Fréttablaðið - 21.01.2012, Page 68
KYNNING − AUGLÝSINGFerðir LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 20128
ÚT AÐ BORÐA Í SVÍÞJÓÐ
Svo gæti farið að ódýrara verði að fara út að borða í Svíþjóð á næstunni
þar sem stjórnvöld þar í landi hafa lækkað virðisaukaskatt á matsölustöð-
um. Frá þessu greinir vefsíðan turisti.is.
Um áramótin lækkaði
skatturinn úr 25 pró-
sentum niður í tólf
en með lækkuninni
vonast stjórnvöld til
að heimamenn verði
duglegri við að fara út
að borða en vissulega
græða ferðamenn einnig á
þessu fyrirkomulagi.
Vefurinn www.iceland.ja.is var opnaður við hátíðlega athöfn í Lista-
safni Reykjavíkur nýlega. Markmið hans er að veita erlendum ferða-
mönnum betra aðgengi að upplýsingum um landið og íslenskar vörur
og þjónustu. Vefurinn er samstarfsverkefni Já og aðila í ferðaþjónustu
enda gerir hann íslensk fyrirtæki sýnilegri ferðamönnum, bæði áður
en þeir koma til landsins og meðan á dvöl þeirra stendur. Um svokall-
aðan snjallan vef er að ræða sem notandinn nær auðveldlega í, hvort
sem hann er í tölvu, spjaldtölvu eða snjallsíma.
Já sér um rekstur ítarlegs gagnagrunns yfir öll íslensk fyrirtæki
sem er uppfærður daglega. Öll ferðaþjónustufyrirtæki sem þegar
eru skráð hjá Já færast sjálfkrafa á hinn nýja vef, www.iceland.ja.is,
þeim að kostnaðarlausu. Þar verður líka hægt að finna þau á rafrænu
landakorti og sjá hver þeirra eru innan seilingar hverju sinni. - gun
Upplýsingavefur um Ísland
Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Já, og
Frímann Gunnarsson, heimsborgari og alls-
herjar frömuður, við opnun iceland.ja.is
VORHÁTÍÐ Á NÆSTA LEITI
Kínverjar eru nú í óðaönn að
undirbúa vorhátíðina sem hefst
með pompi og prakt á mánudag
og stendur yfir í fjörutíu daga.
Hátíðarhöldin eru talin vera þau
mikilvægustu í Kína þar sem
fjölskyldur sameinast til að fagna
nýju ári en það er að þessu sinni
kennt við Drekann samkvæmt
kínverskri stjörnuspeki.
Þegar hafa milljónir Kínverja
ferðast til fjölskyldna sinna. Talið
er að meira en þrír milljarðar ferða
verði farnar meðan á hátíðarhöld-
unum stendur.
EINSTAKT NÁTTÚRU
GRIPASAFN
Kvikmynd bandaríska leikstjór-
ans Woodys Allen, Midnight in
Paris, sló í gegn á síðasta ári og er
hans aðsóknarmesta frá upphafi.
Myndin segir af bandarískum
handritshöfundi sem ferðast
aftur í tímann í París og hittir þar
marga mikilsmetna listamenn
á þriðja tug síðustu aldar.
Ýmsum þekktum kennileitum
bregður fyrir, þar á meðal nátt-
úrugripasafninu Deyrolle sem á
sér langa sögu en það hýsir stórt
safn uppstoppaðra dýra, allt frá
sjaldgæfum skordýrum og upp
í ljón og tígrisdýr. Hluti safnsins
eyðilagðist í bruna 2008 og síðan
þá hafa vísindamenn um allan
heim bætt skaðann með því að
gefa safninu fágæt sýnishorn.
Ferðaskrifstofa
Lok
sin
s a
ftur
!
Bjóðum aftur hin geysivinsælu VIVA hótel þar sem aðbúnaður
fyrir fjölskyldufólk er eins og hann gerist bestur!
Sumar 2012
- Perlan í Miðjarðarhafinu
98.800 kr.frá:
Verð miðast við 2 fullorðna og 2 börn.
22. maí gist í 7 daga á Hótel VIVA Sunrise.
- ódýrustu sætin bókast fyrst!