Bændablaðið - 10.03.2011, Qupperneq 39
39Bændablaðið | fimmtudagur 10. mars 2011
Sæt lítil gjöf fyrir vinkonuna, mömmu eða
ömmu. Farsímar eru misstórir svo gott er að
mæla símann áður en hafist er handa.
Efni
Nepal frá Drops eða Fever frá garn.is
Litur að eigin vali.
Heklunál nr. 4 eða þá stærð sem þarf til að 16
fastalykkjur mælist 10 cm.
Aðferð
Mælið símann og sláið upp jafn margar loft-
lykkjur og breiddin segir til um með því að teygja
svolítið á heklinu.
1 umf: Heklið fastalykkjur í hverja loftlykkju allan
hringinn beggja megin við lengjuna þannig
að lykkjufjöldinn verði tvöfaldur.
Heklið síðan í hring fastalykkju í fastalykkju
þar til hylkið er nógu langt til að hylja
símann.
Í næstu umferð er aukið jafnt út þannig að
deila megi í lykkjufjöldann með 4. Tengið
með 1 loftlykkju í fyrstu fastalykkjuna.
Síðasta umferðin er hekluð þannig : *
1 fastapinni, hlaupa yfir 1 fastapinna, í
næsta fastapinna er heklaður 1 fastapinni, 2
stuðlar, 2 loftlykkjur, 2 stuðlar, 1 fastapinni,
hlaupa yfir 1 fastapinna* endurtekið * til *
allan hringinn.
Klippa þráðinn og ganga frá.
Hulstur fyrir farsímann
Hrannar Þór Rósarsson er 14 ára
Akureyringur sem fermist þann
16. apríl næstkomandi. Hann
hlakkar til stóra dagsins en fram
að honum heldur hann áfram að
æfa handbolta með KA og glamra
á gítarinn sinn eins og hann er
vanur.
Nafn: Hrannar Þór Rósarsson.
Aldur: 14 ára.
Búseta: Akureyri.
Skóli: Naustaskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Íþróttir, smíðar, heim-
ilisfræði og tölvur.
Hvert er uppáhalds dýrið þitt?
Hundur er klárlega besti vinur
mannsins.
Uppáhaldsmatur: Lambalæri með
piparsósu og kartöflum.
Uppáhalds hljómsveit: Green Day.
Uppáhaldskvikmynd: Indiana
Jones.
Fyrsta minningin þín? Það var
þegar ég var þriggja ára og fór upp í
bíl, náði að starta honum og endaði
með því að keyra á vegg.
Æfir þú íþróttir, eða spilarðu á
hljóðfæri? Ég spila handbolta með
KA og glamra á gítar.
Hvað er það skemmtilegasta sem
þú gerir í tölvu? Fara á Facebook
og á visir.is
Hvað ætlar þú að verða þegar
þú verður stór? Atvinnumaður í
handbolta, alveg klárt mál.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Að keyra á vegg.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú
hefur gert? Þegar ég hef ekkert að
gera.
Hvenær fermist þú? 16. apríl næst-
komandi.
Hlakkar þú til fermingarinnar?
Já, því þá kemst ég í fullorðins-
mannatölu. /ehg
Kemst senn í fullorðinsmannatölu
Ýmsar náttúruhamfarir hafa
dunið yfir íslensku þjóðina undan-
farin ár. Nærtækasta dæmið er
eldgosið í Eyjafjallajökli sem hófst
á síðasta ári. Þrátt fyrir að gosinu
sé formlega lokið eru áhrif þess
enn til staðar. Öskufok herjar á
íbúa svæðisins og margir líða enn
fyrir áhrif streitu og álags sem
hvíldi á þeim á meðan á gosinu
stóð og fyrst á eftir.
Við svona hamfarir hefur mann-
eskjan mikla hæfileika til að tak-
ast á við álag í kjölfarið. Viðbrögð
fólks eru ólík en í upphafi finna
flestir fyrir vanlíðan og ótta um
framhaldið. Rannsóknir hafa
sýnt að ákveðnir þættir hafa mikil
áhrif á það hvernig fólk vinnur
úr áfallinu. Í fyrsta lagi skiptir
miklu máli hversu mikið atburð-
urinn snertir einstaklinginn.
Þannig er ljóst að þeir einstak-
lingar sem höfðu mesta nálægð
við eldgosið og urðu fyrir alvar-
legum truflunum í daglegu lífi eru
líklegri til að glíma við kvíða og
vanlíðan. Í öðru lagi skipta fyrri
áföll miklu máli. Þeir sem hafa
upplifað erfiðleika og önnur áföll
á lífsleiðinni, sem ekki hefur verið
unnið úr, eru mun líklegri til að
glíma við margháttaða erfiðleika.
Mismunandi upplifun
Hamfarir eru af ýmsum toga og
ógna á mismunandi hátt. Sumar,
líkt og jarðskjálftar eða snjóflóð,
koma snögglega og innan fárra
daga líður hættan hjá og uppbygg-
ingarstarfið getur hafist. Gosið í
Eyjafjallajökli dróst á langinn og
olli langvarandi álagi sem getur
kallað fram ýmiss konar streitu-
einkenni. Margir sem búa við slíkt
álag til langs tíma finna fyrir auk-
inni spennu í líkamanum sem lýsir
sér oft fyrst í truflun á svefni. Þá
verður erfitt að sofna og/eða að fólk
vaknar upp síðla nætur og nær ekki
að festa svefn aftur. Einnig finna
margir fyrir breytingum á skap-
ferli, styttra er í reiði og pirringur
algengur. Einbeitingarskortur og
eirðarleysi fylgir oft þessu ástandi.
