Fréttablaðið - 21.01.2012, Page 72

Fréttablaðið - 21.01.2012, Page 72
21. janúar 2012 LAUGARDAGUR40 timamot@frettabladid.is Mikið er um dýrðir við opnun Evrópu- stofu – Upplýsinga mið stöðvar ESB við Suður götu 10 í Reykjavík í dag. „Við byrjum þetta klukkan ellefu með dálítilli opnunar at höfn með Timo Summa, sendi herra ESB á Íslandi og Oddnýju G. Harðar dóttur fjármála- ráðherra,“ segir Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastýra Evrópustofu. Jafn framt segir Birna að brugðið verði á leik í upp hafi dags með því að hleypa af stokkunum ljós mynda sam- keppni sem í gangi verði næstu vikur. Þeir sem þátt taka eiga að reyna að festa á mynd hvernig Evrópa og Evrópu- samstarfið birtist þeim í umhverfi og daglegu lífi. Þrjár myndir hljóta verðlaun, en Birna segir fyrstu verðlaun verða ferð fyrir tvo til Evrópuborgar. „Svo kemur líka Sigríður Thorlacius og syngur fyrir okkur með gítar- undirleik. Í hádeginu bjóðum við upp á belgískar vöfflur og fleiri veitingar og síðan verður dregin fram risastór Evrópu kaka,“ segir hún og bætir íbyggin við að allir eigi að geta „fengið sinn skerf af ESB- kökunni“. Þá gefst gestum kostur á að prófa eigin þekkingu í Evrópumálum og fræðast um Evrópusambandið. Liður í þeirri fræðslu er stórt veggspjald sem Evrópustofa fékk teiknarann góðkunna, Halldór Baldursson, til að gera og sýnir fimm lykilstofnanir sambandsins, auk tímaáss sem sýnir Evrópusamrunann. „Svo ætlum við að vera með fyrirbæri sem við köllum Karlinn á kassanum, en tekinn verður fram sápukassi sem verður vettvangur umræðu um kost og löst á Evrópusamstarfinu,“ segir Birna. Ekki mun þó hætta á því að þeir, sem Evrópuumræðan brennur hvað heitast á, fái einokað kassann, því hver og einn fær bara að stíga á hann einu sinni og hver fær bara að tala í þrjár mínútur. Birna áréttar að allir séu velkomnir í Evrópu stofu, en markmið hennar sé að gefa upp lýsingar, stuðla að aukinni um ræðu, þekkingu og skilningi á eðli og starf semi Evrópu sam bandsins. „Stofunni er komið á laggirnar af almanna tengsla fyrir tækinu Athygli og þýska fyrir tækinu Media Consulta og rekin með styrk frá Evrópu- sambandinu,“ segir hún. Evrópustofa verður svo opin frá tíu til sex virka daga og frá tíu til tvö á laugar dögum. „Hingað getur fólk komið og vafrað á netinu, lesið bækur, blöð og upplýsingaefni um Evrópusambandið. Svo er náttúrulega hægt að hringja eða senda okkur póst með spurningum sem við reynum að svara eftir bestu getu.“ Síðan er líka komin í loftið, vefsíðan www.evropustofa.is, sem Birna segir eiga að geta verið upphafspunkt allra sem afla vilji sér upplýsingar um ESB. „Við nálgumst verkefnið á þann hátt að við viljum reka upplýsinga miðstöð og skipu leggja umræðu fundi fyrir alla. Hingað eru allir vel komnir, algjör- lega óháð skoðun þeirra á Evrópu- sambandinu og aðildarumsókn Íslands,“ segir Birna. Eftir opnun segir Birna næstu skref vera að skipuleggja kynningarfundi bæði í borginni og víðar. „Við gerum ráð fyrir að fara á næstu mánuðum nokkurn vegin hringinn í kring um landið með opna fundi um Evrópusambandið. Síðan stefnum við líka að því að opna lítið útibú norður á Akureyri,“ segir Birna og kveður það geta litið dagsins ljós á næstu misserum. „Við ætlum að einhenda okkur í það um leið og við erum búin að opna hér í Reykjavík.“ olikr@frettabladid.is VIÐ SUÐURGÖTUNA Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastýra Evrópustofu, býður gesti og gangandi velkomna í opið hús milli klukkan ellefu og fjögur í dag, laugardag. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON EVRÓPUSTOFA: OPNUN Í DAG VERÐUR HLAÐIN VIÐBURÐUM OG UPPÁKOMUM Allir fá skerf af ESB-kökunni KRISTÍN MARJA BALDURSDÓTTIR rithöfundur á afmæli í dag. „Ef verk mín hafa verið innlegg í jafnréttisbaráttu, fagna ég því. Í mínum huga er jafnrétti það sama og mannréttindi.