Bændablaðið - 10.03.2011, Síða 22
22 Bændablaðið | fimmtudagur 10. mars 2011
Bygg og byggyrki
Til upplýsingar skal þess getið að
hér verður ekki ræktað annað bygg
en vorbygg. Vetrarbygg er ekki
vetrarþolið og fer því fjarri að það
verði ræktað hér.
Í stórum dráttum hentar sexraða-
bygg norðanlands en tvíraðabygg
sunnanlands. Þó er þessi skipting
ekki einhlít og stigsmunur er á.
Norðlægasti hluti landsins sam-
kvæmt korninu eru Eyjafjörður,
Þingeyjarsýslur og Fljótsdalshérað.
Eftir sama mælikvarða er miðja
landsins vesturhluti Norðurlands,
Vesturland allt, uppsveitir sunnan-
lands og Hornafjörður. Hið eiginlega
Suðurland eru lágsveitir Árness- og
Rangárvallasýslu og Skaftafellssýslur
að mestu.
Nú henta hin ýmsu byggyrki mis-
vel eftir jarðvegi. Athyglisvert er, að
þau yrki sem best standa sig í þungum
jarðvegi, það er til dæmis framræstri
mýri, eru þau sömu og henta best norð-
anlands. Á sama hátt henta suðlæg
yrki best í sandjörð. Þannig geta yrkin
farið yfir mörk milli landshluta. Þetta
er reynt að sýna hér í einfaldri töflu:
En byggakrar verða ekki skornir
allir í einu. Best er ef bóndi hver velur
í akra sína tvenns konar korn; annars
vegar fljótþroska korn sem má þá vera
viðkvæmt fyrir veðri því að það verður
tekið snemma og hins vegar strásterkt
korn sem má vera nokkuð seinþroska
því að það þarf að standa fram á haust.
Hér á eftir fylgir lýsing á þeim
byggyrkjum sem mælt er með og líkur
eru á að verði í boði vorið 2011.
Judit
Sexraðabygg, sænskt, fljótþroska.
Judit hefur reynst uppskerumikil og
fljótþroska líka. Judit á fyrst og fremst
heima á frjósömu landi, en hefur reynst
miður á sandi. Veðurþolið er svipað
því, sem búast má við af sexraðayrkj-
um, sem þýðir að Judit stendur ekki af
sér hvað sem er. Einkum skal mælt
með Judit til notkunar á austanverðu
Norðurlandi og Fljótsdalshéraði.
Tiril
Sexraðabygg, norskt, fljótþroska. Tiril
er arftaki Arve sem hér var notað árum
saman og yrkin eru ekki ólík. Tiril
hefur oft gefið mikla uppskeru, en
hefur stundum litið illa út í votvið-
ratíð. Tiril er norrænt yrki samkvæmt
orðanotkun okkar og nýtur sín best á
austanverðu Norðurlandi.
Elmeri
Sexraðabygg, finnskt, miðlungi fljót-
þroska. Hefur einungis verið eitt ár í
tilraunum, en reyndist þá mjög vel,
einkum norðanlands. Kornið er stórt
af sexraðakorni að vera. Ekkert er
vitað um sjúkdómsþol yrkisins og
veðurþol er ekki fullreynt heldur.
Pilvi
Sexraðabygg, sænskt, miðlungi fljót-
þroska. Áberandi einkenni er að axið
drúpir og ber þá hnakkann hæst.
Pilvi er ekki alveg eins fljótþroska
og hliðstæð yrki, en stendur nokkuð
vel í haustveðrum, líklega einmitt
vegna þess.
Lómur og Skúmur
Sexraðabygg, íslenskt, tvö yrki
hvort öðru líkt, lágvaxin og strás-
terk. Lómur er að hverfa af mark-
aði, en Skúmur verður í boði enn
um sinn. Þessi yrki eru sexraða,
miðlungi fljótþroska og halda tít-
unni ávallt. Þessi yrki eru gerð til
þess að standa af sér hvaða veður,
sem gera kann og hvorki hafa þau
sést leggjast né heldur hafa þau
brotnað. Þau hafa jafnan skilað
góðri uppskeru en kornið getur
verið nokkuð smátt. Henta í öllum
landshlutum og hafa getið sér gott
orð á sandjörð.
Kunnari
Sexraðabygg, finnskt, miðlungi fljót-
þroska. Kunnari hefur gefið mikla
uppskeru í góðum árum og virðist ekki
eins viðkvæmt í veðrum og sum önnur
sexraðayrki. Einkum hefur yrkið
reynst vel á vestanverðu Norðurlandi
og í uppsveitum vestra og syðra.
Kría
Tvíraðabygg, íslenskt, fljótþroska.
Kría hentar til notkunar víða um land
síst þó á austanverðu Norðurlandi.
