vöru- merkið áfram eins og nokkur brögð eru að í dag. ,,Það er líka annað sem skiptir máli. Það er verið að breyta sam- þykktum félagsins og skapa úrræði til að taka á þeim sem ekki standa við það sem við gefum okkur út fyrir að vera,“ sagði Sævar. Gefnar hafa verið út reglur um notkun vörumerkja Ferðaþjón- ustu bænda. Knútur Bruun lögmaður og ferðaþjónustubóndi í Öræfum að- stoðaði Ferðaþjónustu bænda við gerð reglna um notkun vörumerkja félagsins. Merki Ferðaþjónustu bænda, „græni burstabærinn“ er bæði vörumerki og félagsmerki. Það er skráð hjá einkaleyfastofu og er lögverndað. Enginn nema félags- menn, félagið og skrifstofan mega nota merkið. Ekki mætti heldur breyta merkinu nema með leyfi stjórnar. Til dæmis að taka vöru- merkið inn í sitt eigið vörumerki með því að bæta við öðrum tákn- um, texta eða fækka eða fjölga burstum. Ljóst er að gæta þarf að notkun vörumerkis Ferðaþjónustu bænda enda liggur á bak við merkið mikil vöruímynd sem óviðkomandi mega ekki notfæra sér. Mikilvægt er einnig að félagsmenn noti merkið á réttan hátt. Bændablaðið kemur næst út: þriðjudaginn 2. maí

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.