Finni fólk fyrir slíkum einkennum
er mikilvægt að hvíla sig og sækja
sér stuðning en rannsóknir sýna að
þeim sem geta tjáð líðan sína eftir
áföll líður marktækt betur en þeim
sem eiga erfitt með slíkt. Fái þessi
einkenni að þróast getur kvíði og
depurð myndast sem er alvarlegt
ástand og veldur mikilli skerðingu
á lífsgæðum. Ákveðnar hugsanir
fara þá að leita á fólk, oft tengdar
hamförunum, endurupplifun verstu
stundanna og þess óhugnaðar sem
fylgdi. Þessar hugsanir geta valdið
svo mikilli vanlíðan að fólk fer að
reyna að forðast þær með öllum
ráðum og jafnvel hliðrar hegðun
sinni til. Þetta ástand getur endað í
doða og almennum vanmætti.
Áhrifin geta verið alvarleg
Afleiðingar áfalla birtast ekki alltaf
strax í sinni réttu mynd. Mikilvægt
er að gera sér grein fyrir því, hafi
breytingar orðið á líðan eða hegðun
sem tengja má álagi og streitu eftir
hamfarir. Slík einkenni skal ekki
hunsa, þar sem langvarandi streitu-
viðbrögð geta haft alvarleg áhrif
á líkamlega og andlega heilsu og
gert fólk viðkvæmara fyrir. Finni
fólk fyrir slíkum einkennum er það
hvatt til að leita sér aðstoðar hjá
sinni heilsugæslu.
Í lokin má í raun segja að þrátt
fyrir álag og átök í kjölfar síðustu
hamfara höfum við fengið enn einn
vitnisburð þess hvað mannskepnan
er mögnuð skepna.
Heimildir:
Holgersen, B.H.J & Holen, A.
(2011). Mental health outcomes
and predictors of chronic disor-
ders after the Nort Sea oil rig
disaster:27-year longitudinal follow-
up study. Journal of Nervous and
Íris Böðvarsdóttir og Ask Elklit.
(2003). Áfallaröskun og sálræn
viðbrögð meðal íslenskra þolenda
jarðskjálfta. Sálfræðiritið – Tímarit
!
"
Íris Böðvarsdóttir
Ari Bergsteinsson
sálfræðingur
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Áhrif náttúruhamfara
á líðan fólks
Mynd | Drops Design
www.garnstudio.com
Kennsla í kjötskurði hófst
hjá Sláturfélagi Suðurlands á
Hvolsvelli í byrjun febrúar 2010
en þá hófu 11 starfsmenn nám í
kjötskurði.
Meirihluti þeirra sem eru í kjöt-
skurðarnáminu er pólverjar sem eru
búnir að starfa hjá fyrirtækinu í mörg
ár og hafa sest að hér á Hvolsvelli.
Kennslan er skipulögð á þrjár
annir, vorið 2010, haustið 2010 og
kennslu lýkur nú í mars 2011. Þetta
er umfangsmikið nám með vinnu og
því lýkur með formlegum hætti með
lokaprófi í kjötskurði. Fyrirtækið er
með þessum hætti að bæta stöðu
starfsmanna sinna og gefur þeim
tækifæri til þess að eflast í starfi sem
fagmenn. Það er IÐAN, fræðslu-
setur og Hótel- og matvælaskólinn,
sem reka saman símenntunarfyrir-
tækið Sæmund fróða sem annast
kennsluna. /MHH
Þriggja anna kjötskurðarnám
hjá Sláturfélagi Suðurlands
Hópurinn sem stundar námið í kjötvinnslu SS á Hvolsvelli, ásamt leiðbeinendum og forsvarsmönnum námskeiðsins.
10 pólverjar eru á námskeiðinu og 1 íslendingur. Af þeim 150 starfsmönnum, sem vinna í kjötvinnslunni eru 85
þeirra pólverjar. Myndir | MHH
Örlygur Ásgeirsson, kjötiðnaðarmeistari og kennari á námskeiðinu (f.v.),
ásamt Oddi Árnasyni, verksmiðjustjóra SS Hvolsvelli og Moniku Kowalensku,
sem er túlkur í náminu. Örlygur fer einu sinni í viku austur á Hvolsvöll og
kennir hópnum, verklegar og fagbóklegar greinar kjötskurðarnámsins.
Saumastofa til sölu
Seglás er vinnustofa sem saumar fortjöld, sóltjöld,
hliðarsvuntur á fellihýsi og húsbíla og ýmsar yfir-
breiðslur t.d á heitapottinn og margt fleira. Viðgerðir
á tjöldum og fortjöld er stór þáttur hjá fyrirtækinu.
Fyrirtækið sér um ýmislegt fyrir sjávarútveginn svo
sem netaflögg og karayfirbreiðslur og ýmsar viðgerðir
á seglasaum. Til sölu er rekstur, saumavélar og ýmis
verkfæri , lóg, lager og viðskiptamannaskrá ofl. Nú fer
í hönd mesti annatími hjá fyrirtækinu hentar vel fyrir
duglegan einstakling.
Upplýsingar er hægt að fá í gegnum netfangið
thotan404@gmail.com
Hrannar Þór hefur mest gaman að
tölvum, heimilisfræði, íþróttum og
smíðum í skólanum.