Bændablaðið - 10.03.2011, Blaðsíða 31
31Bændablaðið | fimmtudagur 10. mars 2011
Í Norður-Evrópu er tíðni sjáan-
legrar júgurbólgu 40-50 til-
felli fyrir hverjar 100 kýr á ári.
(Bartlett et al. 2001; DARD 2008)
En þetta er einungis toppurinn á
ísjakanum því dulin júgurbólga er
mun algengari. Frumutala í inn-
leggsmjólk á Íslandi er um 250.000
frumur/ml (árstíðabundnar
sveiflur 220.000-270.000) og hefur
nánast verið óbreytt undanfarin
ár. Frumutala af þessari stærðar-
gráðu segir okkur að tíðni dulinnar
júgurbólgu á Íslandi er mjög há og
að júgurheilbrigði er einnig lakara
hér en í nágrannalöndunum.
Mikill kostnaður
Kostnaður vegna júgurbólgu er
bæði vegna sýnilegrar og dulinnar
júgurbólgu. Áætlaður kostnaður
vegna þessa er misjafn á milli landa.
Í Danmörku er áætlaður kostnaður
vegna sýnilegrar júgurbólgu, miðað
við einn grip á ársgrundvelli, um
56.880 d.kr. eða 126.400 ísl.kr.
(Dansk Landbrugsrådgivning 2008).
Á Bretlandi er kostnaðurinn um
34.760 ísl.kr. og í Bandaríkjunum
23.700 ísl.kr. (Bar et al. 2008) fyrir
hvert tilfelli.
Það eru margir þættir sem hafa
áhrif á þessar tölur, s.s. alvarleiki
júgurbólgunnar, mjólkurverð til
bóndans, aldur gripsins og á hvaða
hluta mjaltaskeiðsins kýrin er þegar
hún fær júgurbólgu. Þyngst vegur
þó afurðatap í formi lægri nytar og
styttri endingar kúa.
Áætlaður heildarkostnaður á
Íslandi um 1,2 milljarðar
Á Íslandi er kostnaður vegna með-
höndlunar júgurbólgu hár miðað við
mörg önnur lönd.
Áætlaður kostnaður vegna sýni-
legrar júgurbólgu á Íslandi er u.þ.b.
71.100 ísl.kr. á hvert tilfelli. Hlutfall
sýnilegrar júgurbólgu hér á landi
er a.m.k. um 40%. Þetta þýðir að
árlegur kostnaður vegna sýnilegrar
júgurbólgu er að lágmarki um 682
milljónir ári.
Kostnaður vegna dulinnar júgur-
bólgu er einnig gífurlegur vegna
lægri mjólkurnytar. Margir bændur
virðast ekki átta sig á því gífurlega
tekjutapi sem þeir verða fyrir þegar
frumutalan er há, þar sem tapið
kemur ekki beint úr pyngju bóndans.
Sem dæmi má nefna að kúabú sem
er með 200.000 frumur/ml í frumut-
ölu hefur 6% minni framleiðslu en
býli sem er með 100.000 frumur/ml
í frumutölu. Kostnaðaráætlun vegna
dulinnar júgurbólgu hér á landi er um
570 milljónir á ári.
Þannig gæti heildarkostnaður
vegna júgurbólgu á Íslandi numið
um 1,2 milljörðum ísl.kr.
Staphylococcus aureus
algengasti sýkingavaldurinn
Júgurbólga er bólga og sýking í
mjólkurkirtlum kúa. Sýklar valda
henni oftast. Bakteríur sem valda
júgurbólgu eru ýmist smitandi á
milli kúa eða bakteríur sem lifa
almennt í umhverfinu og geta valdið
júgurbólgu. Algengasti sýkillinn
sem veldur júgurbólgu á Íslandi er
Staphylococcus aureus. Erfitt getur
reynst að meðhöndla júgurbólgu
af völdum Staphylococcus aureus
með sýklalyfjum þar sem sýkillinn
getur „falið“ sig djúpt í vef mjólkur-
kirtilsins. Einnig hefur hann þann
eiginleika að geta myndað slímhjúp
sem hann notar til að festa sig við
vefi kirtilsins. Þessi slímhjúpur getur
einnig varið hann gegn sýklalyfjum.
Á þennan hátt getur kýrin verið með
króníska júgurbólgu, sjáanlega eða
dulda. Í kjölfarið hækkar frumutalan
og nytin minnkar.
Þannig geta kýr einnig verið
smitberar og viðhaldið óæskilegu
smitmagni innan hjarðarinnar. Ein
helsta vísbending um að kýr séu
smitaðar af Staphylococcus aureus,
eða kóagúlasa-neikvæðum stafýló-
kokkum, er einmitt hækkuð frumut-
ala og léleg nyt.
Flestir bændur gera sér grein fyrir
því að ásamt góðum búskaparháttum
er hreinlæti lykilatriði í forvörn
gegn júgurbólgu. En jafnvel á fyrir-
myndarbúum reynist baráttan gegn
Staphylococcus aureus æði erfið.
Nýr valkostur
Nú hefur nýr valkostur bæst í hóp-
inn í baráttunni gegn Staphylococcus
aureus.
Vísindamönnum hefur tekist
að þróa bóluefni við júgurbólgu
af völdum Staphylococcus aureus,
kólígerla og kóagúlasa-neikvæðra
stafýlókokka. Allar rannsóknir sem
gerðar hafa verið síðan þetta bóluefni
kom á markaðinn í Evrópu árið 2009,
og reynsla af notkun þess, benda
til þess að hér sé kominn öflugur
liðsauki í endalausri baráttu gegn
júgurbólgu.
Ávinningur af völdum
bólusetninga gegn
Staphylococcus aureus,
kólíforma og kóagúlasa-
neikvæðra stafýlókokka;
Dregur úr tíðni og alvarleika klín-
ískra einkenna sýnilegrar júgur-
bólgu af völdum Staphylococcus
aureus, kólíforma og kóagúlasa-
neikvæðra stafýlókokka.
Minni notkun sýklalyfja.
Lægri frumutala og hækkuð nyt.
(Prenafeta A., et al., 2009.
Veterinary Immunology and
Immunopathology)
Spennandi nýjung
Hér er á ferðinni spennandi nýjung
fyrir bændur og dýralækna. En vert
er að taka fram að ekki er um neina
töfralausn að ræða.
Það er mjög mikilvægt að líta á
bólusetningu sem einn þátt í marg-
þættri áætlun til að hafa stjórn á
júgurbólgu sem snertir alla mikil-
væga þætti er varða júgurheilbrigði
(t.d. tækni við mjólkun, geldstöðu
og kynbótatækni, hreinlæti, næringu,
húsnæði, undirburð, vellíðan kúnna,
gæði lofts og vatns, heilbrigðiseftir-
lit) og aðra búskaparþætti.
(Útreikningar miðast við gengið 10.
febrúar 2010 – 158 iskr./1 €)
Höfundar:
Grétar Hrafn Harðarson dýralæknir
og tilraunastjóri Tilraunabúsins að
Stóra-Ármóti.
Líney Emma Jónsdóttir dýralæknir.
Nýr valkostur í baráttunni gegn júgurbólgu
Útgjöld bænda vegna júgurbólgu valda miklum búsifjum hjá kúabændum