Víðast er Kría valin vegna öryggis, þó
er það gert á mismunandi forsendum
eftir landshlutum. Norðanlands stend-
ur Kría betur en sexraðayrkin og þar er
henni sáð með það í huga að láta hana
standa fram eftir hausti. Sunnanlands
er Kría mun fljótari til þroska en þau
tvíraðayrki sem þar er um að velja. Þar
hefja menn kornskurð á Kríu.
Olavi
Sexraðabygg, finnskt, seinþroska af
sexraðayrki að vera, nokkuð hávaxið.
Virðist henta best á sandjörð og hefur
gefið þar góða uppskeru.
Filippa
Tvíraðabygg, sænskt, tiltölulega sein-
þroska, þrautreynt hérlendis. Þolir
súra jörð. Á best heima á framræstum
mýrum sunnan til á landinu og er afar
vinsælt í þeim landshluta en hentar alls
ekki norðanlands. Filippa ber stórt
og fallegt korn og gefur oft ágæta
uppskeru. Í haustrigningum hallast
Filippa en brotnar ekki og yfirleitt
tekst að skafa hana upp. Korn af henni
fer því sjaldan forgörðum.
Barbro
Tvíraðabygg, sænskt, tiltölulega sein-
þroska. Barbro hefur reynst nokkuð
vel sunnanlands en miður annars
staðar. Yrkið er hávaxið af tvíraða-
byggi að vera og getur gefið mikla
uppskeru í góðum árum en stendur
ekki haustveðrin af sér á sama hátt
og Filippa.
Minttu
Tvíraðabygg, finnskt, seinþroska.
Minttu getur gefið mikla uppskeru í
bestu árum, einkanlega vegna þess
að yrkið er strásterkt og þolir það að
standa langt fram á haust.
Saana
Tvíraðabygg, finnskt, seinþroska.
Saana er einstaklega strásterkt yrki og
stendur langt fram eftir hausti. Saana
þarf langan vaxtartíma en þolir líka
haustveðrin flestum yrkjum betur. Það
hentar því syðst á landinu og þar sem
líkur eru á, að korn verði ekki skorið
fyrr en seint að hausti.
Hafrar og hafrayrki
Hafrar eru að sumu leyti auðveldari í
ræktun en bygg. Þeir eru ekki land-
vandir, þola betur þurrk en byggið og
þola líka illa framræst land. Hafrar
þurfa minni áburð en byggið, en geta
skilað jafnmikilli uppskeru. Stóra
málið er svo að gæsin lítur ekki við
þeim. Gallinn á höfrunum er hins
vegar sá að þeir þurfa að minnsta kosti
hálfum mánuði lengri vaxtartíma en
fljótþroska bygg og uppskeran er ekki
jafngott fóður og byggkorn.
Gróska er í hafrakynbótum í
nágrannalöndunum og þar koma
á markaðinn ný yrki jafnt og þétt.
Landbúnaðarháskólinn hefur gert til-
raunir með hafra öðru hverju til þess
að fylgjast með, síðast sumarið 2007.
Hér verður getið þeirra yrkja, sem best
reyndust þá, en ljóst er að fleiri yrki
koma til greina.
Aslak
Finnskt. Fljótast til þroska af þeim
yrkjum, sem reynd hafa verið hér-
lendis. Stendur vel og uppskeran er
góð, náði þó ekki alveg toppnum.
Cilla
Sænskt. Eina yrkið, sem flutt hefur
verið inn undanfarin ár. Hefur reynst
farsælt, nokkuð fljótþroska og tiltölu-
lega uppskerumikið.
Gere
Norskt. Þótti sameina best fljótan
þroska og mikla uppskeru af öllum
þeim fjölda hafrayrkja, sem Norðmenn
bjóða upp á.
Vorhveiti
Hugur hefur verið í mönnum að rækta
vorhveiti. Því er best að taka fram
strax, að sú ræktun er mjög áhættu-
söm. Vorhveiti þarf að minnsta kosti
mánuði lengri vaxtartíma en fljót-
þroska bygg. Samt er ekki loku
fyrir það skotið, að ná megi góðri
hveitiuppskeru, ef hægt verður að sá
um sumarmál og hveitið látið standa
fram í októberbyrjun. Kostur er að
hveitið er veðurþolið. Eins og með
hafra hefur Landbúnaðarháskólinn
gert tilraunir með hveiti öðru hverju,
síðast sumarið 2009. Fljótustu yrkin
verða nefnd hér.
Anniina
Finnskt. Fljótasta vorhveiti, sem við
höfum rekist á. Uppskeran viðunandi.
Ef ekki er hægt að fá uppskeru af þessu
yrki, þá er vorhveitið vonlaust.
Bastian
Norskt. Gamalt yrki og furðuseigt.
Er í rauninni ekki langt á eftir Anniinu
í þroska.
Vetrarhveiti
Vetrarhveitið nýtir sumarið betur en
vorhveitið, getur byrjað vöxtinn strax
um sumarmál. Því á að vera hægt
að fá sæmilega þroskaða uppskeru
af fljótþroska vetrarhveiti í meðalári.