“ Mótmæli áttu sér stað við Alþingi, Stjórnarráðshúsið og Þjóðleikhúskjallarann þennan dag árið 2009. Samfylkingarfélagið í Reykjavík fundaði í Þjóðleikhúskjallaranum og samþykkti þar ályktun um að slíta bæri stjórnarsamstarfi við Sjálfstæðisflokkinn. Þar voru bæði þingmenn og almennir flokks- menn sammála og töldu rétt að kjósa í vor. Geir H. Haarde forsætisráðherra var á öðru máli, en þingflokkur Sjálfstæðisflokks fundaði einnig þennan dag. Geir taldi mikið glapræði að efna til kosninga á þessum tíma enda stæði ríkisstjórnin í stórræðum. Hann lá undir gagnrýni frá samflokks- mönnum sínum fyrir að beita sér ekki fyrir breytingum á yfirstjórn Seðlabanka og Fjármálaeftirlits. Geir þurfti liðsinni lögreglu við að komast frá Stjórnarráðshúsinu því mótmælendur héldu uppi kröfu um að boðað yrði til kosninga án tafar. ÞETTA GERÐIST: 21. JANÚAR 2009 Mótmæli á þremur stöðum 63 Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, Kristjáns Sigurðssonar Fannborg 3, Kópavogi. Sérstakar þakkir til starfsfólks Skógarbæjar fyrir umhyggju og alúð. Oddný Helgadóttir Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýju við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, Sveins Ragnars Björnssonar skipstjóra, Framnesvegi 20, Keflavík, áður Garðbraut 56, Garði. Sérstakar þakkir til starfsfólks gjörgæsludeildar Landspítalans við Hringbraut og Landspítalans í Fossvogi fyrir einstaka umönnun og hlýtt viðmót. Loftveig Kristín Sigurgeirsdóttir Guðlaug Þóra Sveinsdóttir Baldvin Sigurðsson Sigurgeir Borgfjörð Sveinsson Elín Gunnarsdóttir Björn Sveinsson Elísa Rakel Jakobsdóttir Rósa Sveinsdóttir barnabörn, barnabarnabörn. Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Allan sólarhringinn ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Hermann Jónasson Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma, langamma og systir, Sesselja Sigríður Jóhannsdóttir Sísí frá Valbjarnarvöllum, lést á Hjúkrunarheimilinu Mörk sunnudaginn 8. janúar. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 23. janúar kl. 13.00. Steinunn Stefanía Magnúsdóttir Ísleifur Jónsson Jóhanna Finnborg Magnúsdóttir Alda Kolbrún Haraldsdóttir Guðmundur Sveinsson Sverrir Róbert Guðmundsson ömmubörn og langömmubörn og bræður. 24 tíma vakt Sími 551 3485 Davíð H. Ósvaldsson S: 896 8284 Óli Pétur Friðþjófsson S: 892 8947 ÞEKKING–REYNSLA–ALÚÐ ÚTFA RARÞJÓNUSTA Innilegar þakkir sendum við öllum sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, móðursystur, ömmu og langömmu, Dóru J. Halldórsdóttur. Sérstakar þakkir til starfsfólks á Hjúkrunarheimil inu Eir, 3. hæð suður, fyrir einstaka umhyggju og alúð. Alda Bragadóttir Björn Ingi Björnsson Þorbjörg Jónasdóttir Elín Sigríður Bragadóttir Guðmundur Guðni Konráðsson Brynjólfur Bragason Ásta Marta Sívertsen Soffía Vala Tryggvadóttir Vilhjálmur Ólafsson barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og úför elskulegs eiginmanns mín, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, Jóns Benediktssonar fv. útgerðarstjóra, Ægisvöllum 2, Keflavík, sem lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, fimmtu- daginn 15. desember. Sérstakar þakkir og kveðjur til MND-teymis og starfsfólks taugalækningadeildar Landspítalans og D-deildar og heimahjúkrunar Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja. Bjarnhildur Helga Lárusdóttir Benedikt Jónsson Inga Rebekka Árnadóttir Jóna Guðrún Jónsdóttir Magnús Valur Pálsson M. Agnes Jónsdóttir Óli Þór Barðdal barnabörn og barnabarnabarn.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.