En með vetrarsáningunni bætist við
áhættuþáttur, það er hvort hveitið lifir
veturinn eða ekki. Við veljum því yrki
eftir vetrarþoli og fljótum þroska síð-
ara sumarið.
Arktika
Finnskt. Hefur verið eitt ár í tilraunum
hér á landi og reyndist þá afar vel,
bæði vetrarþolið og uppskerumikið.
Stava
Sænskt. Sameinar þokkalegt vetrarþol
og góða uppskeru. Þegar vetur eru
hagfelldir, hefur yrkið gefið góða raun.
Bj¢rke
Norskt. Þokkalega vetrarþolið og
mjög fljótþroska síðara árið. Kemur
vel til greina.
Urho
Finnskt. Vetrarþolið og fljótþroska, en
hefur ekki reynst í röð uppskerumestu
yrkja. Telja má yrkið þó með þeim
öruggustu.
Vetrarrúgur
Auðveldur í ræktun, til muna vetr-
arþolnari en hveiti. Uppskeruvonir
þokkalegar, en lítil hefð er fyrir því
að nota kornið til fóðurs. Rúgurinn er
mjög hávaxinn og getur verið erfiður
í skurði. Nokkurt úrval er af yrkjum
á markaði.
Kaskelott
Sænskt. Gamalt yrki og þrautreynt
erlendis. Það hefur verið í tilraunum
hér nokkrum sinnum og skilað góðri
uppskeru.
Reetta
Finnskt. Nýtt yrki og þykir mjög álit-
legt eftir síðustu tilraunir hér á landi.
Riihi
Finnskt. Gríðarlega hávaxinn rúgur,
vetrarþolinn eins og best gerist. Mælt
hefur verið með þessu yrki sem græn-
fóðri til vorbeitar fyrir ær og kýr, því
að rúgurinn byrjar að spretta á undan
öðrum gróðri að vori.
Olíujurtir
Hér er fjallað um repju og nepju.
Vorafbrigðin af þessum tegundum
verða látin liggja milli hluta að
sinni. Þau þurfa langan vaxtartíma
og uppskeruhorfur því tvísýnar.
Vetrarafbrigðin eru betur þekkt. Ef
þau lifa veturinn eru góðar líkur á að
þau nái að skila þroskaðri uppskeru.
Vetrarnepja
Nepja er sama tegund og næpa. Hún
er vetrarþolnari en repjan og fljótari
til þroska, uppskeruvonir aftur minni.
Nepjan er samt sem áður ómissandi
fyrir öryggissakir, ef hér á að rækta
olíujurtir. Mælt er með því að sá 6-8
kg af fræi á hektara.
Largo
Sænskt. Eina yrkið af nepju, sem
virðist vera fáanlegt eins og er.
Vetrarrepja
Repja er sama tegund og gulrófa.
Mikið ræktuð í grannlöndum okkar,
einkum hinum suðlægari. Framboð af
yrkjum er þar af leiðandi fjölskrúðugt.
Nokkur þeirra hafa verið reynd hér í
tilraunum undanfarin ár. Mæla má
með þessum. Ráðlagt sáðmagn 4-6
kg/ha.
Banjo
Sænskt. Vetrarþolið yrki af repju að
vera, en mætti vera fljótara til þroska
seinna sumarið. Banjo er svokallað
kynblendingsyrki og fræið þar af
leiðandi dýrt. Óvíst er, hvaða máli
það skiptir í ræktun, því að sáðmagn
af repju er lítið í kg talið.
Galileo
Sænskt. Ekki alveg eins vetrarþolið
og Banjo, en ívið fljótara til þroska.
Uppskeruvonir góðar, ef það lifir.
Val á sáðkorni 2011
Jónatan Hermannsson,
Landbúnaðarháskóla Íslands,
Keldnaholti.
Byggyrkjum raðað eftir viðbrögðum þeirra við náttúrufari og jarðvegsgerð.
!"#
einungis frá Korpu. Elmeri hefur aðeins verið eitt ár í tilraunum og Olavi
og Minttu tvö, önnur yrki fjögur ár eða meira.
Rúgur og hveiti.
Nepja.
Hentar
á Yrki Þjóðerni
Hæð
undir
ax, sm
Skrið
í júlí
Þurrefni
við
skurð,%
Veðurþol
*** mest
Hentar
á
Norður-
landi
Judit 6r sæn. 90 10 65
þyngstu
jörð
(mýri)
Tiril 6r nor. 90 12 65
Elmeri 6r fin. 85 12 60 *
Pilvi 6r sæn. 95 10 65 *
Lómur/
Skúmur
6r ísl. 55 12 60 ***
Kunnari 6r fin. 95 12 60 *
Kría 2r ísl. 75 10 65 **
Olavi 6r fin. 95 15 60 *
Filippa 2r sæn. 90 17 57 **
Barbro 2r sæn. 90 17 57 *
léttustu
jörð
(sandi)
Suður-
landi
Minttu 2r fin. 75 17 55 ***
Saana 2r fin. 80 20 55 ***